Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.
Litla-Stórahorn Framsóknarflokksins

Útvarpsþættir minna okkur á baráttu Indjána og landnema um landið og gæði þess.
Metnaðarfullur hershöfðingi Custer að nafni fór of geyst og lenti í sjálfheldu við Litla-Stórahorn, hæð sem hann taldi getað varist þar til hjálp bærist.
Framsóknarflokkurinn er í svipaðri útrýmingarhættu eftir miðstjórnarfund sinn á laugardag.
Flestir utan Höskuldar Þórhallssonar virðast fastir í meðvirknishami formanns flokksins.
Ef fer sem horfir verða þingmenn flokksins "stráfelldir" í komandi kosningum.
Kannski vaknar flokkurinn þegar nær dregur kosningum en útlitið er svart.
Framsóknarflokkurinn er í bóndabeygju.
Athugasemdir