Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Pínlegt hjá Pírötum í NA

Pínlegt hjá Pírötum í NA

Nú er komið að því að stjórnmálaflokkar velji frambjóðendur á lista fyrir alþingiskosningar.

Auðveldara er að eitthvað fari úrskeiðis. Svanur Kristjánsson hefur bent á ókosti opinna prófkjara og hvernig niðurstöður hafi sundrað og fælt frá.

Píratar sem aðrir þurfa að velja á lista og þeir gera það rafrænt með þessari aðferð:

 12.5. Raða skal á framboðslista samkvæmt úrslitum forgangskosningar með Schulze-aðferð. Þó skal frambjóðendum heimilt að víkja sæti og taka lægra sæti á lista en kjör hans segir til um, og færast þá aðrir frambjóðendur ofar á lista. Starfsmanni er ekki heimilt að taka fyrsta eða annað sæti. Hafni frambjóðandi sæti eða geti af öðrum sökum ekki tekið því skal raða á lista með endurtalningu atkvæða að brottfelldum frambjóðanda. Nægi fjöldi frambjóðenda að þessum breytingum loknum ekki lögbundnu lágmarki fyrir fullskipaðan framboðslista er ábyrgðaraðila listans heimilt að bæta nöfnum þeirra sem það samþykkja í sæti á eftir þeim sem kjörnir hafa verið á framboðslistann.-

Þetta er í raun afbrigði af forgangsröðun (STV) en ekki nauðsynlegt að merkja við alla frambjóðendur.

Þegar framboðsfresti lauk höfðu borist tólf framboð, tíu karlmenn og tvær konur. 

Og nú er vandi.

Kjörstjórn er heimilt að bæta við á listann og strax orðið ljóst að svo verður gert.

Niðurstaðan getur skipt máli fyrir fylgi Pírata í kjördæminu.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni