20.öldinni lýkur næsta laugardag

Það er vika til forsetakosninga. Þó vika teljist löng í stjórnmálum er nánast orðið ljóst hver verður kosinn. Einnig ljóst að fulltrúi gamla tímans verður ekki kosinn. Fulltrúi sjálfskapaðra yfirstéttar sem hefur orðin "græðgi og ójöfnuð" skrifuð í skjöld sinn.
Fulltrúi forsjáhyggju sem skelfist allar breytingar á gatslitinni stjórnarskrá sem hefur reynst svo gott haldreipi fyrir ofríkjandi stétt til að halda í völdin. Ofríkisstéttin sem tjaldaði í síðasta sinn á Austurvelli í gær 17. júní.
Ofríkisstéttin sem plantaði sínum fulltrúum í allar nefndir, jafnvel orðunefnd sem hefur ekki einu sinni burði að endurheimta orður af dæmdum mönnum.
Þessi ofríkisstétt er á förum. Um leið lýkur 20. öldinni og þjóðin getur farið að líta til framtíðar.
Þessa framtíðarlands.
Athugasemdir