„Hafið er nýtt kapphlaup á Íslandi“

Þing­maður Vinstri grænna hvetur Alþingi til að tryggja að vind­orku­kapp­hlaupið endi ekki úti í mýri. „Við skulum hafa gamla Trabant-kjör­orðið í heiðri: Skyn­semin ræður.“

Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður VG.
Ari Trausti Guð­munds­son, þing­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Ari Trausti Guð­munds­son, þing­maður Vinstri grænna, segir að nýtt kapp­hlaup sé hafið á Íslandi. „Það eru 30 til 40 vind­orku­kostir til skoð­unar og mjög margir í erlendri eigu. Þetta eru stórar vind­myllur í hnapp, eins og menn vita, 100 til 200 MW hver. Meðaltal afls þeirra allra, ef þetta er reiknað út, er 4.500 til 5.000 MW, það er tvisvar sinnum meira en virkjað afl núna.“

Þetta sagði hann undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni. Telur hann að kostir og gallar vind­orku séu margir en hann sagð­ist á þingi ekki ætla ekki að rekja þá – en þó minna á að kolefn­is­fót­spor vind­orku­vera megi ekki gleym­ast í öllu þessu.

Lagði hann áherslu á fjögur atriði. Í fyrsta lagi að vind­orka kæmi vissu­lega til greina í bland við jarð­varma og vatns­afl. Í öðru lagi að að fyrir lægi ávallt að orku­nýt­ing vind­orku­lunda væri í sam­ræmi við orku­þörf hverju sinni og sjálf­bæra auð­linda­nýt­ingu. Í þriðja lagi að vind­orka lyti sam­ræmdu skipu­lagi og heild­rænni nálgun, enda væri það for­senda sjálf­bærrar orku­nýt­ingar og orku­fram­leiðslu. Í fjórða og síð­asta lagi að til væri svæða­skipu­lag, það er þannig að það væri ljóst að höfð sé heild­ar­stjórn á öllu saman.

„Það liggja fyrir tvö þing­mál, þings­á­lykt­un­ar­til­laga um svæða­skipu­lag og breyt­ingar á lögum um ramma­á­ætlun. Í svæð­is­skipu­lag­inu er það þannig að ekki eru heimil vind­orku­ver á 31 pró­sent af land­inu. Til álita koma þau á 53 pró­sent af land­inu og er það þá undir ramma­á­ætlun og ráð­herra sjálfum. Á for­ræði sveit­ar­fé­laga og ann­arra stjórn­valda eru þá 16 pró­sent. Það eru svokölluð græn svæði,“ sagði hann og hvatti að lokum Alþingi til að tryggja að vind­orku­kapp­hlaupið end­aði ekki úti í mýri. „Við skulum hafa gamla Trabant-kjör­orðið í heiðri: Skyn­semin ræður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár