Prófkjörsraunir

Líklegast eru prófkjör á útleið sem aðferð við val frambjóðenda. Sjálfstæðisflokkur er það forn- og formlegur að þar kjósa karla og konur karla. Lítið fer fyrir gildum jafnræðis og frjálslyndis.
Samfylkingin beitir reglum til að beina atkvæðum að "réttlátum" niðurstöðum. Svo stíft að miðaldra hæfileikakona hrapar um tvö sæti. Ef fleirum breytum hefði verið bætt við s.s. fötlun eða eldri borgari er prófkjör orðið skrípaleikur.
Atburðir helgarinnar kennir okkur að barátta minnihlutahópa er sífelld barátta sem ekki tekur enda.
Enn á ný er ljóst að besta aðferð við val á framboðslista er óraðaður framboðslisti eða persónukjör.
En flokkaelítan mun berjast gegn slíkum lýðræðishugmyndum.
Og ekki dettur mönnum í hug að breyta stjórnarskrá til að jafna stöðuna.
Athugasemdir