Aníta Arnarsdóttir, 16 ára, á heyrnarlausa foreldra og tjáir tilfinningar sínar best á táknmáli; móðir hennar var í einangrun til ellefu ára aldurs. Einnig í blaðinu: Ari Trausti Guðmundsson og þolendur heimilisofbeldis.
Stundin kom út frá 2015 til 2022 og sameinaðist þá Kjarnanum og varð að Heimildinni.
Aníta Arnarsdóttir, 16 ára, á heyrnarlausa foreldra og tjáir tilfinningar sínar best á táknmáli; móðir hennar var í einangrun til ellefu ára aldurs. Einnig í blaðinu: Ari Trausti Guðmundsson og þolendur heimilisofbeldis.
Íslenskt plast, sem neytendur borguðu gjald fyrir að láta endurvinna, fannst í haug í vöruskemmu í Svíþjóð en er talið með í tölum um endurvinnslu. Einnig í blaðinu: betri geðhjálp í Danmörku og stjórnarsáttmálinn greindur.
Það sem Bergþóra kærði Megas fyrir endurómaðist í texta hans um Litlu ljót. Lögreglan rannsakaði þetta sem blygðunarsemisbrot, talaði ekki við hann og felldi niður málið.
Sala Símans á Mílu til franska sjóðsins Ardian: eigendur Stoða hagnast um rúma sjö milljarða og fyrrverandi framkvæmdastjóri Mílu sér ekki að salan geti gengið upp. Einnig í blaðinu: eigendur útgerðanna taka tvöfalt meiri arð.
Þrjár blokkir fara með völdin í sjávarútvegi samkvæmt gögnunum að baki sjávarútvegsskýrslunni og Guðmundur Kristjánsson í Brimi fer með stærstan hlut kvótans. Einnig í blaðinu: veikt fólk geymt í gluggalausu rými á bráðamóttökunni.
Pandóruskjölin sýna aflandsviðskipti íslenskra athafnamanna: hýsingu fyrir klám og nýnasistaáróður, hagsmunaárekstur hjá Kviku og þotur Icelandair til Tortólu. Einnig í blaðinu: Baldvin í Samherjaskjölunum og heilsugæslan sligast.
Ný Samherjaskjöl eru forsíðuefni blaðsins; meðal annars er sagt frá því að KPMG breytti skýrslu um völd Þorsteins Más Baldvinssonar vegna óánægju hans og að stjórnendur Íslandsbanka liðkuðu til fyrir Samherja í Namibíu.
Stefna flokkanna sem bjóða fram til Alþingis er borin saman í mörgum málaflokkum og efndir ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur á kosningaloforðum raktar. Einnig í blaðinu: íbúar reknir úr hjólhýsahverfi í Bláskógabyggð og arður af skólamat.
Stærðfræðikennari í Verzlunarskóla Íslands og fjölskylda græddu tvo og hálfan milljarð króna vegna Covid-19 og eru skattakóngar ársins 2020. Hátekjulistinn birtir tekjur 3.125 tekjuhæstu Íslendinganna, með fjármagnstekjum.
Konur lýsa andlega ofbeldinu sem fylgdi líkamlega ofbeldinu og orðunum sem eru brennimerkt í huga þeirra. Einnig í blaðinu: Stella Moris, eiginkona Julians Assange, biður forsætisráðherra um hjálp og plastmenguð molta Sorpu.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir sótt að eftirlitinu og raddir hinna fáu og fjársterku ráðandi; íslenskir hagsmunaverðir eru kortlagðir. Einnig í blaðinu: mútusaga Íslendinga og kulnun sem kerfisvandi.
Starfsmenn bráðamóttöku Landspítala lýsa ástandinu sem hamförum og sérfræðilæknar segja spítalann „vísvitandi setja sjúklinga og starfsfólk í hættu“. Einnig í blaðinu: pólitískir Samherjar og blekkingarleikur FBI á Íslandi.
„Skæruliðadeild“ Samherja skipulagði ófrægingarherferðir gegn gagnrýnendum og blaðamönnum með skuggaskrifum, gervigrasrót og dylgjum um nafngreint fólk. Einnig í blaðinu: Tryggvi Gunnarsson gerir upp tíma sinn sem umboðsmaður Alþingis.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er í forsíðuviðtali, þar sem fram kemur að hann hringdi í bankastjórana til að stöðva arðgreiðslur og skammaði lífeyrissjóðina. Einnig: saga flóttamannsins Uhunoma, sem Hallgrímur Helgason segir, og íslenski kynlífsmarkaðurinn.
Eva Jóhannsdóttir eignaðist barn með samkynhneigðum vinum sínum og segir frá skelfilegu ofbeldi sem tók hana tíu ár að vinna úr. Einnig í blaðinu: Róbert Wessman vildi hefna sín á ríkislögreglustjóra og Vigfús Bjarni sjúkrahúsprestur.
Róbert Wessman boðar að Alvotech verði stærsta fyrirtæki Íslandssögunnar. Að baki liggur dularfull auðsöfnun, peningaslóð í skattaskjólið Jersey og að hluta keypt ímynd í fjölmiðlum. Einnig í blaðinu: Siggi hakkari og ofbeldið á Laugalandi.
Samherji hefur gefið 685 milljónir króna til góðra málefna í Eyjafirði og mun fleiri styðja fyrirtækið á Akureyri en á landinu í heild eftir Namibíumálið. Einnig í blaðinu: Siggi hakkari, móðir sem flýr barnavernd og stúdentar án réttinda.
Sex konur lýsa andlegu og líkamlegu ofbeldi gegn unglingsstúlkum á vistheimilunum Varpholti og Laugalandi í Eyjafirði árin 1997 til 2007 og vilja opinbera rannsókn. Einnig í blaðinu: blýmengun í drykkjarvatni á Ásbrú.
Pétur Guðmann Guðmannsson réttarmeinafræðingur lifir í návígi við dauðann, og óútskýrðum andlátum, sem koma á hans borð, hefur fjölgað. Einnig í blaðinu: Kristján Þór Júlíusson og Samherji í þrjátíu ár, fangar með ADHD og Bogi Ágústsson.