May: Tókum ekki þátt í aðgerðunum af því að Trump sagði okkur að gera það

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, kom fyrir breska þingið í dag. Hún segir að það sé í hag Breta að efna­vopnum sé ekki beitt og að notkun þeirra verði ekki normalíseruð.

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, segir að Bretland hafi ekki tekið þátt í árás­unum á Sýrland um helg­ina af því að Donald Trump sagði þeim að gera það. Hún segir það vera Bretum í hag að notkun efna­vopna sé bönnuð og að notkun þeirra verði ekki normalíseruð. May kom fyrir breska þingið í dag.

Á laug­ar­dag­inn hófu Banda­ríkja­menn, Bretar og Frakkar loft­árásir á Sýrland. Til­gang­ur­inn með árásinni var að svara fyrir efna­vopna­notkun Sýr­lands­stjórnar viku áður. Ekki er talið að mann­fall hafi orðið í árás Banda­ríkj­anna, Bret­lands og Frakk­lands en skot­mörkin voru efna­vopna­búr Sýr­lands­stjórnar.

Hnitmiðaðar árásir

May segir nægar sann­anir vera fyrir því að efna­vopn hafi verið notuð og þess vegna hafi ekki verið beðið eftir að rann­sókn­ar­menn Efna­vopna­stofn­un­ar­innar kæmust inn á svæðið. Hún segir að árásin hafi verið hnit­miðuð og hafi haft skýrt mark­mið. Árásin skil­aði þeim nið­ur­stöðum sem ætl­ast var til en árás­irnar grönd­uðu rann­sókn­ar­stofum og her­stöðvum Sýr­lands­stjórnar. Hún segir að aðgerðir Sýr­lands­stjórnar í gegnum árin hafi gefið til kynna að notkun efna­vopna myndi halda áfram og því væri nauð­syn­legt að binda enda á hana.

Þjóðþing þess­ara ríkja fengu ekki tæki­færi til að hafa áhrif á ákvörðun þjóð­höfð­ingj­anna um hvort svara ætti árás­unum eða ekki. Nú telur leið­togi Verka­manna­flokks­ins, Jeremy Corbyn, að ekki hafi verið farið að lögum. Hann gagn­rýnir að rík­is­stjórnir geti tekið þátt í hern­að­ar­að­gerðum án þess að hafa nokkuð sam­ráð við þjóð­þingin og vill setja lög þess efnis í Bret­landi. Corbyn gaf það einnig í skyn um helg­ina að Bretland hefði aðeins tekið þátt í árás­unum því Banda­ríkja­for­seti hefði sagt þeim að gera það. BBC greindi frá því að árás­irnar hefðu átt sér stað yfir helgi því þingið starfi ekki um helgar.

May segir að hraði aðgerð­anna hafi ollið því að hún hafði þingið ekki með í ráðum. Hún segir að skjót við­brögð hafi verið nauð­syn­leg til að tryggja öryggi þeirra sem tóku þátt í aðgerð­unum. Hún tekur ábyrgð á ákvörðun sinni og segir hana byggða á laga­legum grunni.

Gagnrýna Macron

[links] Emanuel Macron for­seti Frakk­lands hefur fengið álíka gagn­rýni frá frönskum þing­mönnum. Helsti and­stæð­ingur hans í stjórn­málum Marine Le Pen, leið­togi franska þjóð­ern­is­flokks­ins National Front, segir að ekki hafi feng­ist stað­fest að efna­vopn hafi verið notuð. Rann­sókn­ar­fólk Efna­vopna­stofn­un­ar­innar fær ekki aðgang að Douma en yfir­völd í Sýrlandi og banda­menn þeirra, Rússar, meinar stofn­un­inni aðgang.

Macron segir að hann hafi sann­fært Donald Trump um að aft­ur­kalla ekki her­lið sitt frá Sýrlandi og segir að loft­árásir ríkj­anna í Sýrlandi um helg­ina ekki vera stríðs­yf­ir­lýs­ingu gegn stjórn Bashars al-Assads.

Fyrr í mán­uð­inum gaf Trump það út að Banda­ríkin myndu aft­ur­kalla her­lið sitt fljót­lega frá Sýrlandi. Talskona Hvíta húss­ins, Sarah Sanders, svar­aði ummælum Macrons og sagði að Banda­ríkin stæðu enn við þá ákvörðun sína að her­lið þeirra myndi fara út úr Sýrlandi eins fljótt og auðið væri. Banda­ríkja­menn eiga um tvö þús­und her­menn á svæð­inu sem styður við upp­reisn­ar­her­inn þar í landi. Banda­ríkin hafa enn það mark­mið að „eyða algjör­lega“ Íslamska rík­inu svo­kall­aða.

Sergei Lavrov utan­rík­is­ráð­herra Rússland segir að sam­skiptin milli Rúss­lands og Vest­ur­land­anna séu verri en á tímum kalda stríðs­ins. Hann segir einnig að engar sann­anir séu fyrir að efna­vopn hafi verið notuð í Sýrlandi og að rík­is­stjórnir ríkj­anna sem stóðu fyrir árás­unum hafi aðeins vitnað í fjöl­miðla og sam­fé­lags­miðla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár