Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Útþynnt tillaga um kjördag

Útþynnt tillaga um kjördag

Baráttufélagi minn til margra ára Kristján L. Möller kastaði fram hugmynd að flýta kosningum 2017 um tvo til þrjá mánuði. Þannig að í stað apríl 2017 yrði kosið í febrúar 2017. Hann rökstyddi þetta með þeim ómögleika að skila fjárlögum og undirbúning stjórnmálaflokka.

Hvað varð um kröfu 22 þúsund mótmælenda á Austurvelli?
Á að fingra það?

Þá verður ekki séð að slík flýting sé til bóta. Þarf ekki annað en minna á samgöngur um Tröllaskaga í febrúar.

En hefur alltaf verið kosið að vorlagi frá 1942?

Júlí 1942 og október 1942 (utanþingsstj)            1
Nýsköpunarstjórn (kosið í jún.´46)
(kosið okt 1949) Stefanía, mynduð án kosninga e. 117 daga    2
Án kosninga Sjfl+Framsókn-kosið í júní 1953
Kosið júní 1956
Kosið vor og haust 1959                        3
1963 kosið í júní
1967 kosið í júní
1971 kosið í júní
1974 kosið í júní
1978 kosið í júní
1979 kosið í okt                        4
1983 kosið í apríl
1987 kosið í apríl
Kosið í apríl 1991
Kosið í apríl 1995
Kosið í maí 1999
Kosið í maí 2003
Kosið í maí 2007
Kosið í apríl 2009
Kosið í apríl 2013

Af þessu sést að fjórum sinnum er kosið á þessu tímabili. En, voru þá ekki vandræði við fjárlagagerð? Skoðum þingbréf SBj. sem ég tel vera Sigurð Bjarnason frá Vigur: (nýsköpunarstjórnin fallin)

-Enginn vafi er á, að þjóðin hafði eindregið vænst þess, að ríkisstjórn Ólafs Thors starfaði áfram. En því miður fór þetta á annan veg. Einn samstarfsflokkurinn, Sósíalistaflokkurinn rauf samstarfið í byrjun haustþingsins.
Við það skapaðist nýr glundroði á Alþingi, nýtt öngþveiti, sem átti upptök sín með brotthlaupi Sósíalistaflokksins og fyrst nú, — eftir 117 daga — tókst að greiða úr.
Afgreiðsla fjárlaga. Auðsætt virðist nú, að afgreiðslu fjárlaga verði ekki lokið fyrir áramót. Fjárveitinganefnd er að vísu langt komin í störfum sínum, en meðan alger óvissa ríkir um, hvað verður ofan á um ríkisstjórn, er nefndinni ókleift að taka ákvarðanir um framlög til verklegra framkvæmda, en útgjöld til þeirra nemur á hverjum fjárlögum milljónatugum. Síðari umræða fjárlaga verður þess vegna að bíða þess að ný ríkisstjórn setjist á laggirnar.
Verður sú stjórn, er nú situr að afla sjer heimildar þingsins áður en því verður gefið jólafrí til þess að greiða út fje í byrjun næsta árs, eftir fjárlögum þessa árs. Mun slíkur háttur hafa verið á hafður stöku sinnum þegar svipað hefur staðið á. - (SBj 1949. Morgunblaðið)

Ég þori að fullyrða að algengara er á Norðurlöndum að kjósa að hausti. Auk þess er í raun verið að fjalla um tilfærslur um 22% útgjalda milli liða í frumvarpinu.

Staðreynd: Tækni og samfélag er þannig að sauðburður hindrar ekki kosninar að vori og tölvur sjá að mestu um formgerð fjárlaga.

 

 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni