Fyrsta verk Guðna sem forseti

Komandi forseti mun ekki sitja auðum höndum á næstunni. Í Vikulokunum í morgun setti Silja Dögg Gunnarsdóttir fram þá hugmynd að Framsókn legði fram frumvarpið um afnám verðtryggingu sem þingmannafrumvarp. Sjálfstæðismenn væru á móti frumvarpinu.
"Silja játti því og sagði ekkert launungarmál að Sjálfstæðisflokkurinn hefði komið í veg fyrir framgang málsins. Sagðist hún vilja sjá frumvarpið lagt fram og rætt, jafnvel þótt það yrði þá þingmannafrumvarp en ekki ríkisstjórnarfrumvarp. Silja sagði þetta hafa verið rætt innan Framsóknarflokksins og að aðrir væru á sömu skoðun."
Þar með væri ríkisstjórnin fallin.
Forsetinn kæmi þá að málum og myndi væntanlega fallast á lausnarbeiðni forsætisráðherra. Stjórnin sæti sem starfsstjórn fram yfir kosningar.
Eftir kosningar er ekki útilokað að fjögurra flokka ríkisstjórn yrði mynduð.
Athugasemdir