Þrír af hverjum fjórum vilja að stjórnvöld geri meira til að hjálpa flóttafólki

Tæplega 74% Íslend­inga eru þeirrar skoð­unar að íslensk stjórn­völd eigi að gera meira til að hjálpa fólki sem er á flótta undan stríði eða ofsóknum. Konur eru miklu lík­legri til að vilja að stjórn­völd geri meira en karlar, 81,5% kvenna vilja að stjórn­völd geri meira, en 66,5% karla. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Maskína gerði fyrir Amnesty á Íslandi.

Þá er líka munur eftir aldri og búsetu svar­enda. 83,5 pró­sent þeirra sem eru yngri en 25 ára vilja sjá stjórn­völd gera meira, 75,3 pró­sent 25-34 ára og 82,7 pró­sent þeirra sem eru á aldr­inum 35-44 ára. 67,7 pró­sent þeirra sem eru 45-54 ára vilja gera meira og 66,1 pró­sent þeirra sem eru 55 ára og eldri.

83,5 pró­sent íbúa í Reykja­vík vilja að stjórn­völd geri meira til þess að hjálpa flótta­mönnum, en 71,3 pró­sent þeirra sem búa í nágranna­sveit­ar­fé­lögum borg­ar­innar. 67,1 pró­sent íbúa á Suð­ur­landi og Reykja­nesi , 71,3 pró­sent þeirra sem búa á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum, 68,2 pró­sent á Norð­ur­landi og 72 pró­sent á Aust­ur­landi vilja að íslensk stjórn­völd geri meira til að hjálpa þeim sem eru á flótta.

Tæp 15% vilja ekki að flóttamenn komi til Íslands

14,5 pró­sent aðspurðra vilja ekki að flótta­menn komi til Íslands. Hlut­fallið er 18,1 pró­sent meðal karla en 10,8 pró­sent meðal kvenna. Hlutfall þeirra sem vilja ekki fá flótta­menn til Íslands hækkar með aldr­inu, er 12,6% hjá fólki yngra en 35 ára, 14,7% hjá 35-64 ára og 18,6% hjá þeim sem eru 65 ára og eldri. 12,9% íbúa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vilja ekki fá flótta­menn til Íslands en 17,4% íbúa í öðrum sveit­ar­fé­lögum.

Mark­tækur munur er á skoð­unum fólks á komu flótta­manna eftir menntun. 20,5% þeirra sem hafa grunn­skóla­menntun vilja ekki fá flótta­menn til Íslands á meðan 9,2% þeirra sem hafa háskóla­próf vilja ekki fá flótta­menn. Hlut­fallið er 18,3% hjá þeim sem hafa fram­halds­skóla­próf eða iðn­menntun.

Tæplega 13 pró­sent segj­ast til­búin að leyfa flótta­mönnum að búa á heim­ili sínu og ríf­lega helm­ingur þeirra sem svör­uðu könn­un­inni eru til­búnir að leyfa flótta­mönnum að búa í hverf­inu sínu. Til við­bótar segj­ast 9,1% til í leyfa flótta­mönnum að búa í borg­inni, bænum eða sveit­ar­fé­lag­inu sem þau búa í, 11,5% á Íslandi, og sem fyrr segir vilja 14,5% ekki að flótta­menn komi til Íslands.

15 pró­sent fólks sem er yngra en 35 ára er reiðu­búið að hýsa flótta­menn á heim­ili sínu, 12,8 pró­sent fólks 36 til 64 ára en 5,9 pró­sent þeirra sem eru eldri en 65 ára. Þá vekur athygli að hæst hlut­fall fólks í lægsta tekju­hópnum er reiðu­búið að hýsa flótta­menn á heim­ili sínu. Einn af hverjum fimm, eða 21,7% þeirra sem hafa undir 400 þús­und krónur á mán­uði eru reiðu­búnir að hýsa flótta­menn á heim­ili sínu, en 9,2% þeirra sem hafa 550-799 þús­und á mán­uði.

15% finnst ekki að flóttamenn eigi að geta leitað hælis í öðrum löndum

Mikill meiri­hluti svar­enda í könn­un­inni eru einnig þeirrar skoð­unar að almennt eigi flótta­menn sem flýja stríð eða ofsóknir að geta leitað hælis í öðrum löndum. Þó eru 9,9% frekar ósam­mála og 5,5% mjög ósam­mála því. Konur eru mark­tækt meira sam­mála því að flótta­menn eigi að geta leitað hælis í öðrum löndum, 86,5% þeirra eru þeirrar skoð­unar en 82,8% karla.

Svar­endur í könnun Maskínu voru 1.159 tals­ins, en könn­unin fór fram 22. júlí til 2. ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár