„Allir dagar eru Kjarnadagar“ segir á forsíðunni. Í leiðara kynnir Þórður Snær Júlíusson ritstjóri nýjan fréttavef Kjarnans og daglegan fréttapóst og greinir frá því að útgáfu vikulega fréttatímaritsins í appinu verði hætt.
Kjarninn kom fyrst út sem vikurit, 2013 til 2014, og síðan sem fréttavefur, þar til hann sameinaðist Stundinni og varð að Heimildinni í ársbyrjun 2023.
„Allir dagar eru Kjarnadagar“ segir á forsíðunni. Í leiðara kynnir Þórður Snær Júlíusson ritstjóri nýjan fréttavef Kjarnans og daglegan fréttapóst og greinir frá því að útgáfu vikulega fréttatímaritsins í appinu verði hætt.
Einkaneysla og innflutningur hafa aukist mikið á skömmum tíma, en hagfræðingur segir neysludrifinn hagvöxt ekki endilega slæman. Einnig: Fríhafnarútboð sem veldur titringi og leiðari um misnotkun Mjólkursamsölunnar á markaðsráðandi stöðu.
Kjarninn birtir svarta skýrslu á vegum Evrópusambandsins þar sem íslensk stjórnvöld eru harðlega gagnrýnd fyrir langvarandi aðgerðaleysi í vísinda-, tækni- og nýsköpunarmálum. Einnig svarar Helgi Seljan sjö spurningum.
Sigurvegarinn í karlaflokki Reykjavíkurmaraþonsins er sakaður um að hafa svindlað og hefur verið kærður. Einnig: Andrés Ingi Jónsson um nýja forystu Evrópusambandsins og ný lán til fyrstu íbúðakaupa.
Viðræður EES-ríkjanna um greiðslur í Þróunarsjóð EFTA eru í hnút og ESB vill allt að þriðjungshækkun. Einnig: Gylfi Magnússon um stöðu efnahagsmála, Kristrún Heimisdóttir um áskoranir Íslands og fótboltamenn sem fjármálaafurðir.
Hátt lóðaverð sveitarfélaganna hamlar uppbyggingu minni og ódýrari íbúða, sem langmest eftirspurn er eftir, á meðan dýrari íbúðir seljast illa. Einnig: vogunarsjóðurinn Burlington, sem jók eignir sínar á Íslandi um 70 prósent árið 2013.
Í eins árs afmælisútgáfu Kjarnans eru greindar fjórar stærstu áskoranirnar sem Íslendingar standa frammi fyrir næstu árin og ritstjórinn fer yfir fyrsta starfsárið. Einnig: Auður Jónsdóttir um fjölmiðlun á átakatímum.
Björgólfur Thor og Novator hafa klárað skuldauppgjör sitt og eiga enn 150 milljarða króna, en Deutsche Bank tapaði meira en 100 milljörðum. Einnig: Dagur Sigurðsson, sem dreymir ekki um að þjálfa íslenska landsliðið, og kókaínhagkerfið.
„Nýtt góðæri fengið að láni“ er yfirskrift forsíðuefnisins: einkaneysla heimilanna er komin á fullt, lántökur aukast og innstæður fara minnkandi. Einnig: utanlandsferðir og risna ÁTVR og Kristrún Heimisdóttir um hvarf alþjóðakerfisins.
Undir yfirskriftinni „Ríkið í ríkinu“ er fjallað um ÁTVR, sem rekur 48 verslanir um allt land, en sala bjórs og léttvíns gæti ratað í matvöruverslanir verði nýtt frumvarp að lögum. Einnig: efnahagsþvinganir og risasektir sem vofa yfir Rússum.
Græn orka er ekki lengur sjálfsögð: vegna sölu orkufyrirtækjanna á upprunaábyrgðum til erlendra kaupenda þurfa notendur hérlendis að greiða sérstaklega fyrir vottaða græna orku. Einnig: viðtal Auðar Jónsdóttur við stjúpdóttur sína og fé Íslendinga á Tortóla.
Landspítalinn hefur samið um kaup á danskri brjóstamjólk handa fyrirburum, en Ísland er eina landið á Norðurlöndunum án brjóstamjólkurbanka. Einnig: vogunarsjóðurinn sem hótar Argentínu þjóðargjaldþroti og á kröfur í þrotabú íslensku bankanna.
