Forsetakosningar: Hver er kostnaður frambjóðenda?

Það verður fróðlegt þegar frambjóðendur til forseta leggja fram kostnað og framlög kosningabaráttu sinnar.
- Lög um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra 2006 nr. 162 21. desember
1. gr. Markmið.
[Tilgangur laga þessara er að kveða á um framlög til frambjóðenda í kjöri til embættis forseta Íslands, til Alþingis og til sveitarstjórna, opinber og almenn fjárframlög til stjórnmálasamtaka og stjórnmálastarfsemi og draga úr hættu á hagsmunaárekstrum og tryggja gagnsæi í fjármálum.]1) Markmið laganna er að auka traust á stjórnmálastarfsemi og efla lýðræðið.-
Hér er sem sagt megin reglan að frambjóðendur beiti ekki aðferðum eða þiggi óeðlileg framlög sem gætu haft áhrif á kosningarnar. Þá er markmiðið einnig að auka traust og efla lýðræði.
Hér er listi (ekki tæmandi) um hvað telst til framlags:
-4. Framlög: Framlög til starfsemi stjórnmálasamtaka eða frambjóðenda eða kosningabaráttu, hvort heldur eru bein fjárframlög eða önnur gæði sem metin verða til fjár, án tillits til þess hvaðan þau koma eða hvers eðlis þau eru. Til framlaga í þessum skilningi teljast allir afslættir af markaðsverði, ívilnanir og eftirgjöf, þar með taldir afslættir af markaðsverði auglýsinga, eftirgjöf eftirstöðva skulda, óvenjuleg lánakjör o.s.frv., [sem og sala stjórnmálasamtaka á vörum og þjónustu á yfirverði].1) Ef afsláttur hefur verið veittur af markaðsverði skal mismunur markaðsverðs og raunverðs tilgreindur sem framlag í reikningum. Önnur framlög, svo sem endurgjaldslaust lán vinnuafls, aðstöðu eða búnaðar, skulu metin til peningaverðs á gangverði eða markaðsverði á hverjum tíma og tilgreind í reikningum á því verði.- [leturbr. gb]
Reikningsuppgjör frambjóðenda er svo með þessum hætti:
-7. gr. [Hámarksframlög, leiðbeiningarreglur og kostnaður vegna kosningabaráttu.]1)
Stjórnmálasamtökum og frambjóðendum er óheimilt að taka á móti hærri framlögum frá lögaðilum en sem nemur [400.000 kr.]1) á ári. Undanþegin slíku hámarki eru þó framlög í formi afslátta svo fremi um sé að ræða almenna afslætti sem veittir eru frá markaðsverði með opinberum hætti og slíkir afslættir séu sérgreindir í reikningum. Lögaðilar, sem inna af hendi framlög til stjórnmálasamtaka eða frambjóðenda, skulu sérgreina heildarfjárhæð slíkra framlaga í ársreikningum sínum. Telja skal saman framlög tengdra aðila.-[leturbr. gb]
Það verður því fróðlegt að skoða uppgjörið eftir að rykið sest.
[mynd með pistlinum er ekki beint tengt efninu]
Athugasemdir