Dómsmálaráðherra vill borga flóttamönnum fyrir að draga umsóknir sínar til baka

Í drögum að nýrri reglu­gerð er lagt að greiða flótta­mönnum sem draga hæl­is­um­sókn sína til baka eða hafa fengið synjun allt að eitt þús­und evrur í ferða- og end­urað­lög­un­ar­styrk.

Sigríður Á. Andersen er dómsmálaráðherra.
Sigríður Á. Andersen er dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra vill að Útlend­inga­stofnun fái heim­ild til þess að greiða end­urað­lög­unar- og ferða­styrk til umsækj­enda um alþjóð­lega vernd í til­teknum til­vikum. Þau til­vik sem um ræðir eru þegar flótta­maður hefur annað hvort dregið umsókn sína um vernd hér­lendis til baka eða hann hefur fengið synjun og ákvörðun hefur verið tekin um að veita aðstoð til sjálf­viljugrar heim­farar.

Þeim yrði þá greitt fyrir að fara frá Íslandi í tveimur greiðslum. Sú fyrri, svo­kall­aður ferða­styrkur, yrði greiddur út á Kefla­vík­ur­flug­velli. Sá síð­ari, svo­kall­aður end­urað­lög­un­ar­styrkur, yrði greiddur í heima­ríki við­kom­andi.

Upp­hæð­irnar sem standa til boða sem styrkur til þess­ara aðila fara meðal ann­ars eftir því hvort við­kom­andi er barn eða full­orð­inn og hvaðan hann kemur. Þannig eiga full­orðnir ein­stak­lingar frá Afganistan, Íran, Írak, Nígeríu, Sómalíu, Palest­ínu og Pakistan að fá allt að eitt þús­und evrur, um 123 þús­und krónur, ef þeir sam­þykkja að fara sjálf­vilj­ugur frá íslandi eða hafa fengið synjun á beiðni um alþjóð­lega vernd. Barn frá sömu löndum getur hins vegar fengið 600 evrur sam­tals, um 74 þús­und krónur.

Full­orðnir ein­stak­lingar frá Alsír, Egypta­landi, Kasakstan og Marokkó eiga að fá allt að 700 evrur, 86 þús­und krónur, fyrir að fara frá Íslandi en börn frá sömu löndum fá 37 þús­und krónur sam­tals í ferða- og end­urað­lög­un­ar­styrk.

Fylgd­ar­laus börn frá öllum ofan­greindum ríkjum geta fengið allt að eitt þús­und evrur, 123 þús­und krónur, sam­þykki þau að draga vernd­ar­um­sókn sína til baka eða að það sé þegar búið að synja þeim um alþjóð­lega vernd.

Flótta­menn frá öðrum löndum en ofan­greindum geta fengið á bil­inu 100 til 200 evrur í ferða- og end­urað­lög­un­ar­styrk fall­ist þeir á þau skil­yrði sem eru fyrir styrk­veit­ing­unni.

Þetta kemur fram í drögum að reglu­gerð sem dóms­mála­ráð­herra hefur birt í samráðs­gátt stjórn­valda. Drögin voru birt á föstu­dag, 17. ágúst, og sam­ráðið stendur yfir í tíu daga. Enn sem komið er hafa engar umsagnir verið sendar inn.

Þurfa að undirrita skuldaviðurkenningu

Í drög­unum segir einnig að umsókn um end­urað­lög­un­ar­styrk skuli lögð fram „innan tveggja daga frá því umsókn um alþjóð­lega vernd er dregin til baka eða henni synjað. Ef umsókn um vernd er dregin til baka er Útlend­inga­stofnun heim­ilt að greiða fullan end­urað­lög­un­ar­styrk. Ef umsókn um end­urað­lög­un­ar­styrk er lögð fram eftir að ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar liggur fyrir drag­ast 100 evrur af heild­ar­upp­hæð á hvern ein­stak­ling. Ef umsókn er lögð fram eftir að úrskurður kæru­nefndar útlend­inga­mála liggur fyrir drag­ast 200 evrur af heild­ar­upp­hæð á hvern ein­stak­ling.“

Taki reglu­gerðin gildi mun Útlend­inga­stofnun fá heim­ild til þess að greiða styrk­ina sem um ræðir á meðan styrkt­ar­veit­ingin rúm­ast innan þeirra fjár­heim­ilda sem stofn­unin hefur. Hver útlend­ingur hefur ein­ungis rétt á end­urað­lög­un­ar­styrk einu sinni. „Samhliða umsókn um styrk ber umsækj­anda að und­ir­rita skulda­við­ur­kenn­ingu hjá Útlend­inga­stofnun þess efnis að hann sam­þykki að end­ur­greiða veittan styrk komi til þess að hann sæki síðar um dval­ar­leyfi hér á landi,“ segir í drög­unum.

Flótta­mönnum sem sækja um hæli á Íslandi hefur fækkað mikið hér­lendis und­an­farin miss­eri. Frá ára­mótum og fram til 15. ágúst höfðu 370 manns sótt um alþjóð­lega vernd hér­lendis.

Á öllu síð­­asta ári sóttu 1.096 manns um hæli á Íslandi. Það eru færri en sóttu um hæli á Íslandi á árinu 2016. Þá fengu alls 135 alþjóð­­lega vernd og leyfi til að dvelja hér áfram, en árið 2017 voru alls 1.293 umsóknir um slíkt afgreidd­­ar. Því fékk einn af hverjum tíu flótta­mönnum sem fékk nið­­ur­­stöðu í hæli á Íslandi.

Þeim hæl­­­is­­­leit­endum sem voru í þjón­­­ustu sveit­­­ar­­­fé­laga eða Útlend­inga­­­stofn­unar fækk­­aði mikið í fyrra. Þeir voru 820 í byrjun des­em­ber 2016 en 559 í byrjun sama mán­aðar 2017. Það þýðir að hæl­­­is­­­leit­endum sem voru á for­ræði ríkis eða sveit­­­ar­­­fé­laga fækk­­aði um tæpan þriðj­ung á einu ári.

Þeir sem hafa sótt um hæli og bíða eftir að mál þeirra fái afgreiðslu fá fram­­­­færslu­eyri. Hann er átta þús­und krónur fyrir ein­stak­l­ing á viku en 23 þús­und krónur hjá fjög­­­­urra manna fjöl­­­­skyldu. Auk þess fær hver full­orð­inn hæl­­­­is­­­­leit­andi 2.700 krónur í vasa­pen­ing á viku og for­eldrar fá við­­­­bótar ert barn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár