Árangurinn er í höfn
Á dögunum var Stöð2 með frétt um máli sem oft hefur komið inn á borð Neytendasamtakanna. Ég var viðmælandi hjá Nadine Guðrúnu Yaghi sem hefur sýnt neytendamálum mikinn áhuga í efnistökum sínum.
Fréttin fjallaði um að sumar búðir í miðbænum stilla upp lágmarks-áfengum bjór í öndegi eins og um sé að ræða sterkan bjór. Margir ferðalangar kannast ekki við áfengis-einokunarkerfið okkar og standa í þeirri trú að þegar þeir kaupa kassa af bjór í 10-11, þá sé það áfengur bjórkassi eins og í heimalandinu.
![]()
Fjölmargar kvartanir hafa borist vegna þessa og íbúar í miðbænum kannast margir við að hafa bent glaðhlakkaralegum ferðalöngum á að bjórinn sem þeir eru með í kippu, innihaldi lágmarks áfengismagn. Viðbrögð ferðalanga eru á einn veg og má lýsa sem undrunarblandinni spælingu.
í fréttinni var fjallað um þetta mál og ég sýndi vandamálið og endaði með að stilla upp heimagerðu upplýsingaskilti sem ég hafði klambrað saman deginum áður.
![]()
Þarna má sjá mig stilla upp heimagerða skiltinu. Það var reyndar stafsetingarvilla á því en hún skrifast algerlega á mig. Ég bjóst ekki við að skiltið yrði lengi þarna og að þessu máli myndi ekkert ljúka þarna.
En viti menn...
Í dag fékk ég senda mynd sem var tekin í búðinni Kvosin, sem var einmitt vettvangur skilta-uppstillingarinnar, og á henni sést að búðareigendurnir þar á bæ hafa tekið á sig rögg og búið sjálf til upplýsingaskilti sem hefur það fram yfir mitt, að það er alveg laust við stafsetningarvillu.
Þetta er frábært og þessu ber að fagna.
![]()
Hérna sannast með góðum hætti að þegar fjölmiðlar sýna neytendamálum áhuga, og eru í góðu sambandi við Neytendasamtökin, þá nást fram breytingar.
Þá getum við hætt að skammast og fagnað þess í stað.
Sigrarnir koma í hænuskrefum en munum að þegar þau eru nógu mörg, þá erum við komin langa leið.

















Athugasemdir