Karolina Fund: Namm! - 100% vegan eldhús

Alda Villi­ljós stendur fyrir hóp­fjár­mögnun á eld­hús­að­stöðu sem mun vera nýtt í 100 pró­sent vegan mat­ar­fram­leiðslu.

Alda Villi­ljós stendur þessa dag­ana fyrir hóp­fjár­mögnun á eld­hús­að­stöðu sem mun vera nýtt í 100% vegan mat­ar­fram­leiðslu. Alda fók­usar sjálft á bakstur, eft­ir­rétti og sæt­indi, en hán byrj­aði að selja slíkt undir nafn­inu Namm! fyrr á þessu ári. Ný eld­hús­að­staða myndi veita Öldu mun meira svig­rúm til að fram­leiða sæt­indin, en hán vill líka að eld­húsið verði aðgengi­legt til leigu fyrir aðra sem vilja nýta sér slíka aðstöðu.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Þetta byrj­aði á síð­asta ári, en þá hafði ég verið að vinna á Kaffi Vínyl í u.þ.b. eitt ár sem bak­ar­inn þeirra. Í vinn­unni þar fékk ég mikið frelsi til að prófa mig áfram bæði með eigin upp­skriftir og ann­arra, og allt vegan. Vörurnar sem ég gerði urðu mjög fljótt gríð­ar­lega vin­sælar meðal vegan sam­fé­lags­ins og í byrjun síð­asta árs fór ég að fá þessa spurn­ingu frá fólki, hvort ég ætl­aði ekki bara að byrja með eigið fyr­ir­tæki og fram­leiða og selja kökur og sæt­indi. Ég mald­aði í móinn frekar lengi, en í lok síð­asta árs tók ég þá ákvörðun að demba mér í sjálf­stæðan atvinnu­rekstur. Ég hætti í vinn­unni hjá Vínyl og byrj­aði að aug­lýsa fyr­ir­tækið og taka við pönt­unum. Það tók ekki langan tíma þar til ég var komið í sam­starf við Linneu og Krumma hjá Veganæs, en ég fæ að nota eld­húsið þeirra þegar þau eru ekki að nota það. Það kom samt eig­in­lega strax í ljós að það myndi ekki nægja mér svo ég verð að stækka við mig fljót­lega. Mér líður líka alltaf frekar illa að þurfa að keyra niður í miðbæ vegna þess að ég þurfi að ferja fullt af hrá­efnum á milli eld­húsa til að hafa í við pant­an­irnar; helst vildi ég að sjálf­sögðu labba eða taka strætó!“

Hver eru und­ir­stöðu­at­riðin fyrir verk­efnið?

„Ég veit að ég er ekki eitt um að finn­ast það góð til­hugsun að vegan mat­ur­inn sem ég borða sé ekki fram­leiddur þar sem einnig er verið að mat­reiða og með­höndla kjöt eða osta. Vegan­ism­inn er sér­stakur að því leyti að þetta er ekki bara mat­ar­kúr, það er svo margt annað sem getur spilað inn í það af hverju fólk verður eða er vegan, og þó að ofnæmi geti átt sinn stað þar (vegan fólk þróar líka oft­ast með sér ofnæmi fyrir kjöti og mjólk­ur­vörum eftir ein­hvern tíma) þá eru sið­ferð­is­á­stæð­urnar oft ráð­andi. Þess vegna eru mörg okkar lík­leg til að fara úr vegi okkar eða borga aðeins meira fyrir vörur sem eru fram­leiddar af vegan fyr­ir­tækjum og í vegan umhverfi. Að sama skapi myndi ég vilja geta sett upp krók af eld­hús­inu með sér tækjum til að fram­leiða vörur sem væru ekki með hnetum, og seinna meir einnig fyrir glút­en­lausar vörur.“

Af hverju ætti fólk að styðja við verk­efnið þitt?

„Það eru nokkrar ástæð­ur! Fyrst og fremst vegna þess að það er góð til­finn­ing að styðja við far­sælt verk­efni - og miðað við hversu vel hefur gengið hingað til veit ég að Namm! er komið til að vera. Vegan­ism­inn hefur vaxið ótrú­lega hratt á Íslandi á síð­ustu árum og ég er viss um að við þekkjum núorðið öll a.m.k. eina vegan mann­eskju; og er þá ekki frá­bært að geta pantað veganköku eða snarl fyrir veislur á verði sem er sam­keppn­is­hæft við annað bakk­elsi? Mér finnst mjög mik­il­vægt að vegan vörur séu aðgengi­legar og því er það draum­ur­inn að geta boðið upp á ódýrar vörur án þess að slá af gæða­kröfum.. Síðast en ekki síst, þá eru mjög girni­leg verð­laun í boði fyrir öll þau sem leggja til pen­ing í verk­efnið; konfekt­kassar, kökur, inn­eign í veislu­bakka og fleira.“

Hér er hægt að styrkja Namm!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár