Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, faðmar fanga á Litla-Hrauni og kallar þá kærleiksbangsa, en kærði sjálf aldrei manninn sem braut á henni í æsku. Einnig í blaðinu: annáll ársins og ungir strákar í messu.
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, faðmar fanga á Litla-Hrauni og kallar þá kærleiksbangsa, en kærði sjálf aldrei manninn sem braut á henni í æsku. Einnig í blaðinu: annáll ársins og ungir strákar í messu.
Hægrisinnaðir flokkar hafa aldrei fengið fleiri atkvæði í alþingiskosningum á lýðveldistíma, en sundrung er á hægri vængnum. Einnig í blaðinu: lífið á Stuðlum, Lína Birgitta og Bókablaðið.
Ungir menn sem þvældust í gegnum meðferðarkerfi ríkisins á unglingsárunum lýsa lífsháska og niðurbroti áður en þeir náðu bata. Einnig í blaðinu: lífeyrissjóðirnir, þöglu eigendur atvinnulífsins, og nýtt líf í Esjufjöllum.
Endurkoma Jóns Ásgeirs Jóhannessonar er kortlögð: eftir fall Glitnis, gjaldþrot og málaferli er hann snúinn aftur sem stórtækur fjárfestir á matvörumarkaði, í fjölmiðlum og ferðaþjónustu. Einnig: kvöld með Vítisenglum.
Íbúðaverð er sögulega hátt og ungt fólk sér fáa möguleika á að komast inn á fasteignamarkaðinn án aðstoðar foreldra. Einnig í blaðinu: ferðamenn í Reynisfjöru, gervigreind og myndaþáttur frá setningu Alþingis.
Útgerðarmenn eru efstir á Hátekjulistanum um allt land og á toppnum tróna Þorsteinn Már Baldvinsson og Helga S. Guðmundsdóttir, sem áður áttu Samherja. Sex fjölskyldur eiga um helming kvótans.
Íbúar í Vík í Mýrdal segja þar ekkert nema ferðaþjónustu og samfélagið komið að þolmörkum; systkini þurftu að verjast ágangi ferðamanna við útför föður síns. Einnig í blaðinu: samsæriskenningar og nýtt líf Oscars Florez.
Gerður Ósk Hjaltadóttir lýsir síðasta samtalinu við son sinn, Hjalta Snæ Árnason, sem hvarf 22. mars, og ráðaleysinu sem hann mætti alla ævi. Einnig í blaðinu: laun forstjóra og rannsóknarritstjóri The Guardian.
Fjölskyldurnar sem eiga fiskana eru forsíðuefni blaðsins: veiðiheimildir eru að uppistöðu í eigu nokkurra fjölskyldna sem hafa nýtt milljarðahagnað í fjárfestingar, allt frá majónesi til skipafélaga. Einnig: tólf ára barátta við átröskun.
Tólf ára drengur sat einn á bókasafni Breiðagerðisskóla eftir að hafa kvartað undan kennara við skólastjóra, og fleiri nemendur kvarta undan sama kennara. Einnig í blaðinu: Brynjar Barkarson og glæpasagnahöfundar.
Gjaldheimta á ferðamannastöðum hefur snaraukist og erlendir ferðamenn segjast hafa greitt allt að 40 þúsund krónur í bílastæðagjöld á ferð um landið. Einnig í blaðinu: Gunnar Smári Egilsson úti í kuldanum hjá Sósíalistum.
Bylgja Babýlons uppistandari segir ýmislegt benda til þess að mistök hafi verið gerð þegar Leitarstöð Krabbameinsfélagsins greindi leghálssýni úr henni árið 2018. Einnig í blaðinu: John Bolton og einhverfir á vinnumarkaði.
Íbúar á Gaza lýsa hungri, skyndilegri rýmingu, sprengjuregni og örvæntingu þegar Ísraelar herða hernaðaraðgerðir, og hópur Íslendinga reynir að hjálpa þeim. Einnig í blaðinu: hópuppsagnir hjá Climeworks.
Climeworks fangar aðeins brot af því koldíoxíði sem það lofar og losar meira kolefni en það bindur. Einnig í blaðinu: Christian Marclay, strandveiðar í Grindavík og hagsmunir útgerðarinnar á TikTok.
Áratugastríði Björgólfs Thors Björgólfssonar og Róberts Wessman er líkt við leðjuslag; í þeim átökum hefur annar þeirra staðið að leynilegri fjármögnun fjölmiðla og njósnum með aðstoð lögreglu. Hlaupablaðið fylgir.
Najmo F. Finnbogadóttir flúði til Íslands eftir barnabrúðkaup og barðist gegn misþyrmingum á kynfærum stúlkna, en brotnaði niður eftir morðhótanir og sneri heim til Sómalíu. Einnig: sérblað um Bókmenntahátíð í Reykjavík.
Myndlistarmaðurinn Þorlákur Morthens, Tolli, ræðir krabbameinið, sjálfsvinnuna, starfið með föngum og nýrað sem hann gaf bróður sínum. Einnig í blaðinu: áralangt tap á hvalveiðum og Heimilisblaðið um brúðkaup.
Alexandra, trans kona frá Bandaríkjunum, sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi vegna vaxandi andúðar og aðgerða stjórnvalda þar í landi. Einnig í blaðinu: staða Dags í Samfylkingunni og leikir Íslands við Ísrael fyrir luktum dyrum.
Konur gegna æðstu embættum landsins á kvennaárinu 2025 og rýnt er í stöðu kvenna í stjórnmálum, viðskiptalífinu og á heimilum. Einnig í blaðinu: stjórnarmaður Vorstjörnunnar segist leppur og Carbfix einskis virði í bókum Orkuveitunnar.
Ragnar Aðalsteinsson lögmaður varð 14 ára vitni að því þegar hvítliðar réðust á mótmælendur og varði ævistarfinu í baráttu fyrir mannréttindum. Einnig í blaðinu: framlög Sósíalista til Vorstjörnunnar og Carbfix í Hafnarfirði.
Einkarekni leikskólinn Sælukot hagnast og stendur í fasteignaviðskiptum á meðan neyðarástand ríkir í leikskólamálum, en starfsfólk lýsir slæmum aðbúnaði. Einnig í blaðinu: meintur eltihrellir og klofningur Sósíalista.
Íslensk stjórnvöld eru í kappi við tímann að endurmeta ógnir og þörfina á vörnum, en áætlanir eru gamlar og þjóðaröryggisráð óstarfandi. Einnig í blaðinu: Jón Ásgeir snýr sér aftur að fjölmiðlum og andleg veikindi á bráðamóttöku.
Foreldrar menntaðir sem hjúkrunarfræðingur, sálfræðingur, lögfræðingur og leikari vinna á leikskóla, því það var eina leiðin til að koma börnum þeirra að. Einnig í blaðinu: Þorgerður Katrín um varnarmál og Kvennaathvarfið.
Heiða Björg Hilmisdóttir varð óvænt borgarstjóri eftir að pólitísk flétta fyrirrennarans gekk ekki upp og hefur 450 daga. Einnig í blaðinu: sögulegt einvígi Áslaugar Örnu og Guðrúnar Hafsteinsdóttur innan Sjálfstæðisflokksins.
Hjartastopp, hnífstunga og sjálfsskaði: 90 mínútur á bráðamóttöku Landspítalans, þar sem hvert bráðatilfellið rak annað. Einnig í blaðinu: stjórnarformenn ríkisfyrirtækja tengdir stjórnmálum og Ragnar Kjartansson.
Ofurhagnaður bankanna, sem högnuðust um 96 milljarða á síðasta ári, ekki síst á ofurvöxtum, er forsíðuefni blaðsins. Einnig: harmleikurinn í Neskaupstað og sagan af því þegar borgarstjórn Reykjavíkur sprakk.
Thelma Björk Jónsdóttir segir það hafa verið gjöf að eignast son með Downs-heilkenni, en sjokk að finna hnúð í brjósti og fá ekki myndatöku fyrr en mánuðum síðar. Einnig í blaðinu: Víkingur Heiðar Ólafsson og þingmálaskráin.
Íslendingar hafa treyst á Bandaríkin í varnarmálum en nú hótar Donald Trump að taka yfir Grænland, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segir að Ísland megi ekki klemmast á milli Evrópu og Bandaríkjanna. Einnig í blaðinu: Hvalfjörður.
Bláa lónið, verðmætasta ferðaþjónustufyrirtæki landsins, tekst á við viðvarandi hættu af eldgosum og dreifir áhættunni með baðlónum um allt land. Einnig í blaðinu: orrustan um Carbfix í Hafnarfirði og Lífskviða Ásgeirs H. Ingólfssonar.
Þuríður Sigurðardóttir og Steinunn Jóhannesdóttir berjast fyrir rétti almennings til útsýnis á Laugarnestanga, þar sem gert er ráð fyrir allt að tíu metra háum byggingum á landfyllingu. Einnig í blaðinu: efasemdir um kolefnisföngun.
Fyrirætlanir Carbfix eru mun umfangsmeiri en Hafnfirðingum var sagt: allt að 4,8 milljónir tonna af koldíoxíði og velta hátt í 300 milljörðum. Einnig í blaðinu: fólkið hennar Ingu Sæland og brotthvarf Bjarna Benediktssonar.