Stundin #129
Stundin #129 18/12/2020

Árið 2020 er gert upp í annálum, pistlum og viðtölum. Ólafur Jóhann Ólafsson segir frá ferlinum og slagnum við Trump-stjórnina og Bubbi Morthens frá sviptingum lífsins. Einnig í blaðinu: svona þvættuðu Namibíumennirnir féð frá Samherja.

Stundin #128
Stundin #128 04/12/2020

Með úrræði fyrir ungt fólk með geðsjúkdóma fékk Alex Guðjónsson vinnu, hætti neyslu og er nú fastráðinn við Borgarleikhúsið. Einnig í blaðinu: Kristján Vilhelmsson reyndi að láta svipta Helga Seljan Edduverðlaununum.

Stundin #127
Stundin #127 13/11/2020

Tólf eru látnir eftir hópsmitið á Landakoti, þar sem skortur á starfsfólki varð til þess að ekki var hólfað niður. Einnig í blaðinu: umhverfisráðherra svarar gagnrýni á endurvinnslu og þriðja kynslóð kvenna í fíkn sem endaði á götunni.

Stundin #126
Stundin #126 23/10/2020

Plast frá Íslendingum, sem sagt er hafa farið til endurvinnslu, er að miklu leyti brennt og umhverfisslys í Lettlandi tengist íslenska plastinu. Einnig í blaðinu: „umhverfisfyrirtæki ársins“ dreifði plastdrasli og lífið í Farsóttarhúsinu.

Stundin #125
Stundin #125 02/10/2020

Utanríkisráðuneytið hefur farið fram á skýringar frá sendiráði Kína vegna leynilista yfir íslenskt áhrifafólk, og listinn er birtur. Einnig í blaðinu: faraldurinn stóreykur hættu á sjálfsvígum, og aukablað með nýju stjórnarskránni.

Stundin #124
Stundin #124 11/09/2020

Jón Óttar Ólafsson fékk 131 milljón króna fyrir að gæta hagsmuna Samherja gegn Seðlabankanum og hljóðritaði leynilega samtal við fyrrverandi starfsmann bankans sem hafði rannsakað Samherja. Einnig í blaðinu: þrjár konur tilkynntu sama lækninn.

Stundin #123
Stundin #123 21/08/2020

Kristján Vilhelmsson, annar stærsti hluthafi Samherja, reynist helsti fjárfestirinn að baki nýjum miðbæ Selfoss án vitneskju bæjarfulltrúa og íbúa Árborgar. Einnig í blaðinu: Ólafur Ragnar Grímsson starfar fyrir orkufyrirtæki.

Stundin #122
Stundin #122 31/07/2020

Starfsfólk ferðaþjónustufyrirtækisins Sternu var launalaust í fjóra mánuði eftir gjaldþrot sem síðan var afturkallað, og grunur er um kennitöluflakk. Einnig í blaðinu: Kristín Geirsdóttir, nær dauða en lífi eftir árekstur við lögreglu.

Stundin #121
Stundin #121 10/07/2020

Ragnhildur Eik Árnadóttir er ein fimmtán kvenna sem kærðu nuddarann Jóhannes Tryggva Sveinbjörnsson fyrir kynferðisbrot; frænka hans segir hann hafa heilaþvegið sig. Einnig í blaðinu: rasískt kynferðisofbeldi og ferðalög innanlands.

Stundin #120
Stundin #120 19/06/2020

„Forseti á ekki að vera illgjarn,“ segir Guðni Th. Jóhannesson, sem vill breyta stjórnarskránni og varar við stjórnmálum sem sá fræjum ótta og illinda. Einnig í blaðinu: Guðmundur Franklín Jónsson vill afhjúpa nafnlausa elítu.

Stundin #119
Stundin #119 05/06/2020

Um 300 Íslendingar undir 65 ára aldri eru með heilabilun; Jónas Jónasson greindist með Alzheimer 53 ára og Ellý Katrín Guðmundsdóttir 51 árs. Einnig í blaðinu: kynslóðin sem erfir kvótann.

Stundin #118
Stundin #118 22/05/2020

Sex börn eigenda Samherja eignast 110 milljarða króna fyrirtæki og kvótann með, en sleppa við skatt af stórum hluta 70 milljarða gjafakvóta, í stærsta arfi Íslandssögunnar. Einnig í blaðinu: gas- og jarðgerðarstöð Sorpu.

Stundin #117
Stundin #117 08/05/2020

Kolfinna og Katrín Arndísardætur segja í fyrsta sinn sögu sína af því hvers vegna þær slitu samskiptum við Dofra Hermannsson, formann Félags um foreldrajafnrétti. Einnig í blaðinu: stórfyrirtæki sem greitt hafa arð nýta hlutabótaleiðina.

Stundin #116
Stundin #116 24/04/2020

Aðstandendur þeirra tíu sem höfðu látist hér á landi af völdum Covid-19 segja sögur ástvina sinna og lýsa kveðjustund við erfiðar aðstæður. Einnig í blaðinu: ofurlaun forstjóra, börn sem búa við fátækt og saga Eskju.

Stundin #115
Stundin #115 08/04/2020

Vilhjálmur Árnason siðfræðingur og heimspekingarnir Eyja M. Brynjarsdóttir og Sigríður Þorgeirsdóttir meta hvað læra megi af COVID-kreppunni. Einnig í blaðinu: fólk með Covid-19 lýsir lífi í einangrun.

Stundin #114
Stundin #114 20/03/2020

Lífið er breytt: fólk í sóttkví segir frá og lýsir því hvernig það styrkir andlegu hliðina vegna COVID-19, og rekstraraðilar í ferðaþjónustu búast við hruni sem gæti orðið verra en bankahrunið. Einnig í blaðinu: flóttafólk á Lesbos.

Stundin #113
Stundin #113 06/03/2020

Stefán Eiríksson, nýr útvarpsstjóri, vill verja starfsemi og starfsfólk RÚV fyrir utanaðkomandi áreiti og ætlar til að byrja með að hlusta, læra og horfa. Einnig í blaðinu: nærmynd af Ingu Sæland og minning Ragga Bjarna.

Stundin #112
Stundin #112 21/02/2020

Fjórði hver launþegi er án samnings og 97% starfsmanna Landspítalans eru með lausa samninga; verkfall Eflingar er aðeins upphafið að mestu ólgu á vinnumarkaði í áratugi. Einnig í blaðinu: Lilja Sigurðardóttir og óléttan óritskoðuð.

Stundin #111
Stundin #111 07/02/2020

Íslenska ríkið hefur gefið útgerðum og laxeldisfyrirtækjum kvóta að jafnvirði 250 milljarða króna og sumir ríkustu einstaklingar landsins fá persónulega marga milljarða. Einnig í blaðinu: lífshlaup útvarpsstjóra og Hildur Guðnadóttir.

Stundin #110
Stundin #110 24/01/2020

Auður Styrkársdóttir ólst upp með bróður sem hélt heimilinu í heljargreipum án þess að vita að hann væri með geðklofa, og synir hennar glímdu síðar við geðsjúkdóma. Einnig í blaðinu: Arnarlax vill fá laxeldiskvóta gefins.

Stundin #109
Stundin #109 10/01/2020

Najmo Fiyasko Finnbogadóttir var gift frænda sínum ellefu ára gömul, flúði hann tveimur árum síðar og hóf nýtt líf hjá íslenskri fjölskyldu; nú berst hún gegn barnabrúðkaupum og limlestingum kvenna. Einnig í blaðinu: Ólafur Stefánsson.