Endurvinnsla stjórnmálamanna

Endurvinnsla er græn stefna og notadrjúg. Ef jarðarbúar eiga að geta lifað á framtíðarjörðinni er hún lífsnauðsynleg.
Ég er ekki jafn viss um endurvinnslu stjórnmálamanna. Orðrómur um endurkomu umdeilds stjórnmálamanns fær þá vængi að um stórtíðindi sé að ræða, jafnvel góðar fréttir.
Eftir því sem kjördagur nálgast blánar yfir Viðreisn.
Gerum ráð fyrir að Viðreisn plokki fylgi af Sjálfstæðisflokki gæti staðan orðið fróðleg eftir kosningar.
Dæmi eru um að klofningskvistar af Sjálfstæðisflokki hafi ekki getað hugsað sér að vinna með þeim flokki. Dæmin sýna einnig að slík framboð hafa runnið aftur inn í móðurflokkinn. Borgaraflokkur og Frjálslyndi flokkurinn auk sérframboð sanna það.
Vandinn nú er að fylgi Viðreisnar kemur ekki eingöngu frá hægri. Samt er samanlagt fylgi Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar á pari við fylgi Sjálfstæðisflokks á góðum degi.
Eins fjarstætt og það virðist þá eykur endurvinnsla Viðreisnar á stjórnarsamstarfi flokksins og Sjálfstæðisflokks.
Frambjóðendur Viðreisnar munu ekki útiloka stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokk, jafnvel stjórnarflokkana.
Meiri líkur en samstarf Sjálfstæðisflokks og Pírata.
Skili fylgi Pírata í könnunum ekki sér í kjörkassana gæti orðið langvinn stjórnarkreppa. Slík kreppa gæti skilað utanþingsstjórn.
Athugasemdir