Með fríverslunarsamningi Íslands og Kína geta íslenskir neytendur keypt fjölda vörutegunda tollfrjálst í kínverskum vefverslunum. Einnig: afleiðingar þess ef verðtryggingin er ólögmæt og matvæli úr skordýrum.
Bjarni Benediktsson vill dreift eignarhald á bönkum og þak á hámarkseignarhlut svo að sagan endurtaki sig ekki. Einnig: Steve Albini, saga Hróarskeldu og makrílveiðar sem aukast um ríflega 20 þúsund tonn.
Lúxemborg rannsakar Kaupþing, segir á forsíðu, og Kjarninn birtir kæru Samherja á hendur dómara. Einnig: deilihagkerfið, Diambars-akademían í Senegal og stórfyrirtæki sem nota bit Suarez í markaðssetningu.
Kjarninn og Wikileaks birta leyniskjöl úr TISA-viðræðunum og á forsíðu segir að enginn komi í staðinn fyrir Jón Gnarr. Einnig: umfangsmikil lögbrot saksóknara í hlerunarmálum, Stígur Helgason um þjóðmenningu og Portishead.
„Leikurinn hafinn“ er forsíðuefnið: svikalogn er í íslensku hagkerfi og gríðarleg þensla fram undan, og ástandið minnir á árið 2002, upphaf síðasta góðærisskeiðs. Einnig: hæfi dómara í hrunmálum og innflytjendaumræðan.
Það eina prósent Íslendinga sem er með hæstu launin á tíu prósent af hreinni eign heimilanna. Einnig: Auður Jónsdóttir um útlendinga og íslenska pólitík, stofnendur Tiger-keðjunnar og útblástur brennisteinsvetnis.
Píratar eru að festa sig í sessi sem fjöldahreyfing og gömlu valdablokkirnar berjast fyrir lífi sínu, segir í forsíðuefninu „Búúmmm!“. Einnig: kosningaspá Kjarnans, öfgahópar í Evrópuþingskosningunum og Ævispor, sem leitar fjár í Kaliforníu.
Olíuleit Íslendinga gæti haft alvarlegar afleiðingar og grískum bönkum bjóðast betri kjör en íslenskum. Einnig: sæstrengurinn, kosningaspá fyrir Reykjavík og trillukarlinn Heiðar Helguson.
Skuldaniðurfellingin er forsíðuefnið: „leiðréttingin“ tryggði útvöldum arðbær verkefni og framkvæmd hennar kostar hundruð milljóna. Einnig: bréf LÍÚ, sem vildi ekki að Þórólfur fengi að sjá skuldir útgerða, og Katrín Jakobsdóttir um bók Piketty.
Nýtt húsnæðiskerfi stjórnvalda að danskri fyrirmynd og „Ísland verði batterí Breta“. Einnig: útrás danskra sjónvarpsþátta, áhrifamaður sem kvartaði til yfirmanna Jóns Steinssonar og flóttafólk frá Sýrlandi í Líbanon.
Valdafólk ógnar umræðu: margir háskólamenn hafa sætt gagnrýni þess. Einnig: neyðarástand í húsnæðismálum í Reykjavík, fyrrverandi stjórnarmenn 365 sem sömdu sig frá skaðabótamáli og ógnvekjandi staða í Úkraínu.
Íslenska ríkið er umsvifamikill eigandi íbúða og Seðlabankinn og Íbúðalánasjóður eru stærstu eigendurnir, samkvæmt forsíðuefninu „Fasteignasala ríkisins“. Einnig: Reynir Grétarsson um uppgang Creditinfo, Google X og gjaldtaka við náttúruperlur.
Sorgarsaga sparisjóðanna: stærstu sjóðirnir breyttust í fjárfestingarfélög, grunur er um markaðsmisnotkun og umboðssvik og hluti mála hjá ríkissaksóknara er mögulega fyrndur. Einnig: vaxtardraumar Alvogen og Plain Vanilla.
Nýr Evrópusinnaður hægriflokkur, sem ætlar að stokka upp landbúnað og sjávarútveg og verður vel fjármagnaður af einstaklingum, skekur Valhöll. Einnig: kosningaspá fyrir Reykjavík, kaupaukar bankamanna og saga rúmfatakóngsins.
Erlendir hluthafar iðnfyrirtækja vilja flytja þau úr landi, segir í forsíðuefninu „Sjáumst!“. Einnig: lokun fiskvinnslna Vísis á landsbyggðinni eftir hæstaréttardóm, helstu afleikir vinstristjórnarinnar og hvalveiðar Íslendinga.
„Eigi leið þú oss í blindni“ segir á forsíðu um leiðréttingu fjármálaráðherra: efnahagslegar afleiðingar aðgerðanna eru ófyrirséðar og séreign er eytt strax í stað þess að tryggja ævikvöldið. Einnig: milliríkjadeilur Íslands og skýjalausnir.
Skattfé í Hótel Sögu, urðun pappírs sem kostar SORPU um 50 milljónir á ári og viðskiptavild Skipta sem lækkaði um 33 milljarða frá 2008. Einnig: hvarf flugvélar Malaysia Airlines og Svavar Knútur um félagsfælni.
„Björk vill virkja þjóðina“ stendur á forsíðu. Í blaðinu er einnig fjallað um stjórnarflokkana, sem leita sátta en hræðast þjóðaratkvæðagreiðslu, tjón af völdum myglusvepps í nýbyggingum og hagsmuni Íslands í makrílveiðum.
Stjórnarflokkarnir ætla að keyra slit ESB-viðræðna í gegn, en stækkunarstjóri ESB hafnar fullyrðingum forsætisráðherra og þjóðin vill ráða för. Einnig: náttúrupassinn og þegar Icesave truflaði landsliðið í fótbolta.
Baráttan um Ísland: Seðlabankinn logar eftir ummæli forsætisráðherra, fyrirtæki hóta fjármálaráðherra vegna ESB og sagt er frá leynilegri áætlun stjórnvalda um afnám hafta. Einnig: lögreglan á samfélagsmiðlum.
Karlar stýra fjármagni á Íslandi, segir í forsíðuefninu „Heimur karla“: af 88 æðstu stjórnendum í fjármálafyrirtækjum, lífeyrissjóðum og öðrum fjárfestingaröflum eru sex konur. Einnig: ólögmæt gjöld kirkjunnar, Bitcoin og Úkraína.
Margrét Rán Magnúsdóttir, söngkona í hljómsveitinni Vök, segir frá fullkomnunaráráttu sveitarinnar við gerð nýrrar plötu. Einnig: Glitnir vill skrá Íslandsbanka á markað í Noregi, kona sem ætlaði að verða staðgöngumóðir segir sögu sína og Vítalí Klitsjkó.
Nýr bankaskattur fjármagnar skuldaniðurfellingar: stóru bankarnir greiða 8,5 milljarða króna, en ekki með eigin fé, og almenningur borgar með hærri vöxtum. Einnig: PIP-brjóstapúðamálinu gegn Jens Kjartanssyni vísað frá dómi og dramatík í Kristjánsborg.
Sjóðir á vegum GAMMA, að hluta fjármagnaðir af lífeyrissjóðum, stunda stórtæka spákaupmennsku með íbúðarhúsnæði og eiga 350 íbúðir. Einnig: matvælaframleiðendur sem selja innflutt sem íslenskt og Ragnar Kjartansson, sem seldi fyrir milljónir.
Fámennur hópur hefur komið með 147 milljarða í gegnum Fjárfestingarleiðina og notið 25 milljarða króna forskots við kaup á eignum hérlendis. Einnig: Íslandspóstur grunaður um brot á samkeppnislögum, sjálfakandi bílar og söngvari Kaleo í sjö spurningum.
Forsíðufréttin er um handboltakappann Hannes Jón Jónsson, sem var við dauðans dyr eftir mistök á þýsku sjúkrahúsi. Einnig: Háholt fær unga fanga og 400 til 500 milljónir króna, lögreglan leitar ekki rétt að týndum börnum og Auður Jónsdóttir um Facebook.
Íslendingar eiga tugþúsundir skotvopna og byssueign er almenn í undirheimunum. Einnig: hverjir eiga smálánafyrirtækin, ný hrunbók um bankana og Lilja Ósk Snorradóttir, sem óttast hrun í kvikmyndageiranum.