Auka þurfi gjaldeyristekjur um 1,4 milljarða á viku næstu fjögur ár

Samtök iðn­að­ar­ins telja að til þess að skapa „góð efna­hags­leg lífs­gæði“ á Íslandi þurfi lands­fram­leiðsla að aukast um 545 millj­arða króna á næstu fjórum árum. Þau kalla eftir því að rík­is­fjár­málum verði beitt af fullum þunga til að skapa við­spyrnu.

Samtök iðnaðarins héldu sitt árlega Iðnþing í dag. Myndin er af svonefndu Húsi atvinnulífsins í Borgartúni.
Samtök iðn­að­ar­ins héldu sitt árlega Iðnþing í dag. Myndin er af svo­nefndu Húsi atvinnu­lífs­ins í Borg­ar­túni. Mynd: Samtök iðnaðarins

Beita ætti fjár­málum ríkis og sveit­ar­fé­laga af fullum þunga til að skapa kröft­uga við­spyrnu inn í nýtt hag­vaxt­ar­skeið, en um leið gæta að því að for­gangs­röðun sé rétt. Styðja ætti betur við nýsköpun og hækka þak greiðslna vegna rann­sókna- og þró­un­ar­starfs, að mati Samtaka iðn­að­ar­ins, sem í dag stóðu fyrir árlegu Iðnþingi sam­tak­anna.

Í ályktun Iðnþings kemur fram að til þess að skapa „góð efna­hags­leg lífs­gæði“ á Íslandi þurfi að auka lands­fram­leiðsl­una um 545 millj­arða króna á næstu fjórum árum. Þá segir að auka þurfi gjald­eyr­is­tekjur um 300 millj­arða króna yfir tíma­bilið, eða sem nemur ríf­lega 1,4 millj­arði á viku á þessu fjög­urra ára tíma­bili sem horft er til. Þá þurfi störfum að fjölga um 29 þús­und.

„Takist þetta munu efna­hags­leg lífs­gæði lands­manna aukast á tíma­bil­inu og lands­fram­leiðsla á mann verða meiri en hún var fyrir núver­andi efna­hags­nið­ur­sveiflu,“ segir í ályktun Iðn­þings­ins.

Samtök iðn­að­ar­ins kalla eftir því að stjórn­völd „slíti fjötrana með mark­vissum hætti á næstu mán­uðum svo hægt verði að hlaupa hraðar og skapa eft­ir­sótt störf og aukin verð­mæti.“ Á sama tíma vara sam­tökin við því að aukin skatt­lagn­ing muni „hefta vöxt atvinnu­lífs og tefja end­ur­reisn­ina“ og leggja til að álögum verði létt af fyr­ir­tækjum eins og kostur er, meðal ann­ars með lækkun trygg­inga­gjalds og fast­eigna­skatta á atvinnu­hús­næði.

Í ályktun Iðnþings er kallað eftir „atvinnu­stefnu“ af hálfu stjórn­valda. Þar er átt við að stefnu­mótun sé sam­hæfð í þeim mála­flokkum sem helst hafi áhrif á fram­leiðni og sam­keppn­is­hæfni, en Sigurður Hann­es­son fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins ræddi einmitt um þörf­ina á nýrri atvinnu­stefnu fyrir Ísland í við­tali við Kjarnann í lok síð­asta sum­ars.[links]

„Mála­flokk­arnir sem einkum þarf að sam­hæfa og gera þannig úr garði að þeir styðji hver við annan eru menntun, inn­viðir, nýsköpun, starfs­um­hverfi og orka og umhverfi. Með atvinnu­stefnu er lagður grunnur að upp­bygg­ingu til að styðja við efna­hags­lega vel­sæld en slík stefna getur ekki síður verið rauður þráður í stefnu­mótun hins opin­bera. Þannig er hægt að ná sam­ræmi í ólíkum mála­flokkum svo opin­berir fjár­munir nýt­ist á sem hag­kvæm­astan hátt og dregið sé úr sóun,“ segir í ályktun iðn­þings.

Lesa má helstu áhersluatriði Samtaka iðnaðarins hér að neðan:

Starfs­um­hverfi:

  • Beita af fullum þunga fjár­málum ríkis og sveit­ar­fé­laga til þess að skapa kröft­uga við­spyrnu fyrir hag­kerfið inn í nýtt hag­vaxt­ar­skeið. Gæta að því að for­gangs­röðun sé rétt.
  • Létta álögum af fyr­ir­tækjum eins og kostur er, m.a. lækkun trygg­inga­gjalds og fast­eigna­skatta á atvinnu­hús­næði.
  • Beita tækjum pen­inga­stjórn­unar enn frekar til þess að skapa skil­yrði fyrir auknar fjár­fest­ingar og vöxt í inn­lendri eft­ir­spurn. Lækka vexti frekar og auka aðgengi fyr­ir­tækja að fjár­magni.
  • Bætt eft­ir­lit með lögum um hand­iðnað með áherslu á aukna skil­virkni og með­al­hóf. Vinna áfram að mark­vissri end­ur­skoðun á gild­andi reglu­verki með það að mark­miði að ein­falda reglu­verk og draga úr óþarfa reglu­byrði.
  • Tryggja að raf­orku- og flutn­ings­verð raf­orku á Íslandi sé alþjóð­lega sam­keppn­is­hæft.

Innviðir:

  • Sameina bygg­ingar-, hús­næðis-, skipu­lags-, sveit­ar­stjórnar- og sam­göngu­mál undir eitt ráðu­neyti inn­viða.
  • Auka nýfjár­fest­ingar og við­hald í inn­viða­kerf­inu. Nýta sam­vinnu­leið hins opin­bera og einka­að­ila við upp­bygg­ingu inn­viða.
  • Fram­lengja átakið „Allir vinna“, a.m.k. út árið 2022. SI munu áfram beita sér fyrir því að nei­kvæð fjár­hags­leg áhrif á verk­samn­inga vegna vísi­tölu­breyt­inga í tengslum við átakið verði leið­rétt.
  • Tryggja stöðuga upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis með því að auka fram­boð á nýju bygg­ing­ar­svæði, bæta raf­ræna stjórn­sýslu, tryggja aðgengi að gögnum og stytta tíma­fresti.

Nýsköpun:

  • Gera breyt­ingar á lögum um stuðn­ing við nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki, hækkun þaks og end­ur­greiðslu­hlut­fall vegna rann­sókna- og þró­unar, ótíma­bundnar.
  • Hækka skatta­frá­drátt vegna fjár­fest­inga ein­stak­linga í sprota­fyr­ir­tækjum úr 75% í 100% til að virkja einka­fjár­magn í fjár­fest­ingar í frum­kvöðla­starf­semi og nýsköpun.
  • Auka enn frekar fram­lög til Tækni­þró­un­ar­sjóðs og taka mið af mæl­an­legum mark­miðum um úthlut­un­ar­hlut­fall þannig að fram­lög taki mið af eft­ir­spurn.

Menntun:

  • Opna aðgengi starfs­mennt­aðra að háskóla­námi og vinna gegn kerf­is­lægum vanda starfs­mennt­unar er varðar náms­fram­vindu, náms­lok og tæki­færi nem­enda til fram­gangs að námi loknu. Ljúka inn­leið­ingu raf­rænna fer­il­bóka í öllum greinum á árinu 2021.
  • Greiða götu þess að fram­kvæmdir við bygg­ingu nýs Tækni­skóla verði hafnar á árinu 2022.
  • Innleiða hvata þannig að háskólar útskrifi fleiri nem­endur í STEM greinum.
  • Setja aukna áherslu á að bregð­ast við fjöl­breyttum vanda í mennta­kerf­inu, með því að huga að stöðu drengja, styrkja stöðu kenn­ara og bregð­ast við fjár­skorti hjá skólum sem bjóða upp á iðn­nám og jafna stöðu þess gagn­vart hefð­bundnu bók­námi.

Nálgast má upp­töku af Iðnþingi hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár