Beinn arður af raforku er rýr - Skilar stóriðja, sæstrengur eða eitthvað allt annað mestu?

Ekkert land í heim­inum fram­leiðir jafn mikla raf­orku á mann og Íslandi og hlut­fall end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa af raf­orku­fram­leiðslu er óvíða hærra, eða nær hund­rað pró­sent. Engu að síður hefur beinn arður Íslend­inga af raf­orku­fram­leiðslu verið rýr. Það sést best á því að langstærsti raf­orku­fram­leið­andi lands­ins, Lands­virkjun, hefur í 50 ár greitt um 15 millj­arða króna í arð að núvirði.

Þetta segir í nýjum Mark­aðs­punktum frá grein­ing­ar­deild Arion banka, þar sem spurt er hvernig nýta eigi orku­auð­lindir lands­ins. „Nú er þó tæki­færi til að snúa þessu við svo að eig­endur þess­ara auð­linda njóta beins ágóða. Eft­ir­spurn eftir grænni íslenskri raf­orku hefur lík­lega aldrei verið meiri og fer vax­andi,“ segir í mark­aðs­punkt­unum. „Í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar eru nú virkj­ana­kostir sem gætu fram­leitt um 9 terawattstundir (TWst) af raf­orku árlega og þar með aukið raf­orku­fram­leiðslu á Íslandi um u.þ.b. 50%. Um leið og velt er upp hvort ráð­ast eigi virkj­anir þarf að spyrja: Hvert væri hag­kvæm­ast að selja alla þessa raf­orku?“

Verð fyrir raforku þarf að standast ávöxtunarkröfu

Í grein­ingu Arion banka eru virkj­ana­kostir í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætlun raðað upp eftir núvirtum með­al­kostn­aði, skamm­stafað LCOE. „Ef við tökum sem dæmi Þeista­reyki eftir stækkun, sem er ódýr­asti virkj­ana­kost­ur­inn í nýt­ing­ar­flokki ramma­áælt­unar, er LCOE um 35 banda­ríkja­doll­arar á MWst, sem þýðir að virkj­unin stenst ekki áætl­aða ávöxt­un­ar­kröfu ef raf­orku­verð er undir því. Með öðrum orðum, fjár­magni hefði verið betur varið í annað en virkjun ef raf­orkan verður seld á lægra verði. Ef verð er lægra en LCOE er bein­línis verið að nið­ur­greiða raf­ork­una.“


Um Hvamms­virkjun, sem nýlega var færð í nýt­ing­ar­flokk ramma­á­ætl­unar, segir að miðað við 45 doll­ara núvirtan með­al­kostnað þeirrar virkj­unar þurfi Lands­virkjun að fá meira en hún fær fyrir ork­una í dag til þess að sú virkjun stand­ist ávöxt­un­ar­kröfu. „Lands­virkjun þyrfti að fá hærra raf­orku­verð en í dag eigi sú virkjun að stand­ast ávöxt­un­ar­kröfu. Fyr­ir­tækið hefur gefið út að það stefni á að ná með­al­verð­inu upp í 43 US$/MWst, sem er svipað heild­sölu­verði til heim­ila er í dag. Á því verði myndi ríf­lega helm­ingur kosta stand­ast gefna ávöxt­un­ar­kröfu,“ segir grein­ing­ar­deild Arion banka.

Ekki forsendur fyrir nýju álveri

Í grein­inni er spurt hvort best sé að nýta raf­ork­una í sæstreng, raf­orku eða eitt­hvað annað. Rifjað er upp að hreinn hagn­aður Lands­virkj­unar og ann­arra orku­fram­leið­enda af sæstreng geti numið um 30 millj­örðum króna á gengi dags­ins í dag, stand­ist for­sendur sem meðal ann­ars gera ráð fyrir að 80 doll­arar fáist fyrir hverja MWst. Vísað er í nýlega grein­ingu frá bank­anum þar sem fjallað var um kosti og galla sæstrengs, og kallað eftir frek­ari umræðu um verk­efnið. Tekið er fram að mikil óvissa ríki um hverju sæstrengur gæti skilað og kanna þurfi kost­inn áður en hægt sé að full­yrða nokkuð um hag­kvæmni hans.


„Áliðn­að­ur­inn er stærsti við­skipta­vinur íslenskra orku­fyr­ir­tækja og skapar stóran hluta útflutn­ings­tekna lands­ins. Þrátt fyrir það virð­ast, sem stendur, ekki vera for­sendur fyrir bygg­ingu nýrra álvera hér á landi, m.v. það dæmi sem hér er tekið, sé horft til þess að núvirtur með­al­kostn­aður virkj­ana­kosta er langt yfir því sem stór­iðjan greiðir í dag. Sé miðað við núver­andi með­al­verð Lands­virkj­unar, álf­ram­leiðslu á Íslandi, raf­orku­kaup stór­iðju og heims­mark­aðs­verðs áls (frá London Metal Exchange) í júní sl., er raf­orku­kostn­aður álvera á Íslandi um 25% af tekjum þeirra. Hækki raf­orku­verð álvera upp í 43 US$/MWst, myndi raf­orku­kostn­að­ur­inn fara upp í 42% af tekjum. Því má ætla að álverð þyrfti að hækka umtals­vert ef nýtt álver ætti að borga sig,“ segir grein­ing­ar­deild Arion um hag­kvæmni bygg­ingu nýs álvers á Íslandi.

Kannski skilar eitthvað allt annað mestu

Í lokakafla grein­ing­ar­innar segir að mögu­lega skili eitt­hvað allt annað en stór­iðja eða sæstrengur þjóð­inni mestum ábata. „Þá er einnig mögu­legt að hvorki sæstrengur né álver skili þjóð­inni sem mestum ábata af orku­auð­lindum okkar heldur eitt­hvað allt annað. Aðal­at­riðið er ekki ein­ungis að verk­efni stand­ist ávöxt­un­ar­kröfu heldur einnig að þau skili sem mestri arð­semi til eig­enda íslenskra orku­fyr­ir­tækja – þjóð­ar­innar. Áhugi á orku­auð­lindum Íslend­inga hefur vaxið sam­hliða miklum ferða­mann­straumi sem gerir ósnorta nátt­úru vafa­lítið enn verð­mæt­ari en áður, svo taka þarf einnig til­lit til þess.


Áður en ónýtt orka í terawattavís verður bundin samn­ingum um ný álver, aðra stór­iðju eða sæstreng væri skyn­sam­legt að skoða jafn­framt til hlítar aðra kosti sem skilað geta sem mestum heild­ar­á­bata til þjóð­ar­bús­ins. Hvernig við síðan skiptum þeim ábata milli ríkis, land­eig­enda, sveit­ar­fé­laga og ann­arra hags­muna­að­ila er efni í aðra umræðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár