Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Samfylking hafnar samfylkingu utan flokks

Samfylking hafnar samfylkingu utan flokks

Kosning formanns Samfylkingarinnar er ótvíræð og augljós.

Helsti keppinautur Oddnýjar, Magnús Orri Schram var með þessa stefnu:

"Við eigum að skapa nýjan sameiginlegan vettvang fyrir flokksfólk og fólk sem er sammála okkur í pólitík en er utan flokka eða í öðrum stjórnmálaflokkum. Fólk sem hefur frjálslyndi, félagshyggju, femínisma og jöfnuð að leiðarljósi. Fólk sem vill ekki vera hluti af fortíðinni en hefur brýnt erindi við samtímann. Hreyfing með nýja talsmenn með nýjar hugmyndir." 

Og hann heldur áfram:

" Verði ég formaður Samfylkingar þá hyggst ég leiða flokkinn í þessa átt. Samfylkingin á að vera tilbúin að taka alvöru skref í átt til fólks sem er sammála okkur um lykiláherslur í íslenskum stjórnmálum. Við eigum að stofna nýja hreyfingu sem stefnir saman fólki frá miðju til vinstri. Hreyfingu sem rúmar fjölbreyttar raddir og mörg sjónarmið."

Það varð ekki.

Í raun verður litið á Oddnýju sem arftaka Jóhönnu Sigurðardóttur enda studdi hún opinberlega Oddnýju.

Það er svo framtíðin sem geymir gæfu og gjörvuleikann.

Þegar þetta er skrifað raula landsfundargestir lagið

-Ég er kominn heim.-

Ekki er ég viss að allir komi heim á Hallveigastíg.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni