Starfsfólk Orkuveitunar gagnrýnir rangtúlkanir stjórnmálamanna og fjölmiðla

Starfsmanna­félag Orkuveitu Reykja­víkur segist hafa fengið nóg af rang­túlkunum og ósann­girni sem stjórn­málamenn og fjöl­miðlar setja á borð fyrir almenning í umræðum um vinnu­aðstæður innan fyrir­tækisins.

Af fundi starfsmanna Orkuveitu Reykjavíkur.
Af fundi starfs­manna Orku­veitu Reykja­víkur. Mynd: Aðsend

„Full­yrðingar um að vinnu­staður okkar sé rotinn og að hér ríki þöggun eru rangar.“ Þetta er á meðal þess sem fram kemur í yfir­lýsingu Starfsmanna­félags Orkuveitu Reykja­víkur og trúnaðar­manna starfs­manna sem send var fjöl­miðlum síðdegis í dag.

Tilefnið er sú umræða sem átt hefur sér stað um vinnustaða­menningu innan fyrir­tækis, fjölmiðla­umfjöllun um hana og orð stjórn­málamanna um málið.

Í yfir­lýsingunni segir að starfs­fólk Orkuveitu Reykja­víkur hafi „fengið nóg af rang­túlkunum og ósann­girni sem stjórn­málamenn og fjöl­miðlar setja á borð fyrir almenning. Það særir okkur hvernig stjórn­málamenn og fjöl­miðlar tjá sig um vinnu­staðinn sem þeir virðast ekki þekkja en leggja sig fram um að gera tortryggilegan, rangtúlka niður­stöður vinnustaða­greiningar og skýrslu Innri endur­skoðunar með það að markmiði að því er virðist að grafa undan trausti gagnvart fyrir­tækinu og þar með því fólki sem þar starfar. “

Starfs­mennirnir hvetja til þess að umræddir aðilar kynni sér megin­niðurstöðu þeirrar skýrslu sem unnin var um stöðu mála innan fyrir­tækisins. Auk þess minna þeir á að í landinu gildi lög um persónu­vernd og að starfs­fólk sem tjáði sig við gagna­öflun gerði það í trúnaði.

„Við óskum þess að þið séuð heil í því sem þið tjáið ykkur um og segið satt og rétt frá en dragið ekki upp myndir sem ekki eru til en við höfum á tilfinningunni að þið vilduð frekar mála. Nú er mál að linni.

Verið velkomin í heimsókn til okkar og kynna ykkur málin þá kannski rennur upp fyrir ykkur ljós að hérna vinnur venjulegt fólk, heiðarlegt fólk og að fyrir­tækið er rekið af starfs­fólki sem hér vinnur, ekki af stjórn­málamönnum.“

Stjórn Orkuveitunar óskaði eftir því við innri end­ur­skoðun Reykja­vík­ur­borgar í sept­em­ber að gerð yrði úttekt á vinnu­stað­ar­menn­ingu og til­teknum starfs­manna­málum innan fyr­ir­tæk­is­ins. Málið má rekja til þess að Áslaug Thelma Ein­ars­dótt­ir, fyrr­ver­andi for­stöðu­maður ein­stak­lings­mark­aðar hjá Orku nátt­úr­unn­ar, skrif­aði færslu á Face­book þar sem hún sagð­ist hafa verið rekin fyrir að kvarta undan hegðun Bjarna Más Júlí­i­us­son­ar, þáver­andi fram­kvæmda­stjór ON. Bjarni Már var rek­inn vegna óvið­eig­andi fram­komu en ástæða upp­sagn­ar­innar voru tölvu­póstar sem Bjarni sendi kven­kyns und­ir­mönnum sín­um.

Sam­kvæmt nið­ur­stöðum úttektarinnar voru upp­sagnir þeirra Áslaugar Thelmu Ein­ars­dóttur og Bjarna Más taldar rétt­mæt­ar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár