Snjór er verðmæti

Skíða­tíma­bilið er í hámarki í Evrópu um þessar mundir og fólk út um allan heim flykk­ist á skíði, dvelur á skíða­hót­elum og nýtur lífs­ins til fulls á fjöllum. Skíða­brans­inn í Evrópu veltir millj­örðum evra árlega en það getur brugðið til beggja vona því þetta er áhættu­söm ferða­mennska sem er bæði háð veðri og vindum og svipt­ingum í efna­hags­líf­inu. Það eru miklir hags­munir í húfi, störf og fjár­munir, og því hefur hið opin­bera eins og sveit­ar­fé­lög gert æði margt til þess að halda uppi og hlífa þess­ari atvinnu­starf­semi.

Aust­ur­ríki, Frakk­land, Sviss og Ítalía eru helstu áfanga­staðir skíða­fólks í Evrópu. Háklassa hótel og veit­inga­staðir, heilsu­lindir, spila­víti og ýmis­konar þjón­usta hefur verið byggð upp í kringum vin­sæl skíða­svæði. Þessi starf­semi skilar gríð­ar­miklum tekjum fyrir við­kom­andi ríki og sveit­ar­fé­lög þegar vel til tekst, en það eru mörg ljón í veg­inum, sér­stak­lega veð­ur­farið. Skíða­brans­inn er 100% háður veðr­inu. Enda er gjarnan við­kvæðið hjá fólki sem býr og starfar í kringum Alpana og vin­sæl­ustu skíða­svæðin:

„Á þessum slóðum er snjór verð­mæti.“

Skíðabransinn í Frakklandi

Frakk­land er einn vin­sæl­asti áfanga­staður ferða­manna í heim­inum og eitt af því sem dregur fólk þangað er skíði. Vin­sæl­asti áfanga­staður ferða­manna í Frakk­landi, á eftir París, eru skíða­svæðin í kringum fjöllin stóru. Millj­ónir ferða­manna heim­sækja Alpana, Júra­fjöllin og Pýrenea­fjöllin ár hvert og náði Frakk­land þeim ágæta árangri á síð­asta ári að skjót­ast fram úr Banda­ríkj­unum sem vin­sæl­asti áfanga­staður skíða­ferða­manna. Skíða­brans­inn einn og sér skilar um tveimur millj­örðum evra þráð­beint í franska þjóð­ar­búið árlega eða um 300 millj­örðum króna.

Um 8% Frakka stunda skíði reglu­lega og um 120.000 manns starfa við skíða­ferða­mennsku. Skíða­brans­inn er sagður hafa mikið vægi í frönsku þjóð­lífi og tókst meira að segja að færa til vetr­ar­frí grunn­skóla­barna til þess að aðlaga það betur að skíða­ver­tíð­inni. Á þessum árs­tíma eru fluttar sér­stakar skíða-veð­ur­fréttir í sjón­varps­frétta­tímum rík­is­stöðv­anna. Allt er gert til þess að reka fólk á skíði.

Gróð­ur­húsa­á­hrifin hafa sett mark sitt á skíða­ferða­mennsku um allan heim en þrátt fyrir efna­hag­skreppu og hlýn­andi veð­ur­far hefur skíða­brans­inn í Frakk­landi verið að efl­ast, öfugt við önnur lönd. Árangur í skíða­ferða­mennsku er tal­inn í skíða­dögum – eða hversu margir ein­stak­lingar skíða dag­lega. Skíða­dagar í Frakk­landi töld­ust 57,9 milljón á síð­asta tíma­bili, sem er aukn­ing um 4,9% á ári. Í Banda­ríkj­unum voru skíða­dagar um 56,9 millj­ónir á síð­asta ári. Aust­ur­ríki er síðan í þriðja sæti yfir vin­sæl­ustu skíða­lönd heims.

Frakk­land þykir bjóða upp á meira spenn­andi ferðir, betri hótel, og betri mat. Frakkar hafa í marga ára­tugi mjög með­vitað byggt upp þessa ferða­mennsku og hafa því mikla reynslu á þessu sviði. Það sem virð­ist ráða vin­sældum er að hafa hót­elin nálægt brekk­unum, en það sem ræður auð­vitað mestu eru prís­arnir. Ódýrast er að skíða í Frakk­landi, en þjóðin á nú í miklu verð­stríði við ýmis Austur-Evr­ópu­lönd sem eru farin að ryðj­ast inn á mark­að­inn með betri verð.

Gróðurhúsaáhrif

Ein helsta ógnin er hlýnun. Jóla­ver­tíðin fór um þúfur enn eitt árið í Ölpunum í Frakk­landi, Sviss og Ítalíu vegna þess að veðrið í des­em­ber var alltof hlýtt, sól og eng­inn snjór. Tjónið veltur á millj­ónum evra. Það eru um 600 skíða­svæði í Ölpunum og um 10.000 skíða­lyftur. Þetta eru gríð­ar­miklar fjár­fest­ingar sem skila litlu þegar með­al­hit­inn er um 10-15 gráður, eins og í des­em­ber síð­ast­lið­inn, sem er óvenju mik­ill hiti. Hlýnun á þessu svæði hefur verið þrisvar sinnum meiri en ann­ars staðar í heim­inum sem hefur haft afar slæmar afleið­ingar fyrir marga skíða­bændur. Af þessum sökum hafa skíða­svæðin og lyft­urnar sífellt verið að fær­ast ofar í brekk­urnar. Það getur reynst áhættu­samt vegna snjó­flóða, grjót­hruns og hvass­viðris.

Jökl­arnir í Ölpunum hafa hopað hratt und­an­farin ár vegna hlýn­andi veð­ur­fars sem hefur haft umtals­verð áhrif á vetr­ar­í­þróttir og skíða­brans­ann í Evrópu. Mörg fyr­ir­tæki hafa farið illa vegna þess­ara veð­ur­breyt­inga. Þrátt fyrir að áhugi og eft­ir­spurn sé sífellt að aukast, þá fer eng­inn á skíði ef eng­inn er snjór­inn.

Hlýnandi veð­ur­far hefur til að mynda haft þau áhrif að snjó­flóð eru tíð­ari. Þetta hefur einnig haft mikil áhrif á ásýnd og hæð Mont Blanc; jök­ul­tind­ur­inn hefur lækkað, gljúfur hafa opn­ast og grjót­hrun auk­ist umtals­vert hin síð­ari ár. Oft er minnt á þá stað­reynd að fjallið er einn hættu­leg­asti staður Evrópu og með þessum sífelldu breyt­ingum getur hann orðið enn hættu­legri.

Mont Blanc er einn vin­sæl­asti ferða­manna­staður heims. Flestir kjósa að skoða fjallið úr fjar­lægð, margir fara á skíðum um brekkur þess og um 20.000 manns reyna við tind­inn ár hvert. Hægt er að fara með fjallakláfi nær alla leið og rölta síðan upp síð­ustu þús­und metrana. Mont Blanc er ekki talið „erfitt“ í fjall­göngu­fræð­unum (þótt vissu­lega sé hægt að finna mjög erf­iðar leiðir); flestir sem eru í sæmi­legu formi ættu að geta klifið fjallið, en það er einmitt það sem gerir það svo hættu­legt. Það er nefni­lega oft van­metið og þar af leið­andi lúm­skt. Fjöl­margt óvant fjalla­fólk leggur leið sína á fjallið og þess vegna eru slysin svona tíð.

Frá 1990 til 2011 lét­ust 74 manns á fjall­inu og alls 256 slys voru skráð á þessum tíma. Á hverju ári deyr ein­hver á Mont Blanc. Það er mikið að gera hjá björg­un­ar­sveitum allt árið um kring, sér í lagi á þessum árs­tíma, sem er aðal­ferða­manna­tím­inn.

Snjórinn bæði gefur og tekur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár