Stundin #37
Stundin #37 15/12/2016

Stefán Karl Stefánsson og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir endurskilgreina lífið eftir að hann greindist með krabbamein. Einnig í blaðinu: Ellisif Tinna Víðisdóttir um átökin á Biskupsstofu og það sem læra má af Finnum.

Stundin #36
Stundin #36 01/12/2016

Ferð Friðriks Kristjánssonar, ungs manns úr Garðabæ, um farveg fíkniefnanna er rakin þar til hann hvarf sporlaust í Paragvæ. Einnig í blaðinu: afgönsk fjölskylda sem verður send úr landi og Vigdís Grímsdóttir.

Stundin #35
Stundin #35 17/11/2016

Guðmundur Guðmundsson handboltaþjálfari segir heiðarleikann láta undan í samfélaginu og lýsir sigri og sorg eftir Ólympíugull með Dönum. Einnig í blaðinu: dánarorsök Samfylkingarinnar og Thelma Ásdísardóttir.

Stundin #34
Stundin #34 04/11/2016

„Þjóðin getur ekki átt neitt,“ segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, nýr framkvæmdastjóri SFS, sem telur skatta ofbeldi; útgerðarmenn berjast gegn hærra gjaldi fyrir auðlindina. Einnig í blaðinu: nýja hægri blokkin og Mugison.

Stundin #33
Stundin #33 20/10/2016

Í aðdraganda alþingiskosninga 2016 er gert upp við ríkisstjórnina, en tekjuhæstu tíu prósentin fengu skattalækkun á meðan hin níutíu prósentin borga meira. Einnig í blaðinu: Eva Joly um stríðið gegn spillingu og veröld Vítisengla.

Stundin #32
Stundin #32 06/10/2016

„Ósýnilegu“ börnin sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi, þeirra á meðal sextán ára fylgdarlaus drengur sem var vísað frá á Landspítalanum eftir sjálfsvígstilraun. Einnig í blaðinu: nýja fólkið sem stefnir á þing.

Stundin #31
Stundin #31 22/09/2016

Sölumenn óttans: þjóðernishyggja og útlendingaótti rísa og hópur fólks á Íslandi reynir að öðlast áhrif í krafti óttans. Einnig í blaðinu: Kristín Gerður Guðmundsdóttir, sem svipti sig lífi eftir vændið, og Bettý á Ingjaldssandi.

Stundin #30
Stundin #30 08/09/2016

Hvernig hópur vel tengdra manna veitti MS einokunarstöðu og viðheldur kerfi sem kostar þig minnst 80 þúsund krónur á ári. Einnig í blaðinu: fyrrverandi hagstofustjóri Færeyja um uppboðsleiðina og Ragna á Laugabóli.

Stundin #29
Stundin #29 25/08/2016

Eigendur náttúruperla Íslands hagnast um milljarða á aðgengi að þeim um leið og aðgangur almennings er takmarkaður. Einnig í blaðinu: Kári Stefánsson, andstæðingar dýraneyslu á Selfossi og andrúmsloftið á 365.

Stundin #28
Stundin #28 11/08/2016

Maher og Hiba flúðu Sýrland og völdu Ísland því hér er enginn her; þau lýsa meðal annars sprengingunni sem eyddi heimilinu og bátnum sem sökk í Miðjarðarhafið. Einnig í blaðinu: skuggahliðar ferðamennskunnar.

Stundin #27
Stundin #27 28/07/2016

Helena Brynjólfsdóttir stakk af með barnabarnið eftir að norsk yfirvöld ákváðu að setja það í fóstur hjá ókunnugum. Einnig í blaðinu: átökin í fíkniefnadeild lögreglunnar, ferill Vigdísar Hauksdóttur og lífið eftir barnsmissi.

Stundin #26
Stundin #26 07/07/2016

Karlaklíka dómaranna: kunningjaveldi dómstólanna og konurnar sem var bolað burt. Einnig í blaðinu: Eliza Reid um breytingarnar á Bessastöðum, saga strákanna í landsliðinu og hvað Færeyingum finnst skrítið á Íslandi.

Stundin #25
Stundin #25 16/06/2016

Sigurður Bollason fjárfestir lét dagsgamalt barn sitt lána aflandsfélagi 300 milljónir króna; hann og Magnús Ármann hafa tekið milljarða í arð úr skattaskjóli. Einnig í blaðinu: uppgjör á forsetatíð Ólafs Ragnars.

Stundin #24
Stundin #24 02/06/2016

Milljarðalán Landsbankans til Björgólfs Guðmundssonar fór í skattaskjól og var afskrifað, og dóttir hans opnaði bankahólf í Sviss í hruninu. Einnig í blaðinu: Guðni Th. Jóhannesson um föðurmissinn, feimnina og skilnaðinn.

Stundin #23
Stundin #23 20/05/2016

Svona ætlar Davíð Oddsson að verða forseti Íslands: kosningabarátta hans skoðuð innan frá og ímyndin borin saman við ferilinn. Einnig í blaðinu: Andri Snær Magnason, fátæku börnin og arður af einkarekinni heilbrigðisþjónustu.

Stundin #22
Stundin #22 05/05/2016

Foreldrar Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra starfræktu félag í skattaskjóli um árabil og eru í Panama-skjölunum. Einnig í blaðinu: uppruni fjölskylduauðs Dorritar Moussaieff og Halla Tómasdóttir um fortíð sína í viðskiptalífinu.

Stundin #21
Stundin #21 21/04/2016

Panama-skjölin: milljarðaslóð Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Ingibjargar Pálmadóttur rakin í skattaskjól. Einnig í blaðinu: feðraveldið í frystihúsinu, nærmynd af Sigurði Inga Jóhannssyni og fundir forvera hans með yfirmönnum fjölmiðla.

Stundin #20
Stundin #20 08/04/2016

Krosstengdir formenn ríkisstjórnarflokkanna eru forsíðuefni blaðsins, en fjölskylduauðæfi þeirra framkalla hagsmunaárekstra við stjórn ríkisins. Einnig í blaðinu: sjúkrahúspresturinn og forsetaframbjóðandinn Vigfús Bjarni og leikkonan Guðrún Bjarnadóttir.

Stundin #19
Stundin #19 23/03/2016

Frá Héraðsdómi Reykjavíkur til Tortóla: Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiginkona Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, stefndi föður sínum og fékk rúman milljarð. Einnig í blaðinu: Stefán Jón Hafstein og arður lækna af einkarekstri.

Stundin #18
Stundin #18 03/03/2016

Katrín Jakobsdóttir er langvinsælasti kosturinn sem næsti forseti í skoðanakönnun og vill nýta embættið fyrir lýðræði, umhverfi, mannréttindi og menningu. Einnig í blaðinu: átök innan Pírata og Lilja Nótt Þórarinsdóttir.

Stundin #17
Stundin #17 18/02/2016

Samskipti lögmannsins Sveins Andra Sveinssonar við ólögráða stúlkur á Facebook eru rakin; rætt er við ungar stúlkur og samskiptin birt. Einnig í blaðinu: kvenfyrirlitning í framhaldsskólum og plastbarkamálið.

Stundin #16
Stundin #16 04/02/2016

Lögreglan logar í átökum vegna stjórnunarhátta Sigríðar Bjarkar lögreglustjóra og um tuttugu starfsmenn hafa kvartað. Einnig í blaðinu: sjúklingar í einangrun á Landspítalanum og milljarðar Ólafs Ólafssonar.

Stundin #15
Stundin #15 21/01/2016

Ólafur Þór Hauksson kveður stöðu sérstaks saksóknara og ræðir lærdómana, dómana og iðrunarleysi þeirra sem dæmdir hafa verið vegna hrunsins. Einnig í blaðinu: stöðugt tap af hvalveiðum og Hermann Ragnarsson.

Stundin #14
Stundin #14 07/01/2016

Stóra blekkingin, forsíðuefni blaðsins, snýst um bókhaldsbrellur sem álverin hafa beitt í áratugi til að sleppa við að borga skatt til þjóðarbúsins. Einnig: systur sem segja frá ofbeldi móður sinnar og Eldvörp, þar sem HS Orka hefur leyfi til rannsóknarborana.