Frosti vill nýja eigendastefnu sem takmarkar útrásarmöguleika Íslandsbanka

Frosti Sig­ur­jóns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, kallar eftir því að Íslands­banka verði sett ný eig­enda­stefna sem tak­marki mjög mögu­leika bank­ans til þess að fara í útrás til útlanda. Íslands­banki sé orð­inn alfarið rík­is­banki og gera verði við hann nýjan samn­ing um þetta sem fyrst.

Frosti ræddi þetta í ljósi fjár­fest­inga bank­ans og íslenskra líf­eyr­is­sjóða í norskum olíu­iðn­aði, í fyr­ir­tækj­unum Fáfni Offshore og Havila. Eins og Kjarninn hefur greint frá lán­uðu Íslands­banki og Arion banki norska skipa­fyr­ir­tæk­inu Havila háar fjár­hæðir árin 2013 og 2014. Havila rambar nú á barmi gjald­þrots og er í við­ræðum við kröfu­hafa sína um end­ur­skipu­lagn­ingu á skuldum. Sömu sögu er að segja um Fáfni Offshore, sem íslenskir líf­eyr­is­sjóðir og Íslands­banki og Lands­banki hafa fjár­fest veru­lega í.

Frosti lýsti yfir áhyggjum sínum af þess­ari útrás. Það sé stefna þess­ara banka að fara í aðra útrás og fjár­festa erlendis, meðal ann­ars á meðan öll þjóðin sé í höftum. Þá sé ekki verið að dreifa áhætt­unni heldur þjappa henni saman, „inn í ein­hvern geira sem við höfum ekk­ert mikið vit á, norskan olíu­iðnað.“

Þá sagði hann eitt­hvað mikið í ólagi þegar íslenskir líf­eyr­is­sjóðir þjappi áhættu sinni inn í þennan geira. „Hvers vegna þurfa norskir fram­kvæmda­menn í norskum olíu­iðn­aði að leita til Íslands eftir fjár­magni? Er ekki eitt­hvað að? Eru ekki vext­irnir lægri í Noregi? Það er verið að taka áhættu, það er eitt­hvað í ólagi.“

Auk þess sem hann kall­aði eftir því að gerður verði nýr samn­ingur við Íslands­banka og honum settar meiri skorður kall­aði hann eftir því að íslenskir líf­eyr­is­sjóðir komi fram og lýsi því hver þeirra stefna er varð­andi fjár­fest­ingar í útlöndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár