Níu mæður lýsa aðstæðum fátækra á aðventunni: þær skera enn meira niður og elda ódýran mat en það dugar ekki til. Einnig í blaðinu: bræður sem urðu munaðarlausir á aðventunni, systur sem vísað var til Grikklands og hverjir selja okkur jólin.
Stundin kom út frá 2015 til 2022 og sameinaðist þá Kjarnanum og varð að Heimildinni.
Níu mæður lýsa aðstæðum fátækra á aðventunni: þær skera enn meira niður og elda ódýran mat en það dugar ekki til. Einnig í blaðinu: bræður sem urðu munaðarlausir á aðventunni, systur sem vísað var til Grikklands og hverjir selja okkur jólin.
Lygar og falsanir lágu að baki ættleiðingum barna frá Sri Lanka; Ingunn Unnsteinsdóttir Kristensen og foreldrar hennar óttast að hafa flækst inn í mansal. Einnig í blaðinu: Samherji á Selfossi og þögn um vinargreiða Katrínar Jakobsdóttur.
Sigurlaug Hreinsdóttir berst fyrir umbótum innan lögreglu og telur sér hafa verið fórnað fyrir ímynd stofnunarinnar þegar dóttir hennar, Birna, hvarf. Einnig í blaðinu: kastalinn í Djúpinu, ólögleg urðun plasts og sérblað um bækur.
Þúsund dögum eftir Samherjaskjölin segist uppljóstrarinn Jóhannes Stefánsson ekki sjá eftir að hafa stigið fram og gagnrýnir viðbragðsleysi stjórnvalda. Einnig í blaðinu: skattarannsókn á Samherja, hótanir við Forlagið og sérblað um bækur.
Alma Lind Smáradóttir lifði af þrjú ár á götunni, bjó ólétt í bílakjallara og beið marga mánuði eftir meðferð; barnavernd vildi að hún afsalaði sér barninu. Einnig í blaðinu: fasteignalán þingmanna og flótti frá Rússlandi.
Skipverjar á Júlíusi Geirmundssyni lýsa Covid-túrnum þar sem áhöfninni var haldið fárveikri á sjó, sem olli varanlegu heilsuleysi; málsókn er fram undan. Einnig í blaðinu: He Rulong, sendiherra Kína, og hótun gegn Ragnari Þór Ingólfssyni.
Nemandi í Hagaskóla lýsti í dagbók sinni árið 1970 sambandi við Jón Baldvin Hannibalsson, sem þá var kennari við skólann, og hann sendi henni bréf. Einnig í blaðinu: stelpurnar af Laugalandi og bankarnir græða á hækkandi vöxtum.
Vaxtahækkanir og verðbólga brenna upp eigið fé fólks á verðtryggðum lánum og sérfræðingar og lántakendur vara við verðtryggingu. Einnig í blaðinu: Kristrún Frostadóttir boðar sátt og breytta sýn og saga Nínu, sem endaði í vændi.
Björn Erlingur Jónasson frá Ólafsvík er skattakóngur Íslands og fjármagnstekjur bera uppi íslenska eina prósentið, 3.175 manns á hátekjulistanum. „Ég átti nánast ekki neitt,“ segir Haraldur Ingi Þorleifsson.
Framsóknarflokkurinn, sem þar til nýlega var álitinn táknmynd spillingar, hefur verið endurræstur og laðar nú að sér ungt fólk. Einnig í blaðinu: einhverf án geðheilbrigðisþjónustu, Panama-uppljóstrarinn og dagbók flóttakonu.
Hálfri öld eftir bílslys í Óshlíð rannsakar lögreglan lát Kristins Hauks Jóhannessonar; lík hans var grafið upp og bein hans skoðuð í fyrsta sinn. Einnig í blaðinu: ferðalag íslenskrar síldar til Úkraínu um Panama og Samson Habte frá Erítreu.
Elísabet Jökulsdóttir er með nýrnabilun á lokastigi eftir röð læknamistaka, mál sem talið er afhjúpa fordóma gegn geðsjúkdómum. Einnig í blaðinu: fjármálamiðstöð Alexanders Moshenskys kjörræðismanns í smáíbúðahverfinu.
Leigjendur lýsa heilsuspillandi, ósamþykktu húsnæði sem kostar allt að 75 prósent tekna þeirra; slökkviliðið kallar eitt risið dauðagildru. Einnig í blaðinu: faðir Bjarna Benediktssonar keypti tvisvar ríkiseignir og margföld þétting byggðar.
Actavis græddi á ópíóðafaraldrinum og seldi þriðjung allra morfínlyfja í Bandaríkjunum 2006 til 2012, í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar og undir stjórn Róberts Wessman hluta tímans. Einnig í blaðinu: raunverulegir kaupendur Íslandsbanka.
Íslensk stjórnvöld hafa haldið hlífiskildi yfir Alexander Moshensky, kjörræðismanni Íslands í Hvíta-Rússlandi, gegn viðskiptaþvingunum til að vernda hagsmuni útgerðarinnar. Einnig: vettvangsgrein frá Úkraínu og áfangaheimilið Betra líf.
Íslendingar valda mestri losun gróðurhúsalofttegunda allra Norðurlanda, 56 jöklar eru horfnir og ný náttúruvá getur ógnað mannslífum. Einnig um umhverfið: mengun undir sjókvíum í Dýrafirði, halaklipptir grísir og virkjanir.
Í forsíðuviðtali nýs tölublaðs Stundarinnar boðar Sólveig Anna Jónsdóttir endurkomu sína í stéttabaráttuna og svarar fyrir gagnrýnina. Hún segist ekki ætla að gera sömu mistök og síðast þegar hún hafi verið of vingjarnleg. Hún hafi mætt valdafólki innan verkalýðshreyfingarinnar sem var „nagað af hatri og andúð“.
Ásta Kristín Andrésdóttir hjúkrunarfræðingur var sýknuð af ákæru um manndráp af gáleysi á Landspítalanum en missti allt eftir ákæruna. Einnig í blaðinu: Arion banki tók við Samherjafélögum sem DNB rak og bræður sem misstu báða foreldra.