Endalaus straumur flóttamanna liggur út úr Úkraínu og yfir til Póllands. Börn og gamalmenni liggja á gólfum hvar sem pláss finnst. Þó geta ekki allir flúið stríðið. „Amma kemst ekkert, nema til guðs,“ sagði hin úkraínska Natasha Páli Stefánssyni ljósmyndara á aðalbrautarstöðinni í Varsjá.
Setið á gólfum þar sem pláss finnstBörn sitja og liggja á gólfum aðalbrautarstöðvarinnar í Varsjá á meðan að foreldrar, því sem næst eingöngu mæður, þeirra reyna að finna þeim leið áfram, á einhvern þann áfangastað þar sem þau geta notið öryggis frá stríðinu í heimlandi sínu.
Mynd: Páll Stefánsson
Yfirfull brautarstöðAðbrautarstöðin í Varsjá er yfirfull af flóttafólki sem reynir að tryggja sér miða langt í burtu frá stríðinu.
Mynd: Páll Stefánsson
Þreyta og óttiFólkið sem flúið hefur Úkraínu hefur í mörgum tilfellum verið á ferðinni dögum saman, hrætt um öryggi sitt og sinna, þar á meðal fólksins síns sem enn er í Úkraínu. Í sumum tilfellum er samband takmarkað eða stöpult við fjölskylduna sem eftir situr. Fólk endurhleður fréttasíður eða samfélagsmiðla ítrekað til að reyna að fá fréttir af stöðu mála.
Mynd: Páll Stefánsson
Taka með sér það sem dýrmætast erFólk flýr með börnin sín, takmarkaðan farangur sem oft er aðeins lítið magn fatnaðar og ljósmyndaalbúm. Þeir sem geta taka með sér gæludýrin sín, trygglyndu vinina sem færa þeim styrk og eru haldreipi í heimi sem er farinn fullkomlega á hvolf.
Mynd: Páll Stefánsson
Súrrealísk staðaÞessir litlu drengir bíða sitjandi á ferðatöskum þess að geta haldið lengra áfram. Í baksýn má sjá pólsku útgáfu tímaritsins Vogue sem fjallar um tísku og lífstíl. Sennilega er fátt eins fjarlægt í huga mæðra drengjanna þessa stundina.
Mynd: Páll Stefánsson
„Maður sem þekkir mann, sem þekkir mann, sem þekkir mann, gaf okkur símanúmer hjá úkraínskum strák í Prag. Við erum á leiðinni þangað með rútu. Hann ætlar að skjóta skjólshúsi yfir okkur,“ segir Natasha, listnemi frá Kharkiv, sem var ásamt nöfnu sinni og ljósmyndanema á yfirfullri rútustöð Varsjárborgar í gær. Það var endalaus umferð hópferðabíla að koma austan frá Úkraínu, fullra af konum og börnum, sem halda síðan áfram um alla álfuna.
Örtroð og kaosFólk bíður í röðum eftir því að komast í lestir á aðalbrautarstöðinni.
Mynd: Páll Stefánsson
Það var skipulagt kaos á rútustöðinni. Á aðalbrautarstöðinni í Varsjá var ástandið ólýsanlegt. Alltof margt fólk, börn og gamalmenni sofandi á gólfinu hvar sem var pláss. Aðrir að reyna tryggja sér miða, langt í burtu frá þessu stríði. Óformleg könnun sem ljósmyndari gerði leiddi í ljós að straumurinn liggur að töluverðu leyti til Þýskalands, Þjóðverjar bjóða fólki fría lestarferð þangað frá Póllandi. Nokkrum langaði til Bretlands, en það land virðist lokað flóttafólki frá Úkraínu eins og er. Flestir voru þó að færa sig til innan Póllands, því þegar Pólverjar hafa flutt burt, til dæmis til Íslands, hafa Úkraínumenn mannað þau störf sem þarf að manna.
Reynt að hafa ofan af fyrir börnunumLítil stúlka horfir á teiknimyndir í síma móður sinnar á meðan beðið er þess sem framundan er.
Mynd: Páll Stefánsson
En það eru ekki allir á leiðinni í burt segir Natasha þegar við horfum á enn eina rútuna leggja fyrir utan rútustöðina. „Mamma varð eftir, hún gat ekki hugsað sér að fara frá hreyfihamlaðri móður sinni. Amma kemst ekkert, nema til guðs, svo fótafúin er hún. En hún man vel eftir seinni heimstyrjöldinni, hungrinu, kuldanum og grimmdinni. Þegar ég heyrði í mömmu í fyrradag var ekkert rafmagn og þær matarlausar, húsið dimmt og ískalt. Er sagan að endurtaka sig?“
Fylgst með fréttumFólk reynir að átta sig á stöðunni heima fyrir í Úkraínu með því að skoða samfélagsmiðla og fréttasíður.
Mynd: Páll Stefánsson
Á leið til ÞýskalandsÞessi fullorðnu skötuhjú biðu eftir rútu til Þýskalands.
Ýttu á + við höfund, fréttamál eða greinaröð til að fylgja því og fá tölvupóst þegar eitthvað nýtt kemur, einn á dag í mesta lagi. Því sem þú fylgir stjórnarðu á Minni síðu.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir