Kjarninn #19
Kjarninn #19 26/12/2013

Í tvöfaldri útgáfu gerir Kjarninn upp árið 2013 í máli og myndum: fréttir ársins, fréttaljósmyndir, kvikmynda- og tónlistarárið, og varaformenn flokka á þingi spá í spilin. Yrsa Sigurðardóttir er viðmælandi vikunnar.

Kjarninn #18
Kjarninn #18 19/12/2013

Þróunaraðstoð Íslands hefur borið árangur og skapar tækifæri til mannsæmandi lífs; Jarðhitaskóli SÞ fær hæst framlög. Einnig: umdeild ummælakerfi, krísur ársins 2013 og Margrét Tryggvadóttir.

Kjarninn #17
Kjarninn #17 12/12/2013

Vigdís Hauksdóttir er viðmælandi vikunnar, segir óvægna umræðu á netinu ekkert bíta á sig og er bjartsýn á að landið rísi á næsta ári. Einnig: Zynga bauð milljarða í Plain Vanilla, dómsmálaráðherra Dana sagði af sér og jólabækurnar.

Kjarninn #16
Kjarninn #16 05/12/2013

Alvarlegasta tölvuárás Íslandssögunnar fól í sér mestu brot á friðhelgi einkalífs Íslendinga sem framin hafa verið. Einnig: tvöföld skráning Íslandsbanka, fimm ár af fjármagnshöftum og Benedikt Erlingsson.

Kjarninn #15
Kjarninn #15 28/11/2013

Brynjar Níelsson þingmaður er viðmælandi vikunnar og segir það glæp í augum margra að græða og tapa peningum; ekki sé víst að hann styðji boðaðar skuldaniðurfellingar. Einnig: milljarðaviðskipti Samherja í Noregi og börn sem túristavara í Kambódíu.

Kjarninn #14
Kjarninn #14 21/11/2013

Stjórnendur Kaupfélags Suðurnesja seldu stofnfjárbréf í Sparisjóði Keflavíkur árið 2008, á sama tíma og kaupfélagið keypti slík bréf fyrir tugi milljóna króna og sat svo uppi með tapið. Einnig: fangar í Rússlandi Pútíns og áfall í Zagreb.

Kjarninn #13
Kjarninn #13 14/11/2013

Ráðamenn í Lúxemborg vildu fé frá Líbíu til að styrkja fjármálakerfið og Líbíumenn voru til í að kaupa starfsemi Kaupþings þar, samkvæmt leynilegri skýrslu. Einnig: rannsókn hætt á Sterling-viðskiptum.

Kjarninn #12
Kjarninn #12 07/11/2013

Laugavegur er ekki lengur draugavegur: árið 2008 stóðu 37 hús auð við Laugaveg og nágrenni, en síðan hefur gatan gjörbreyst og fjölgun ferðamanna átt lykilþátt í því. Einnig: pylsuvagnar í Danmörku tapa fyrir 7-Eleven og fimm verstu byggingaákvarðanirnar.

Kjarninn #11
Kjarninn #11 31/10/2013

Tónlist er íslensk stóriðja: erlendir gestir á Iceland Airwaves eru tvöfalt fleiri en fyrir þremur árum og Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, segir tónlistina hafa mikil efnahagsleg áhrif.

Kjarninn #10
Kjarninn #10 24/10/2013

Fjórir stjórnendur Kaupþings högnuðust um hundruð milljóna króna á stöðutöku gegn krónunni fyrir hrun og gjaldeyrir var notaður til að kaupa eðalvín, samkvæmt áður óbirtri greinargerð. Einnig: Hildur Sverrisdóttir.

Kjarninn #09
Kjarninn #09 17/10/2013

Konur vilja spjalla en karlar kynlíf, samkvæmt úttekt Kjarnans á ríflega 12 þúsund notendum Einkamál.is. Einnig: bankar og sjóðir eiga íslenskt atvinnulíf, sögulegir sigrar landsliðsins og Hreggviður Jónsson um hættulega stöðu þjóðar í höftum.

Kjarninn #08
Kjarninn #08 10/10/2013

Kjarninn birtir „tilboð“ kröfuhafa föllnu bankanna, sem vilja gefa eftir mun minna af krónum en ríkisstjórnin vill. Einnig: áður óbirt gögn í Sterling-málinu, Bang & Olufsen í vanda og Sigurlína Valgerður Ingólfsdóttir, sem vill auka vægi kvenna í tölvuleikjum.

Kjarninn #07
Kjarninn #07 03/10/2013

Jón Gnarr borgarstjóri er viðmælandi vikunnar og segir að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýrinni; hann muni tilkynna um framboð í Tvíhöfða 30. október. Einnig: fimm ár frá hruni, kæruleysi í ársreikningaskilum og hörmungarnar í Naíróbí.

Kjarninn #06
Kjarninn #06 25/09/2013

Samtök Franklins Graham, sem velta um tíu milljörðum króna á ári, koma til Íslands til að alþjóðavæða sína tegund af kristni. Einnig: Skotar og sjálfstæðið, hagsmunir á norðurslóðum, Danske Bank í vanda og Erna Gísladóttir viðmælandi vikunnar.

Kjarninn #05
Kjarninn #05 20/09/2013

Aron Jóhannsson ákvað að spila með bandaríska landsliðinu og er svekktur með yfirlýsingar KSÍ um ákvörðun sína. Einnig: átök bak við tjöldin í Skiptum, leigjendur sameinast og kosningar í Þýskalandi.

Kjarninn #04
Kjarninn #04 12/09/2013

Ný bóla er skrifuð í skýin á húsnæðismarkaði: leiguverð hefur hækkað hratt og stærstu árgangar Íslandssögunnar eru að koma inn á fasteignamarkað. Einnig: kröfuhafar Glitnis vilja svör og sóknarleikur íslenska knattspyrnulandsliðsins.

Kjarninn #03
Kjarninn #03 05/09/2013

Óðinn Jónsson svarar fyrir sig: hann er áhyggjufullur fyrir hönd íslenskra fjölmiðla, segir ummæli Vigdísar „með því verra sem ég hef heyrt lengi“ og getur ekki skýrt furðulega heift Davíðs Oddssonar.

Kjarninn #02
Kjarninn #02 29/08/2013

Drengskaparheit var tekið af bankamönnum: yfirmenn eignastýringa sem stýra hundruðum milljarða króna sitja í sérfræðingahópum en víkja ekki úr störfum á meðan. Einnig: undirskriftasafnanir og ekki-afsökunarbeiðnir.

Kjarninn #01
Kjarninn #01 22/08/2013

Forsíðuefni fyrstu útgáfu Kjarnans er störukeppni stjórnvalda og kröfuhafa, en niðurstaða viðræðnanna ræður örlögum Íslands. Einnig: leki Snowdens, Hanna Birna boðar sveitarfélögum hagræðingu og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir um lýðræðisþróun í Afganistan.