Stundin #84
Stundin #84 21/12/2018

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir lagði eigið líf að veði til að tvíburarnir hennar, Hlynur og Svanur, lifðu af þótt læknar teldu það ómögulegt. Einnig í blaðinu: þúsundir sem búa í iðnaðarhúsnæði og fólkið á vaktinni um jólin.

Stundin #83
Stundin #83 07/12/2018

Bára Halldórsdóttir, sem tók upp samtal þingmanna á Klaustri, stígur fram undir nafni og mynd: „Ég er fötluð, hinsegin kona og mér blöskraði.“ Einnig í blaðinu: skuldauppgjör Róberts Wessmans og hrunmálin gegn Jóni Ásgeiri.

Stundin #82
Stundin #82 23/11/2018

Eigendur stærstu útgerðanna græddu 23 milljarða árið 2017, hafa 714-föld laun fiskverkafólks en greiða lægra skatthlutfall. Einnig í blaðinu: Yanis Varoufakis og glasafrjóvganir Hallgríms Helgasonar og Þorgerðar Öglu Magnúsdóttur.

Stundin #81
Stundin #81 09/11/2018

Barnungar systur greindu frá kynferðisofbeldi föður síns en var gert að umgangast hann, og brotin héldu áfram í þvingaðri umgengni. Einnig í blaðinu: Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Íslands, og saga Skúla Mogensen.

Stundin #80
Stundin #80 26/10/2018

Umfjöllun um Glitnisskjölin heldur áfram eftir 375 daga lögbann: skjölin sýna að Bjarni Benediktsson leiddi viðskipti Engeyinga í meira mæli en komið hafði fram og að afskriftir tengdar þeim nema 130 milljörðum.

Stundin #79
Stundin #79 12/10/2018

Nálgunarbann breytti engu fyrir Þóru Björk Ottesen, sem flúði land með barnið eftir stöðugt áreiti barnsföður síns, og fleiri konur segja svipaða sögu. Einnig í blaðinu: Geir Haarde og Landsdómur og kostnaðurinn við braggann.

Stundin #78
Stundin #78 28/09/2018

Sverrir Örn Sverrisson, 26 ára, svipti sig lífi á geðdeild þótt hann hefði látið vita að hann myndi enda líf sitt; fjölskylda hans segir söguna. Einnig í blaðinu: Svein Harald Øyegard um hrunið og afdrif lykilfólks þess.

Stundin #77
Stundin #77 07/09/2018

Land auðmanna er kortlagt og auðugir aðilar sem hafa keypt upp jarðir víða um land spurðir hvers vegna. Einnig í blaðinu: róttæklingarnir í verkalýðsbaráttunni, GAMMA gegn reglum Seðlabankans og Stefán í Dimmu.

Stundin #76
Stundin #76 24/08/2018

Ómar Ragnarsson lagði ævina undir grínið eftir slys sem reyndist lán í óláni, en gamanið kárnaði þegar hann lagði upp í vegferð til að vernda landið. Einnig í blaðinu: hæstu húsnæðisvextir Vesturlanda og áreitni á netinu.

Stundin #75
Stundin #75 03/08/2018

Rakið er hvernig Bretinn James Ratcliffe hefur keypt upp tugi jarða á Íslandi, með það að markmiði að ná yfirráðum yfir laxveiðiám.

Stundin #74
Stundin #74 13/07/2018

Starfsmaður Hótels Adam segir frá svindli, svikum og réttindabrotum og lýsir því hvernig hótelgestir voru blekktir til að kaupa vatn. Einnig í blaðinu: ungir Íslendingar sem fluttu úr landi og tannlækningar erlendis.

Stundin #73
Stundin #73 22/06/2018

Fámennur hópur safnar gríðarlegum auði: sjö eigendur útgerða hafa sex milljarða í fjármagnstekjur og þeir auðugustu búa á sama svæði. Einnig í blaðinu: nýtt greiðsluþátttökukerfi og hvalveiðar Kristjáns Loftssonar.

Stundin #72
Stundin #72 08/06/2018

Sigurbjörgu Vignisdóttur var rænt af austur-evrópskri mafíu í París og hún beitt ólýsanlegu harðræði, en eftir ítrekaðar sjálfsvígstilraunir fann hún styrkinn á ný. Einnig í blaðinu: ofurlaun bæjarstjóra og hagsmunir borgarfulltrúa.

Stundin #71
Stundin #71 25/05/2018

Fall góðærisins er forsíðuefni blaðsins: ferðaþjónustan, helsti vaxtarbroddur íslensks efnahagslífs, er stöðnuð, 40 prósent hótelherbergja eru til sölu og rútufyrirtæki tapa hundruðum milljóna. Einnig: Steinunn Ýr Einarsdóttir um tíu ár af trúarofbeldi.

Stundin #70
Stundin #70 11/05/2018

Börn eru neydd til umgengni við feður sem grunaðir eru um ofbeldi; sýslumaður sakaði Sigrúnu Sif Jóelsdóttur um að skaða barn sitt með því að lýsa áhyggjum sínum. Einnig í blaðinu: barnaníðsmál prests gert upp hjá biskupi.

Stundin #69
Stundin #69 27/04/2018

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, beitti sér fyrir umgengni föður við dætur sem kölluðu hann „úlfinn“, meðan hann var grunaður um að misnota þær. Einnig í blaðinu: Örvar Harðarson og lán Kópavogs til félags Skúla Mogensen.

Stundin #68
Stundin #68 13/04/2018

Okurlánastarfsemi vex hratt undir litlu eftirliti og Skorri Rafn Rafnsson, eigandi Netgíró, tengist huldu neti smálánafyrirtækja. Einnig í blaðinu: blindir foreldrar, uppgjör Birgittu Jónsdóttur og eyðileggingin í Eldvörpum.

Stundin #67
Stundin #67 28/03/2018

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segist verða fyrir „persónulegum nornaveiðum“ og vill harðari kjarabaráttu og 65 prósenta hátekjuskatt. Einnig í blaðinu: félagsleg undirboð hjá hestaleigum og Birgir Jakobsson landlæknir.

Stundin #66
Stundin #66 09/03/2018

Launakjör íslenskra þingmanna, þau bestu á Norðurlöndum, hafa batnað langt umfram almenning. Einnig í blaðinu: vinir Hauks Hilmarssonar segja sögu hans, akstursgreiðslur Ásmundar Friðrikssonar og kynlífsleikir barna.

Stundin #65
Stundin #65 23/02/2018

Tólf ungar konur á Sauðárkróki segja frá því hvernig sami maðurinn, vinsæll knattspyrnumaður, fór yfir mörk þeirra; tvær kærðu hann fyrir nauðgun en málunum var vísað frá. Einnig í blaðinu: leigufélög GAMMA og Heimavalla.

Stundin #64
Stundin #64 09/02/2018

GAMMA stækkar ört og leggur drög að einkaframkvæmd í innviðum, með sterk tengsl við Sjálfstæðisflokkinn. Einnig í blaðinu: ný lágstétt fólks af erlendum uppruna, Ísold Uggadóttir og nýr aðstoðarmaður dómsmálaráðherra.

Stundin #63
Stundin #63 26/01/2018

Anna Kjartansdóttir ólst upp hjá dæmdum barnaníðingi og stjúpu sem beitti hana ofbeldi, en barnavernd aðhafðist ekkert þrátt fyrir viðvaranir. Einnig í blaðinu: endurkoma Sindra Más Finnbogasonar og starfsfólk Arctic Portal.

Stundin #62
Stundin #62 12/01/2018

Sigríður Andersen dómsmálaráðherra þjarmar að flóttafólki, vill þrengja að fjölmiðlum, leynir upplýsingum og braut lög við skipun dómara. Einnig í blaðinu: hagsmunir Eyþórs Arnalds og Sólmundur Hólm.