Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Bókadómur: -Alltaf einn á vaktinni.-

Bókadómur: -Alltaf einn á vaktinni.-

Karl Th. Birgisson er snjall penni. Í þessari bók leiðir hann lesandann um atburði vorsins 2012 hvað forsetakosningar snertir. Hann notar óspart netið sem heimildasjóð. Er reyndar þeirrar skoðunnar að atburðir og heimildir glatist skjótt í svartholi netsins, því sé góður kostur að skrá atburði á bókfell. 

Um leið og höfundur leiðir okkur í gegnum atburði kosningabaráttunnar setur Karl Th. sinn lit á atburði, vitandi það að enginn er hlutlaus frekar óhlutdrægur.

Höfundi tekst vel að greina vandræðagang RÚV í kosningabaráttunni og hvernig reynt var að gera maka Þóru Arnórsdóttur ótrúverðulegan sem fréttamann. Jafnvel af sitjandi forseta!

Kjölfesta bókarinnar að mínu mati er kaflinn þegar sitjandi forseti hefur kosningabaráttuna. Baráttan hófst í frægum Sprengisandsþætti þar sem forsetinn hleypti af öllum kanónum sínum og sparaði ekki púðrið.

Fyrir mér eru skot Davíðs Oddssonar í núverandi forsetaslag skot úr baunabyssu miðað við skothörku Ólafs Ragnars Grímssonar.

Það fer ekki milli mála að í þessari bók slær hjarta höfundar með sitjandi forseta.

Á einum stað segir: " Þórufólk var uppfullt með gleði og vonir - þótt þar væri raunar líka þung reiði og stundum hrein andúð á Ólafi Ragnari - á meðan stuðningur við Ólaf byggðist fremur á þögulli óvissu og ótta, sem honum hafði svo vel tekizt að kynda undir. 

Og þarna birtist líka munurinn á framboðunum. Þóra tapaði með nokkurri reisn, en Ólafur sigraði ekki með neinni reisn." [bls 161-162]

Karl Th. blandar eins og áður segir anda og stemmningu augnabliksins. Þar á meðal opið bréf sem guðfræðingurinn Davíð Þór Jónsson skrifar til Ólafs Ragnars:

" Að lokum spyr guðfræðingurinn forsetann þriggja spurninga:

1. Hefurðu virkilega engan snefil af sómakennd lengur?
2. Hvernig tilfinning er það að vera núna draumaframbjóðandi íhalds, útgerðarauðvalds, Moggaveldisins og síðast en ekki síst Davíðs Oddssonar?
3. Grunaði þig einhvern tímann að í þér sjálfum leyndist svona skítlegt eðli?"-

Ég er ekki viss að forsetanum núverandi hugnist þessi bók. Samt er bókin skrifuð af einlægni og byggir jú á netheimildum sem geyma oft óþægileg orð og atburði.

Góð lesning í sumarfríið en vont að leggja hana frá sér ólesna.

***** stjörnur.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni