Getur forseti lagt frumvarp fram á alþingi?

Í 25. grein stjórnarskrárinnar segir: 25. gr. Forseti lýðveldisins getur látið leggja fyrir Alþingi frumvörp til laga og annarra samþykkta.
Fyrsta spurning: Hver myndi sá vera? Í fljótu bragði væri það ráðherra viðeigandi málaflokks enda ríkisstjórn ekki fjölskipað stjórnvald. Ekki er útilokað að hann leggi þetta í hendur þingmanns enda sá einnig hluti löggjafarvalds.
Eins og staðan er nú þá hefur absalút merking 13. greinarinnar "Forsetinn lætur ráðherra framkvæma vald sitt." dofnað.
Ef forseti óskar eftir því að ráðherra leggi fram frumvarp er ráðherra að framkvæma vald forsetans. Núverandi forseti hefur einmitt áréttað að forseti hafi sterkara boðvald frá þjóðinni en einstakur ráðherra sem kjörinn er á þing með mun færri atkvæðum. (ÓRG Sprengisandur 19.6.2016).
Þá er nálægð 25. greinarinnar við þá 26. grein athyglisverð. Nánast tvíund lagagreina.
Af þessu sést að mikilvægt er að kveða skýrar á um valdsvið forsetaembættisins enda samin ný stjórnarskrá sem skýrir þetta, og á ég við tillögur Stjórnlagaráðs 2012 og fékk samþykki í þjóðaratkvæðagreiðslu sama ár.
Það er því verk að vinna og aðkoma nýs forseta mikilvægur hlekkur.
Með aðstoð forseta og þjóðar má "kollvarpa" stjórnarskránni mín vegna.
Athugasemdir