Óvíst hvort íslensk lán til Havila fáist greidd að fullu

Havila rekur 27 skip sem þjónusta olíuiðnaðinn í Norðursjó. Sá markaður hefur hrunið á undanförnum mánuðum.
Havila rekur 27 skip sem þjón­usta olíu­iðn­að­inn í Norð­ur­sjó. Sá mark­aður hefur hrunið á und­an­förnum mán­uðum. Mynd: Wikipedia

Arion banki segir að það sé óvíst eins og mál standi hvort 4,5 miillj­arða króna lán bank­ans til norska félags­ins Havila Shipping ASA fáist greitt að fullu. Tíminn einn verði að leiða í ljós hvort svo verði. Íslands­banki, sem tók þátt í rúm­lega sjö millj­arða króna sam­banka­láni til Havila í lok árs 2013, vill ekki tjá sig um stöðu lán­veit­ingar sinnar til Havila á þess­ari stundu.

Í vik­unni hefur Kjarninn greint frá því að hluti kröfu­hafa Havila hafi hafnað til­lögu um end­ur­skipu­lagn­ingu á skuldum félags­ins sem setji fram­tíð þess í mik­inn vafa. Á mið­viku­dag til­kynnti Havila, sem skráð er í norsku Kaup­höll­ina, að félagið hefði fært niður virði skipa­flota síns, sem telur 27 skip, um 21 millj­arð íslenskra króna.

Havila hefur verið eitt af leið­andi félögum í þjón­ustu við olíu­iðn­að­inn í Norð­ur­sjó á und­an­förnum árum. Olíu­vinnsla þar hefur dreg­ist gríð­ar­lega saman á und­an­förnum miss­erum vegna lækk­unar á heims­mark­aðs­verði á olíu, sem hefur farið úr um 115 dölum sum­arið 2014 í um 30 dali í dag. Þum­al­putta­reglan er sú að heims­mark­aðs­verð á olíu þurfi að vera í kringum 60 dali á tunnu til að vinnsla í Norð­ur­sjó borgi sig. Samhliða hefur þjón­ustu­mark­að­ur­inn sem Havila starfar á hrunið.

Grein­ing­ar­að­ilar telja að Havila muni, að óbreyttu, eiga lausafé fram á haust til að halda starf­semi sinni áfram. Eftir það muni félagið ekki geta rekið sig áfram nema ef til komi eft­ir­gjöf skulda. Stjórn Havila til­kynnti í gær að félagið muni halda áfram starf­semi sinni, þrátt fyrir að kröfu­hafar þess hafi hafnað til­lögu um end­ur­skipu­lagn­ing á skuldum félags­ins í byrjun viku. Ákvörð­unin felur í sér að félagið muni halda áfram við­ræðum við kröfu­hafa sína um að ná sam­komu­lagi sem muni gera Havila kleift að standa af sér þá erf­ið­leika sem félagið gengur nú í gegnum. Á meðan að við­ræð­urnar standa yfir mun Havila hvorki greiða vexti né afborg­anir af höf­uð­stólum lána.

Munu upplýsa í næstu viku

Íslands­banki og Arion banki eru báðir á meðal lán­veit­enda Havila. Í júlí 2014 lán­aði Arion banki Havila 300 millj­ónir norskra króna, um 4,5 millj­arða króna. Íslands­banki hafði tekið þátt í sam­banka­láni til Havila upp á alls 475 millj­ónir norskra króna, rúm­lega sjö millj­arða króna, nokkrum mán­uðum áður. Í frétta­til­kynn­ingu frá Íslands­banka sem send var úr í lok árs 2013 vegna þess var haft eftir Vilhelm Má Þor­steins­syni, fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tækja­sviðs Íslands­banka, að þátt­takan í sam­banka­láni til Havila væri mik­il­vægt skref í að auka þátt­töku okkar í þjón­ustu­iðn­aði við olíu og gasleit á Norður Atl­ants­hafi. „Íslands­banki hefur getu til að lána til erlendra verk­efna vegna sterkrar stöðu í erlendum gjald­eyri og styður þannig við frek­ari upp­bygg­ingu íslenskra og erlendra fyr­ir­tækja í atvinnu­greinum þar sem bank­inn hefur sér­þekk­ingu.“

Kjarninn leit­aði við­bragða hjá bæði Arion Banka og Íslands­banka við þeirri stöðu sem komin er upp hjá Havila og hvaða áhrif hún muni hafa á þau lán sem bank­arnir veittu félag­inu. Í svari upp­lýs­inga­full­trúa Arion banka segir að það sé óvíst, eins og mál standi, hvort lánið sem bank­inn veitti í júlí 2014 fáist að öllu leyti inn­heimt. Tíminn verði að leiða það í ljós. „Arion banki metur útlána­safn sitt með reglu­bundnum hætti og tekur til­lit til við­eig­andi upp­lýs­inga í því mati. Í næstu viku mun bank­inn birta árs­upp­gjör og má gera ráð fyrir að þar komi fram upp­lýs­ingar þessu tengdar.“

Arion banki segir að höfnun kröfu­hafa Havila á end­ur­skipu­lagn­ingu á skuldum félags­ins, sem upp­lýst var um í byrjun viku, hefði þau áhrif að nú myndu samn­ings­við­ræður um lausn á vanda félags­ins hefj­ast að nýju. „Áður höfðu allir þeir bankar sem koma að fjár­mögnun á félag­inu sam­þykkt áætlun um end­ur­skipu­lagn­ingu á skuldum félags­ins, það voru eig­endur skulda­bréfa sem skráð eru á skulda­bréfa­markað, sem höfn­uðu því upp­leggi.“

Íslands­banki vildi ekki tjá sig um stöðu lán­veit­inga bank­ans til Havila þegar Kjarninn leit­aði eftir upp­lýs­ingum um því. Bankinn muni hins vegar birta árs­upp­gjör sitt í næstu viku og í kjöl­farið muni hann ræða meira um þau lán sem Íslands­banki tók þátt í að veita Havila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár