Dorrit Moussaieff segir frá fyrstu árunum í Jerúsalem og ástinni sem hún fann á Íslandi. Einnig í blaðinu: annáll ársins, mataraðstoð fyrir jólin og danskir hönnunarsófar sem ráðuneyti keypti fyrir tæpar sex milljónir.
Dorrit Moussaieff segir frá fyrstu árunum í Jerúsalem og ástinni sem hún fann á Íslandi. Einnig í blaðinu: annáll ársins, mataraðstoð fyrir jólin og danskir hönnunarsófar sem ráðuneyti keypti fyrir tæpar sex milljónir.
Hópur Íslendinga býr í hjólhýsum á iðnaðarplani við Sævarhöfða, þeirra á meðal Lilja Karen Norðquist og Friðmey Helga Ellerts með ársgamla dóttur sína. Einnig í blaðinu: hvernig stjórnarsáttmálinn gæti litið út og hrun VG.
Hátt í þrjátíu konur lýsa því þegar þær fengu ekki þjónustu við alvarlegum heilbrigðisvanda af því að þær voru taldar kvíðnar, ímyndunarveikar eða móðursjúkar. Einnig í blaðinu: Sjálfstæðisflokkurinn í sárum og gjaldþrotaslóð Björns Inga.
Úttekt á baráttunni gegn vindorkuverum er forsíðuefnið, en fram eru komnar 40 hugmyndir um vindorkuver um allt land, flestar á vegum erlendra stórfyrirtækja. Einnig: stefnur flokkanna fyrir kosningar og hjúkrunarfræðingur sem hefur verið 45 ár á bráðamóttökunni.
Starfsfólk bráðamóttökunnar berst upp á líf og dauða allan sólarhringinn, alla daga ársins: „Það er að koma önnur hnífstunga.“ Einnig í blaðinu: formannaviðtöl við Kristrúnu Frostadóttur og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Borgarlínan.
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir missti sonarson sinn í sjálfsvígi, aðeins 15 ára gamlan, og berst fyrir skilningi í skólakerfinu. Einnig í blaðinu: formannaviðtöl við Sigurð Inga Jóhannsson, Sönnu Magdalenu Mörtudóttur og Ingu Sæland.
Hækkandi matvöruverð tekur toll af heimilum á sama tíma og Hagar og Festi greiða milljarða í arð. Einnig í blaðinu: formannaviðtöl við Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur og Svandísi Svavarsdóttur og áhrif Trumps á íslensk heimili.
Vigdís Häsler, fyrrverandi framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, segir Sigurð Inga hafa svikið samkomulag þeirra og ræðir brottreksturinn og baráttu kvenna. Einnig í blaðinu: ólígarkinn sem er kjörræðismaður Íslands í Belarús.
Jón K. Jacobsen, faðir Geirs Arnar sem lést í eldsvoða á Stuðlum, spyr hvernig barn geti dáið í vistun hjá ríkinu. Einnig í blaðinu: áhrif hækkandi húsnæðisverðs og bókablað með Hallgrími Helgasyni.
Yfir 1.500 smáskilaboð milli Þorsteins Más Baldvinssonar og Jóhannesar Stefánssonar draga upp allt aðra mynd en talsmenn Samherja hafa dregið upp. Einnig í blaðinu: arfleifð slitinnar ríkisstjórnar og símtölin vegna brottvísunar Yazans Tamimi.
Fólk sem flúði Gaza til Íslands segir sögu sína, þar á meðal Ahmed Radwan sem særðist lífshættulega í árás og fór í aðgerð án deyfingar. Í sérblaði eru nöfn barna sem látist hafa í árásunum á einu ári.
Foreldrar trans barna segja sögur sínar, þeirra á meðal Guðrún Karls Helgudóttir biskup, en dóttir hennar sagði frá því 14 ára að hún væri trans. Einnig í blaðinu: fyrrverandi starfsmenn Pírata og hagnaður bankanna á hávaxtaskeiðinu.
Hæstaréttardómarar geta hætt á besta aldri en haldið fullum launum í áratugi, sem kallað er „eitt best varðveitta leyndarmálið um óeðlileg sérréttindi á Íslandi“. Einnig í blaðinu: Svandís Svavarsdóttir og Jóna Dóra Karlsdóttir.
Bjarni Benediktsson sló nýjan tón í útlendingamálum og Sjálfstæðisflokkurinn missir fylgi til Miðflokksins í baráttunni um hægrið. Einnig í blaðinu: maður sem lést undir 60 kílóa hurð á hjúkrunarheimili og brottvísun Yazans Tamimi.
Á meðan heimurinn hitnar gæti Ísland kólnað vegna breytinga á hafstraumum og nóbelsverðlaunahafi segir að ríkisstjórnin ætti að grípa strax til aðgerða. Einnig um jöklana, Bláa blettinn, kolefniseiningar og verðbólgu vegna loftslagsbreytinga.
Íslenska heilbrigðiskerfið getur ekki án erlends starfsfólks verið, og margt af því hefur fært fórnir til að komast hingað og jafnvel mætt fordómum. Einnig í blaðinu: lögregluskýrslur um slysið í Grindavík og Rúnar Rúnarsson.
Barnshafandi kona missti unnusta sinn í slysi á Breiðamerkurjökli sem búið var að vara við, og hvergi er haldið utan um slys og dauðsföll ferðamanna. Einnig í blaðinu: Gunnar Magnús Diego, sem kærði nuddara, og mæður gegn morðum.
Tekjuhæsta eina prósent landsins er kortlagt út frá launa- og fjármagnstekjum; fjölskyldan í fjórum af fimm efstu sætunum fékk um 13,5 milljarða í fjármagnstekjur fyrir sjávarútvegsfyrirtæki sem hún seldi.
Systurnar Krista og Alma Héðinsdætur lýsa veruleika barna sem alast upp við vímuefnaneyslu foreldra, í von um að bjarga yngri systkinum sínum. Einnig í blaðinu: nærmynd af Höllu Tómasdóttur og ástæður lækkandi fæðingartíðni.
Millistétt í molum er forsíðuefni blaðsins: háskólamenntaðir einstæðir foreldrar í fullri vinnu á meðallaunum ná ekki endum saman. Einnig: sextán baðlón á teikniborðinu og viðtal við Guðlaugu Elísabetu Ólafsdóttur, nýjan goða.
„Mér fannst þetta bara ofbeldi,“ segir Agnes M. Sigurðardóttir um framkomu karla innan kirkjunnar gagnvart sér sem biskup Íslands, „vegna þess að ég er kona.“ Einnig í blaðinu: Kristinn Hrafnsson um frelsi Julians Assange og strandveiðimenn.
Running Tide sökkti 19 þúsund tonnum af kurli í sjó við Ísland og seldi kolefniseiningar án eftirlits, með samþykki stjórnvalda, en vísindamenn segja aðferðina ekki virka. Einnig í blaðinu: fylgistap Vinstri grænna og Arctic Protein.
Tólf frambjóðendur keppast um að verða forseti Íslands og allt stefnir í að nýr forseti verði kosinn með minni stuðningi en nokkru sinni fyrr. Einnig í blaðinu: banaslys við Reykjanesvirkjun, skaðabætur Björgólfs Thors og nýsköpunarstyrkir.
Slökkviliðið hefur kært forstöðumann áfangaheimilisins Betra lífs fyrir að stofna lífi og heilsu íbúa í hættu í gróðaskyni og íbúar lýsa neyð, vonleysi og vanrækslu. Einnig í blaðinu: viðtal við Höllu Tómasdóttur forsetaframbjóðanda.
Ójöfnuður ríkir í heilsu á Íslandi, segir Alma Möller landlæknir, og fólk sem býr við efnahagslegan skort glímir frekar við langvinna sjúkdóma. Einnig í blaðinu: gjöf Haraldar Johannessen og erlend veðmálafyrirtæki sem herja á ungmenni.
Katrín Jakobsdóttir forsetaframbjóðandi segir frá mistökum, hamingju, missi og væntingum til lífsins í forsíðuviðtali. Einnig í blaðinu: samsæriskenningar um frambjóðendur til forseta og nýr stærsti hluthafi Domino's, auk Hlaupablaðsins.
Ríkissjóður situr uppi með yfir hálfs milljarðs reikning vegna þess að Haraldur Johannessen, fyrrverandi ríkislögreglustjóri, hækkaði lífeyrisréttindi níu undirmanna sinna án heimildar, samkvæmt Hæstarétti. Einnig: forsetaframbjóðendurnir.
Kristinn Hrafnsson segir frá baráttu sinni fyrir réttlæti og kynnum af Julian Assange, sem situr í fangelsi eftir afhjúpun stríðsglæpa. Einnig í blaðinu: starfsmenn lýsa aðstæðum í Alvotech og flóttafólk á Bifröst segir leigusala okra á sér.
Íslenskar konur lýsa fitufordómum og afleiðingum þeirra; Sólveig Sigurðardóttir var send tólf ára í megrunarklúbb þar sem púað var ef hún þyngdist. Einnig í blaðinu: fyrsta kosningaspáin fyrir forsetakjörið og fjármálaáætlunin.
Refskák var tefld í íslenskum stjórnmálum síðustu vikur og Bjarni Benediktsson vann hana þegar hann tók við forsætisráðuneytinu af Katrínu Jakobsdóttur. Einnig í blaðinu: Halla Hrund Logadóttir, Hússtjórnarskólinn og RIFF.
Jón Gnarr vill verða forseti og ætlar að mýkja freka kallinn með kærleikann að vopni. Einnig í blaðinu: Sveinn Bjarnason, sem var læstur inni í íbúð á vegum Akureyrarbæjar í fimmtán ár, og hvort Ísland ætti að ganga úr NATO.
Baldur Þórhallsson lýsir vanlíðaninni áður en hann steig út úr skápnum, en hann og Felix Bergsson stefna á Bessastaði: „Við höfum ekkert að fela.“ Einnig í blaðinu: þróunaraðstoð í Malaví, Haraldur Þorleifsson og búvörulögin.
Hornsteinninn í varnarstefnu Íslands er ótraustur nú þegar Donald Trump hafnar skuldbindingu Bandaríkjanna við NATO-ríki sem borga ekki sinn skerf. Einnig í blaðinu: Landsbankinn og TM, Baldur Þórhallsson og Yvon Chouinard.
Grindvíkingar eru dreifðir um 29 sveitarfélög og leita framtíðarhúsnæðis á meðan verð hækkar og sérfræðingar vara við áhrifum á heilsu þeirra. Einnig í blaðinu: árásin á Árna Tómas Ragnarsson lækni og ADHD í parasamböndum.
Tuttugu forstjórastólar kostuðu tvo milljarða í fyrra, og laun forstjóra og stjórnarformanna hafa hækkað þótt virði hlutabréfa hafi lækkað. Einnig í blaðinu: Bashar Murad, Súðvíkingar og BDSM á Íslandi.
Ívar Örn Ívarsson fór í geðrof 22 ára gamall, var handtekinn í sturtu, fékk hjartastopp og heilaskaða og lamaðist varanlega. Einnig í blaðinu: Friðrik Arngrímsson og varðskipin, Kvika og breytt staða tengdamæðra.
Aðstandendur og starfsmenn Sóltúns lýsa fáliðun, tímaskorti og sóðaskap á hjúkrunarheimilinu, þar sem aðstandendur voru beðnir að þrífa sjálfir á meðan eigendur tóku milljarða út úr félaginu. Einnig í blaðinu: Rafah og Einbúavirkjun.
Elías Pétursson missti bróður sinn og góðan vin þegar Lúðvík Pétursson hvarf í sprungu í Grindavík, og slysið skilur eftir sárar spurningar. Einnig í blaðinu: palestínskir foreldrar sem óttast um börn sín á Gaza.
Minnisblöð sýna að stjórnvöld voru mánuðum saman vöruð við heitavatnsleysi á Suðurnesjum, og nú sitja íbúar í köldum húsum eftir að hraun rann yfir stofnlögn. Einnig í blaðinu: Björg Eva Erlendsdóttir og íslenskukennsla innflytjenda.
Flateyri hefur mótast af hræringum í sjávarútvegi og náttúruhamförum, og blómleg byggð hrundi með sölu kvótans; nú vill unga fólkið nýja framtíðarsýn. Einnig í blaðinu: gæsir lokkaðar á „blóðvöll“ og Eurovision.
Lúðvík Pétursson vélamaður hvarf í sprungu í Grindavík þar sem hann var einn að störfum við hættulegar aðstæður, og fjölskyldan kallar eftir óháðri rannsókn. Einnig í blaðinu: plastbarkamálið og fangi þvingaður til lyfjatöku.
Öld eldsumbrota á Reykjanesskaga ógnar mörgum byggðum, og Grindvíkingar lýsa óvissu, álagi og þreytu. Einnig í blaðinu: Palestínumenn og kynsegin fólk í tjaldi á Austurvelli, einkarekin heilsugæsla og blóðmerar.
Íslenskt heilbrigðisstarfsfólk fékk milljónir frá lyfjarisanum Novo Nordisk á þremur árum, á sama tíma og kostnaður ríkisins vegna offitulyfja fyrirtækisins stórjókst. Einnig í blaðinu: tjaldbúðir á Austurvelli og ráðherrar sem brutu lög.
Dagur B. Eggertsson kveður eftir áratug sem borgarstjóri og hræðist ekki dóm sögunnar, en sér mest eftir leikskólaloforðunum. Einnig í blaðinu: stéttaskipting í Reykjavík, byggingarréttur Sjálfstæðisflokksins og offitumeðferð.