Þrír handteknir við Alþingishúsið

Þrír voru hand­teknir við Alþing­is­húsið í dag eftir að lög­reglan var kölluð þangað vegna mót­mæla hæl­is­leit­enda. Samtökin Refugees in Iceland segja að um frið­söm mót­mæli hafi verið að ræða og að þau hafi ekki ætlað að hindra aðgengi að Alþingi.

Hælisleitendur mótmæla fyrir framan Alþingishúsið
Hæl­is­leit­endur mót­mæla fyrir framan Alþing­is­húsið Mynd: Refugees in Iceland

Þrír voru hand­teknir við Alþing­is­húsið á öðrum tím­anum í dag eftir að lög­reglan var kölluð þangað vegna hóps af fólki sem hindr­aði aðgengi að hús­inu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni sem send var á fjöl­miðla í dag.

Í henni segir að þre­menn­ing­arnir hafi ekki hlítt ítrek­uðum fyr­ir­mælum lög­reglu um að láta af þess­ari hátt­semi og hafi þeir verið hand­teknir eins og áður sagði.

Samtökin Refugees in Iceland fjöll­uðu um hand­tök­una á Facebook-síðu sinni í dag en þar kemur fram að um frið­söm mót­mæli hafi verið að ræða. „Við stóðum ekki fyrir framan inn­gang Alþing­is­húss­ins til þess að hindra aðgang fólk að fara inn. Heldur til að fá það til að taka eftir okkur,“ segir í færsl­unni.

Enn fremur kemur fram hjá Refugees in Iceland að lög­reglan hafi mætt á stað­inn, ýtt þeim til hliðar og hand­tekið þrjár mann­eskjur. „Núna erum við á leið­inni á lög­reglu­stöð­ina á Hverf­is­götu. Vin­sam­leg­ast komið með okkur.“

Helgi Bernód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþing­is, segir í sam­tali við mbl.is að fólkið hafi raðað sér upp fyr­ir fram­an þing­húsið við aðal­inn­gang­inn og einnig bak­dyra­meg­in. Sömu­leiðis hafi það raðað sér upp fyr­ir fram­an inn­gang­inn á bíla­stæðið. Ein­hverj­ir þing­menn hafi getað lagt á bíla­stæð­inu en aðrir hafi þurft að leggja ann­ars staðar. Uppá­tækið hafi þó ekki truflað störf þings­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár