Tíu staðreyndir um Landsvirkjun

Lands­virkjun er lang­sam­lega stærsta orku­fyr­ir­tæki lands­ins. Það fer með stóran hluta af orku­auð­lindum þjóð­ar­innar. Magnús Hall­dórs­son rýndi í efna­hag fyr­ir­tæk­is­ins.

1. Lands­virkjun á eignir sem metnar eru á 557 millj­arða króna, eða 4.285 millj­ónir Banda­ríkja­dala (Dalur = 130 ISK). Fyr­ir­tækið gerir upp í Banda­ríkja­dal, en stærstu hluti tekna fyr­ir­tæk­is­ins er í þeirri mynt. Þetta er miðað við stöð­una í lok árs 2015. Skuldir fyr­ir­tæk­is­ins námu þá 2.300 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 299 millj­örðum króna, en lang­tíma vaxta­ber­andi skuldir eru nú komnar niður fyrir tvö þús­und millj­ónir Banda­ríkja­dala, í fyrsta skipti síðan 2005. Eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins nam um 1.900 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 254 millj­örðum króna, í lok árs í fyrra.

2. Aðeins eitt fyr­ir­tæki á Íslandi er með meira eigið fé í sínum efna­hags­reikn­ingi en Lands­virkjun. Það er Lands­bank­inn en eigið fé hans er nú um 260 millj­arðar króna. Efna­hags­reikn­ingar Lands­virkj­unar og Lands­bank­ans, sem bæði eru í eigu rík­is­ins (Lands­bank­inn 98,2 pró­sent), eru þó erf­iðir í sam­an­burði, enda mat á ein­stökum rekstr­ar­þáttum breyti­legt á milli orku­iðn­aðar og fjár­mála­geirans.

3. Rekstr­ar­tekjur Lands­virkj­unar námu 421,5 millj­ónum Banda­ríkja­dala á árinu 2015 sam­an­borið við 438,3 millj­ónir Banda­ríkja­dala árið á undan. Tekjur lækka því um 16,8 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Rekstr­ar­gjöld námu 215,5 millj­ónum Banda­ríkja­dala á árinu 2015 en voru 220,2 millj­ónir Banda­ríkja­dala árið 2014. Rekstr­ar­hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins var því 206,0 millj­ónir Banda­ríkja­dala á árinu 2015 sam­an­borið við 218,1 milljón Banda­ríkja­dala árið á undan.

4. Með­al­tals­verðið sem Lands­virkjun fékk á mega­vatt­stund var 24,5 Band­ar­kja­dalir. Það er lægsta verð sem fyr­ir­tækið hefur fengið í fimm ár, en verðið ræðst meðal ann­ars af þróun heims­mark­aðs­verðs á áli.

5. Stærsti ein­staki við­skipta­vinur Lands­virkj­unar er banda­ríska fyr­ir­tækið Alcoa, sem rekur álverið á Reyð­ar­firði í gegnum dótt­ur­fé­lagið, Alcoa Fjarð­arál. Fyr­ir­tækið kaupir um 37,5 pró­sent af raf­orkunni sem fyr­ir­tækið fram­leiðir. Kára­hnjúka­virkjun, stærsta vatns­afls­virkjun Evrópu, var byggð til þess að geta afhent álver­inu raf­magn sem nauð­syn­legt er til fram­leiðslu.

6. Lands­virkjun, undir for­ystu Harðar Arn­ar­sonar for­stjóra, hefur haft þá stefnu að draga úr vægi álverðs í efna­hag sínum, á und­an­förnum árum, og end­ur­nýj­aði meðal ann­ars samn­ing sinn við Rio Tinto árið 2010 með það að leið­ar­ljósi. Um 1/3 af rekstr­ar­tekjum er nú tengdur álverði, en árið 2009 voru hlut­föllin 2/3. Framundan er end­ur­nýjun samn­inga við Century Aluminum, sem rekur dótt­ur­fé­lagið Norðurál á Grund­ar­tang, og má gera ráð fyrir að Lands­virkjun hafi fyrr­nefnda stefnu sem leið­ar­ljós.

7. Eins og sést á þess­ari mynd, þá er fjár­hagur Lands­virkj­unar bein­tengdur þróun mála á álmörk­uðum í heim­inum. Hæsta verð sem Lands­virkjun hefur fengið á und­an­förnum ára­tug, er 30,8 Banda­ríkja­dalir á mega­vatt­stund árið 2008. Framan af ári hækk­aði þá álverð mikið, sam­hliða mik­illi hækkun á olíu, en hrundi svo þegar þrengja tók veru­lega að fjár­mála­mörk­uðum um haustið.

8. Landsnet er dótt­ur­fé­lag Lands­virkj­unar (64,7 pró­sent eign­ar­hlutur). Verðmæti eigna Lands­nets jókst mikið milli áranna 2014 og 2015, en virði tengi­virkja og háspennu­lína, sem eru hluti af eigna­safni fyr­ir­tæk­is­ins, jókst um 23 millj­arða króna. Þetta má lesa út úr árs­reikn­ingi Lands­nets, en end­ur­mat á eignum félags­ins skil­aði sér í þessum miklu breyt­ingum. Háspennu­línur eru metnar á 49,5 millj­arða, sam­kvæmt árs­reikn­ingi fyrir árið í fyrra, en á árinu 2014 voru lín­urnar metnar á 37,5 millj­arða. Þá eru tengi­virki metin á 34 millj­arða, sam­kvæmt árs­reikn­ingi fyrir árið í fyrra, en sömu eignir voru metnar á 23,2 millj­arða í lok árs 2014.

9. Eig­in­fjár­hlut­fall Lands­virkj­unar er nú 44,7 pró­sent sem er það hæsta í sögu fyr­ir­tæk­is­ins. Frá hruni hefur fyr­ir­tækið ein­blínt á að greiða niður skuldir, og styrkja láns­hæfi sitt með marg­hátt­uðum aðgerðum til að bæta rekstr­ar­af­kom­una. Frá árinu 2010 hefur fyr­ir­tækið greitt niður skuldir fyrir um 800 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 107 millj­örðum íslenskra króna.

10. Tveir nýir við­skipta­vinir munu bæt­ast við á þessu ári, í flokki iðn­aðnar. Ráðgert er að United Silicon verði með 35 mega­vött vegna sinnar starf­semi, og árið 2017 þá muni PCC þurfa 58 mega­vött vegna sinnar starf­semi á Bakka við Húsavík. Vikj­ana­fram­kvæmdir Lands­virkj­unar á Þeistar­reykjum, eru nú í gangi, en um jarð­hita­virkj­anir er að ræða þar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár