Ísland austursins

For­sæt­is­ráð­herra Pakistan sagði af sér nýlega vegna Panama­lek­ans. Hann er annar þjóð­ar­leið­tog­inn sem hefur þurft að víkja úr emb­ætti vegna gagna­birt­ing­ar­innar, en hinn var Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son.

Nawaz Sharif, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan.
Nawaz Sharif, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Pakistan. Mynd: EPA

Nawaz Sharif sagði af sér for­sæt­is­ráð­herra­stólnum í Pakistan eftir að hæsti­réttur lands­ins úrskurð­aði hann óhæfan til að sinna emb­ætt­inu vegna „óheið­ar­leika“. Sharif er ásak­aður um að fela upp­lýs­ingar um eigin fjár­hag í kjöl­far upp­lýs­inga sem komu í ljós í Panama­skjöl­unum í fyrra og er því annar rík­is­stjórn­ar­leið­tog­inn í heim­inum til hverfa úr emb­ætti af sökum lek­ans á eftir Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Íslands.

Sharif tjáði í vik­unni að paki­stönsk stjórn­mál myndu enda í harm­leik ef kjörnir full­trúar í land­inu héldu áfram að vera vikið úr emb­ætti af öðrum orsökum en kosn­inga­ó­sigri. Það má segja að með brott­hvarfi Sharif úr for­sæt­is­ráð­herra­stól haldi stjórn­mál í land­inu upp­teknum hætti; aldrei hefur for­sæt­is­ráð­herra klárað kjör­tíma­bil með eðli­legum hætti í 70 ára sögu lands­ins. Þetta er í þriðja sinn sem Sharif er vikið úr emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra en tvenn kjör­tíma­bil hans á níunda ára­tugnum end­uðu með því að pakist­anski her­inn – sem hefur sögu­lega haft mikil ítök í stjórn­málum í land­inu – hrakti hann frá völdum; í seinna skiptið með valdaráni leitt af hers­höfð­ingj­anum Pervez Mus­harraf.

Ísland austursins

Brott­hvarf Sharif að þessu sinni er með öðru sniði þó hann sjálfur vilji meina að sömu öfl standi á bak við og áður. Hæsti­réttur lands­ins var ein­róma í úrskurði sínum um að það að Sharif hafi verið á skrá sem stjórn­ar­for­maður í fyr­ir­tæki sonar síns í Dubai og fengið þrjú þús­und Banda­ríkja­dali í mán­að­ar­leg laun fyrir vikið – þó án þess að snerta pen­ing­inn að eigin sögn – án þess að upp­lýsa um það hafi verið nægi­leg ástæða til að dæma hann óhæfan til að sinna emb­ætt­inu af sökum „óheið­ar­leika“. Ákvæðið í stjórn­ar­skránni sem hæsti­réttur not­að­ist við til að ígrunda ákvörðun sína setur kröfur til stjórn­mála­manna um „heið­ar­leika“ en það hefur verið hunsað að miklu leyti frá því að fyrr­ver­andi ein­ræð­is­herr­ann Muhammad Zia-ul-Haq setti það í stjórn­ar­skránna á níunda ára­tugnum vegna þess hversu erfitt er að túlka hug­takið.

Það sem liggur að baki brott­hvarfi Sharif kann að virð­ast smá­vægi­legt en teng­ist stærri spill­ing­ar­á­sök­unum sem eru nú í rann­sókn og til komnar vegna leka Panama-skjal­anna í fyrra. Nawaz Sharif kemur sjálfur aldrei fram með nafni í Panama-skjöl­unum en þrjú barna hans, þau Maryam, Hasan og Hussain, gera það í tengslum við kaup á lúxús­í­búðum í Mayfair-hverf­inu í Lundúnum með pen­ingum sem geymdir voru í skatta­skjólum. Kaupin á íbúðum áttu sér stað í byrjun tíunda ára­tug­ar­ins en Maryam, sem var undir lög­aldri á þeim tíma, var skráð sem eig­andi tveggja fyr­ir­tækja á Bresku Jóm­frú­areyjum sem stóðu fyrir kaup­unum. Maryam, sem var lengi talin efni­leg stjórn­mála­kona og lík­leg til að taka við af föður sínum, var fyrr í sumar grunuð um að falsa skjöl sem sýna tak­mark­aða hlut­deild hennar í fyr­ir­tækj­unum umræddu í „fontgate“-mál­inu svo­kall­aða; skjöl sem áttu að vera frá árinu 2006 voru skrifuð með Calibri-let­ur­gerð Microsoft sem kom ekki form­lega út fyrr en 2007. Umfang tekja og eigna Sharif-fjöl­skyld­unnar á eftir að koma betur í ljós en það virð­ist sem þær nema langt umfram það sem Nawaz Sharif, sem hefur sam­an­lagt setið lengur en nokkur annar for­sæt­is­ráð­herra í Pakistan, hefur upp­lýst um. Nawaz Sharif hefur þannig hlotið þann vafa­sama heiður að verða annar rík­is­stjórn­ar­leið­tog­inn í heim­inum til hverfa úr emb­ætti af sökum Panama-skjal­anna á eftir Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Íslands.

Lengi lifi Sharif?

Stuðn­ings­menn Sharif hafa sakað her­inn um að standa á bak við rétt­ar­höldin og tala þeir opin­skátt um sam­særi gegn sér. Sér­stak­lega hefur stefna Sharif að bæta tengsl við Indland fallið illa í kramið hjá hernum en stjórn­mála­sam­band land­anna tveggja hefur verið mjög stirt í ára­tugi. Sharif hefur brugð­ist við úrskurð­inum með því að efna til eins konar mót­mæla­göngu með því að ferð­ast í bíla­lest frá höf­uð­borg­inni Islama­bad til Lahore, höf­uð­borg Punjab-hér­aðs og bak­land Sharif, til að sýna styrk sinn og vin­sældir.

Þá hefur Nawaz Sharif til­kynnt að yngri bróðir hans, Shehbaz Sharif, sem er rík­is­stjóri í Punjab-hér­aði, muni taka við kefl­inu sem for­sæt­is­ráð­herra og leið­togi flokks­ins Pakistan Muslim League (PML-N). Búist er við að Shehbaz muni taka við eftir tæpa tvo mán­uði en hann þarf fyrst að verða form­lega kos­inn í þing­sæti bróður síns og í milli­tíð­inni er það elds­neyt­is­ráð­herra Pakistan, Shahid Khaqan Abbasi, sem mun gegna emb­ætt­inu.

Imran Khan, fyrr­ver­andi krikkethetja og leið­togi stjórn­ar­and­stöðu­flokks­ins Pakistan Tehreek-e-Insaf (PTI), var í broddi fylk­ing­ar­innar sem kall­aði eftir rann­sókn á meintri spill­ingu Sharif og segir brott­hvarf for­sæt­is­ráð­herr­ans styrk­ingu fyrir lýð­ræðið í Pakistan. Líklegt er að Khan muni njóta góðs af skandal­anum í kosn­ingum sem eiga að fara fram á næsta ári og mun hann eftir bestu getu bjóða sig fram sem val­kost við hinn spillta flokk Sharif-fjöl­skyld­unnar, PML-N, sem hann segir hafa rænt landið í þrjá­tíu ár.

Þó svo að Nawaz Sharif hafi horfið úr emb­ætti eru það ákveðin ummerki um fram­för lýð­ræðis í land­inu að það hafi gerst án beinnar til­komu hers­ins. Þegar Sharif vann stór­sigur í kosn­ing­unum 2013 var það í fyrsta sinn sem lýð­ræð­is­lega kjörin rík­is­stjórn tók við af annarri. Ef kjós­endur frekar en her­inn fá að ákveða hvernig eigi að hreinsa til í stjórn­málum lands­ins í næstu kosn­ingum gæfi það land­inu stöð­ug­leika sem það hefur ekki haft lengi.

Þörf á jafnvægi innan lands sem utan

Þó ber að nefna að hvort sem for­sæt­is­ráð­herra Pakistan eftir næstu kosn­ingar heiti Shehbaz Sharif eða Imran Khan er búist við að tengsl rík­is­stjórn­ar­innar við her­inn bæt­ist. Það gæti skipt sköpum fyrir utan­rík­is­stefnu lands­ins og hvernig ræt­ist úr stríð­inu í Afganistan. Banda­ríkin hafa áður kennt pakist­anska hernum um að styðja Talíbana, þó svo að pakist­anski her­inn hafi þver­tekið fyrir það, en álíta hann samt sem áður sem lyk­il­sam­starfs­að­ila í stríð­inu gegn hryðju­verkum. Þá er ólík­legt að tengsl Pakistan og Indlands haldi áfram að bæt­ast ef her­inn fær aukin ítök í stefnu­mótun.

Efna­hagur Pakistan hefur vænkast tölu­vert í stjórn­ar­tíð Nawaz Sharif og mun áfram­hald­andi aukn­ing í hag­vexti velta mikið á kín­verskum fjár­fest­ingum í hinu þrjú þús­und kíló­metra löngu inn­viða­belti China-Pakistan Economic Corridor (CPEC) sem mun teygja sig frá landa­mær­unum í norðri til hafn­ar­borga við Arab­íu­haf í suðri. Að finna jafn­vægi á milli nán­ari tengsla við Kína og þess að reyna í auknum mæli að njóta góðs af hinu ört vax­andi hag­kerfi á Indlandi verður áskorun fyrir næstu rík­is­stjórn, sér­stak­lega í ljósi þess að Kína og Indland hafa lengi eldað grátt silfur saman í alþjóða­sam­skiptum. Pakistan er í öryggis-, stjórn­mála- og efna­hags­stöðu sem hefur ýmsar hættur í för með sér en jafn­framt gríð­ar­lega mögu­leika. Það er von­andi að atburðir sum­ars­ins hafi ekki langvar­andi nei­kvæð áhrif á lýð­ræð­is­legan og efna­hags­legan stöð­ug­leika lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár