Þessi færsla er meira en 8 ára gömul.
Launþegar vígbúast

Þó nú njóti þjóðin sumar og leikja er harkan ekki langt undan. Grunnskólakennarar höfnuðu með miklum meirihluta atkvæða nýjum kjarasamningum og ASÍ boðar aðgerðir jafnvel verkföll með haustinu. Allt gerist þetta væntanlega í skugga alþingiskosninga svo ríkisstjórn telur sig umboðslausa til að liðka fyrir deilunni.
Einfaldasta leiðin er að draga úrskurð kjaranefndar vegna launa forstöðumanna stofnanna. Sem dæmi fékk skólastjóri Lögregluskólans 33% hækkun. Þar með er hann á um 50% hærri launum en skólastjórar fjölmennustu grunnskólanna.
Ekki friðar þetta kennara.
Staðan er svipuð og 1984 eða 2004. Atburðarásin gæti orðið svipuð.
Þið lásuð það fyrst hér.
Athugasemdir