Æskilegast að umönnun umsækjenda um vernd sé í höndum sveitarfélaganna

Sér­fræð­ingur á kynn­ing­ar­sviði Rauða kross­ins segir að eðli­legt sé að aðstoð við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd sé með sama hætti og við aðra hópa í þjóð­fé­lag­inu.

Flóttafólk mótmælir í febrúar síðastliðnum.
Flótta­fólk mót­mælir í febr­úar síð­ast­liðnum. Mynd: Bára Huld Beck

Rauði kross­inn hefur lengi bent á það að æski­leg­ast sé að umönnun umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sé í höndum sveit­ar­fé­laga enda sé félags­leg þjón­usta byggð upp á nær­þjón­ustu í land­inu öllu og því eðli­legt að aðstoð við þennan hóp sé með sama hætti og við aðra hópa í þjóð­fé­lag­inu.

[links]Í svörum stofn­un­ar­innar við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að þær félags­þjón­ustur sem hafa sinnt þjón­ust­unni hingað til hafi gert það með mik­illi prýði og ekki sé nein ástæða til að ætla annað en að ef fleiri sveit­ar­fé­lög bæt­ist í hóp­inn verði sami metn­aður þar að leið­ar­ljósi. Nú eru ein­ungis þrjú sveit­ar­fé­lög með slíka þjón­ustu­samn­inga: Reykja­vík­ur­borg, Hafn­ar­fjarð­ar­bær og Reykja­nes­bær.

Rauði kross­inn telur því mjög jákvætt að fleiri umsækj­endur um alþjóð­lega vernd dvelj­ist í umsjón sveit­ar­fé­laga á meðan á máls­með­ferð stendur. Út­lend­inga­stofnun sendi bréf um miðjan mars síð­ast­lið­inn til allra sveit­ar­fé­laga á land­inu til að kanna áhuga þeirra á að gera samn­ing við stofn­un­ina um þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd, sam­bæri­lega við þá sem stofn­unin hefur nú þegar gert við fyrr­nefnd sveit­ar­fé­lög. Ekk­ert þeirra sveit­ar­fé­laga sem svarað hefur erind­inu taldi sig að svo stöddu í stakk búið til að bæt­ast í hóp sveit­ar­fé­laga sem veita umsækj­endum um vernd þjón­ustu en mörg þeirra hafi þó lýst yfir jákvæðri afstöðu til verk­efn­is­ins, sam­kvæmt Útlend­inga­stofnun. 

Ísabella Ósk Más­dóttir, sér­fræð­ingur á kynn­ing­ar­sviði Rauða kross­ins, segir að mik­il­væg­ast sé að þjón­ustan sé sam­bæri­leg óháð því hver veitir hana og því skipti í raun ekki máli í hvaða sveit­ar­fé­lagi fólk býr. Mismunur í þjón­ustu­stigi sé alltaf áskorun líkt og er núna þar sem þjón­usta sveit­ar­fé­lag­anna er á mun breið­ari grunni en þjón­ustan sem Útlend­inga­stofnun veitir.

Ef aðgengi er skert getur fólki liðið verr

„Það hafa verið gerðar kann­anir hjá Rauða kross­inum sem gefa vís­bend­ingar um að stað­setn­ing geti haft áhrif á líðan fólks á meðan á máls­með­ferð stendur. Það sem er lyk­il­at­riði þar, er aðgengið að þjón­ustu, þ.e. ef aðgengið er skert þá upp­lifir fólk stað­setn­ingu mögu­lega sem ein­angrun og það hefur nei­kvæð áhrif á líðan og örygg­is­til­finn­ingu,“ segir Ísabella. En ef þjón­ustan er góð þá líði fólki eins vel og hægt er miðað við aðstæður. Þau hjá Rauða kross­inum sjái til að mynda að fólk sem býr hjá félags- og fjöl­skyldu­þjón­ustu Reykja­nes­bæjar kvarti ekki undan stað­setn­ingu þar sem öll sú þjón­usta sem þau þurfa sé í nærum­hverf­inu.

„Það er nefni­lega lyk­ill­inn að vellíðan að fólk fái upp­lýs­ingar, finni fyrir öryggi og fái nauð­syn­lega þjón­ustu eins og félags­legan stuðn­ing og heil­brigð­is­þjón­ustu,“ segir hún en bætir því við að ekki sé þó hlaupið að því að færa umsækj­endur um alþjóð­lega vernd of langt frá þeim stöðum þar sem máls­með­ferðin fer fram á meðan á máls­með­ferð stjórn­valda stendur því það skapi þessa raun­veru­legu fjar­lægð sem sé ekki af hinu góða. Öðru máli gegni þegar fólk er komið með vernd og er að taka sín fyrstu skref út í sam­fé­lagið. Þá skipti stað­setn­ingin ekki lengur höf­uð­máli heldur nær­sam­fé­lagið og mögu­leikar sem fólk hefur til að taka þátt.

Hægt er að lesa ítar­lega frétta­skýr­ingu um málið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár