Draum­ur­inn Nönnu hafði lengi dreymt um að fljúga um loftin blá í loft­belg og hana hafði jafn­framt lengi langað að heim­sækja Kappa­dókíu í Tyrk­landi. Draum­ur­inn rætt­ist því tvö­falt í ferða­lag­inu. Mynd: Nanna Rögnvaldardóttir

Sveif um loftin blá í loftbelg

Skyndilegt andlát góðs vinar Nönnu Rögnvaldar­dóttur minnti hana á að einmitt núna – ekki á morgun – væri tími til að láta draumana rætast. Tíu dögum eftir að hún frétti af andláti hans sveif hún í loftbelg yfir þorpinu Kappadókíu í Tyrklandi og heiðraði þannig minningu vinar síns.

Þ

egar Nanna Rögnvaldar­dóttir var sjö ára var henni gefin bók sem varð strax í miklu uppáhaldi og hún fletti oft og iðulega. Í henni var mynd af fyrsta loft­belgnum. Hún heillaðist af honum og lét sig dreyma um að svífa um loftin blá í einum slíkum. 

Ekki grunaði hana þá að hún ætti eftir að láta drauminn rætast nokkrum áratugum síðar. „Þetta var gamall draumur sem ég hafði í raunar aldrei búist við að ég myndi láta rætast. En svo urðu aðstæður til þess að ég tók skyndi­ákvörðun. Ég frétti andlát góðs vinar míns, hans Sigurðar Svavars­sonar, sem bar óvænt að. Ég settist við tölvuna og ætlaði að fara að skrifa systur minni og segja henni frá þessu. Fyrsta setningin sem blasti við mér þar var: Lífið er núna. Þá fór ég að hugsa um allt þetta sem maður lætur ógert í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár