Þessi færsla er meira en 8 ára gömul.

Steinsteypukúltúrinn - eða leigumarkaður

Steinsteypukúltúrinn - eða leigumarkaður

Útspil ríkisstjórnarinnar um tilraun til afnáms verðtryggingar er líklegast jóker, merkingalausa spilið í spilabunkanum.

Í ljós er að koma að efnaminni lánahópurinn mun ekki geta nýtt sér afslátt séreignasparnaðar.

Sá hópur getur heldur ekki nýtt sér 25 ára lán, stenst einfaldlega ekki lánhæfismat.

En hvers vegna þurfa allir að kaupa steinsteypu?

Er einhver flokkur sem vill koma með skýra stefnu um félagslegar íbúðir?

Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu eru reyndar að rumska en Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra fæst enn við drumba andstöðunnar.

Sá flokkur sem setur þetta á oddinn í kosningum fær flug í fylgi.

Séreignastefnan er tóm steypa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni