„Hvar varst þú um helgina? Er það eitthvað sem við erum stolt af?“

Þrátt fyrir að vel gangi inn­an­lands í bar­átt­unni gegn kór­ónu­veirunni telur sótt­varna­læknir ekki ástæðu til að slaka frekar á aðgerðum. Ekki megi gleyma að smit á landa­mærum hafa einnig áhrif inn­an­lands.

„Þó að það gangi vel þessa dag­ana er ekki ástæða til þess að mínu mati að slaka frekar á inn­an­land­s­tak­mörk­unum á þess­ari stundu. Við viljum ekki taka áhætt­una á því að fá hér frek­ari útbreiðslu eins og sakir standa.“

Þetta sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Hann sagði að nú yrði farið hægar í til­slak­anir en áður og Alma Möller land­læknir sagði að reynslan hefði kennt okkur að það þurfi lítið til að far­ald­ur­inn gjósi upp aftur líkt og gerð­ist hér inn­an­lands í þriðju bylgj­unni.

Í gær greind­ist einn ein­stak­lingur með COVID-19 inn­an­lands og var hann í sótt­kví. Fjórir greindust á landa­mær­unum. Færri sýni hafa verið tekin síð­ustu daga en oft áður og var hvatt til þess á upp­lýs­inga­fund­inum að fólk sem hefði minnstu ein­kenni færi í sýna­töku. „Það er algjör­lega þunga­miðjan í því sem við erum að gera,“ sagði sótt­varna­læknir.

Síðustu upp­lýs­ingar úr rað­grein­ingum eru þær að 43 hafa greinst með breska afbrigði veirunnar hér á landi, þar af sjö inn­an­lands. Allir tengj­ast þeir fólki sem greind­ist með afbrigðið á landa­mær­unum. Hlutfall smita á landa­mærum er núna í kringum eitt pró­sent, sem er mun hærra en í haust og end­ur­speglar stöðu far­ald­urs­ins erlendis.

Ekki fara til útlanda að óþörfu

„Staðan er almennt séð nokkuð góð,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir, „en ég minni á það að ein­stak­lingar sem eru að grein­ast á landa­mær­unum eru að veikj­ast og sumir að leggj­ast inn á sjúkra­hús.“

Hann hvetur fólk til að vera ekki að fara erlendis að óþörfu. Hann minnir á að þó að fáir liggi á Land­spít­ala vegna COVID-19 er ástandið á spít­al­anum erfitt vegna ann­arra sjúk­dóma.

Rúmlega 4.500 manns hafa fengið báðar sprautur bólu­efnis og eru því full­bólu­settir. Í þess­ari viku er von á 1.200 skömmtum af bólu­efni Moderna til lands­ins og um 2.000 skömmtum af bólu­efni Pfizer. Með þeim verður haldið áfram að bólu­setja eldra fólk og fram­línu­starfs­menn.

Nýju afbrigðin valda áhyggjum

Land­læknir sagði að vissu­lega værum við í góðri stöðu inn­an­lands, sér­stak­lega ef litið væri til nágranna­landan­anna þar sem smitum væri að fjölga, inn­lögnum á gjör­gæslu­deildir sömu­leiðis sem og dauðs­föllum. Að hluta til skýrist það ástand af nýjum og meira smit­andi afbrigðum veirunnar.

Evrópska sótt­varna­stofn­unin fjall­aði um þrjú afbrigði veirunnar sem menn hafa áhyggjur af í skýrslu sem kom út á föstu­dag. Alma fór yfir hvert afbrigði fyrir sig á fund­inum.

Breska afbrigðið komst á flug í suð­ur­hluta Bret­lands í des­em­ber þrátt fyrir þær miklu tak­mark­anir sem þar voru í gangi. Það hefur nú fund­ist í sex­tíu öðrum löndum, þar af í 23 Evr­ópu­ríkjum. Útbreiðslan er t.d. hröð í Danmörku, á Írlandi og í Hollandi.

Alma sagði að afbrigðið væri meira smit­andi en eldri afbrigði en að ekki hefði verið sýnt fram á að það sé hættu­legra og valdi meiri veik­indum. Hins vegar hafi fjöldi dauðs­falla í Bret­landi aldrei verið meiri. Í fyrstu var talið að það smit­aði meira börn en önnur afbrigði en það hefur ekki verið stað­fest. Talið er að bólu­efnin virki gegn því en mjög vel er fylgst með smitum hjá fólki sem fengið hefur bólu­setn­ingu.

[links]Suð­ur­a­fríska afbrigðið greind­ist fyrst í októ­ber og hefur breiðst hratt út um sunn­an­verða Afríku. Það er líkt og hið breska meira smit­andi en ekki er vitað hvort að það veldur alvar­legri veik­indum. Það hefur nú greinst í tíu Evr­ópu­löndum og á öllum hinum Norð­ur­lönd­unum. Alma sagði að menn hefðu áhyggjur af því að fólk sem fengið hefði COVID-19 gæti smit­ast aftur af hinu suð­ur­a­fríska afbrigði. Einnig væru vís­bend­ingar um að bólu­efnin kunni að virka verr á það en önnur.

Þriðja afbrigðið greind­ist í Brasilíu og hefur borist með ferða­löngum þaðan til að minnsta kosti tveggja landa. Það er nú talið útbreitt á Amazon-svæðum Brasilíu og hefur valdið álagi á heil­brigð­is­kerfið þar. Frekari upp­lýs­ingar um afbrigðið liggja ekki enn fyrir.

Evrópska sótt­varna­stofnin hvetur ríki til að vera á varð­bergi og auka hlut­fall rað­grein­inga. Alma sagði á að hér á landi væri hvert ein­asta smit rað­greint og að Íslenskri erfða­grein­ingu yrði seint full­þakkað fyrir það.

Alma minnti á að aðgerðir á landa­mærum væru m.a. til þess að lág­marka hætt­una á því að smit af þessum afbrigðum ber­ist hingað til lands. „Því verðum við að halda vöku okkar og fylgja reglum vel, hér inn­an­lands líka.“ Alma sagði svo að „snemm­grein­ing“ væri áfram horn­steinn í bar­átt­unni við veiruna. „Gleymum því ekki.“

Getur læðst aftan að okkur

Þórólfur var spurður af hverju ekki væri tíma­bært að slaka á aðgerðum inn­an­lands, ef ekki nú þá hvenær? Hann sagði reynsl­una hafa sýnt okkur að þegar slakað er á aðgerðum auk­ist hættan ná bakslagi og að það væri aug­ljós­asta ástæðan fyrir því að yfir­völd væru hrædd við að slaka of mikið á. „Þetta getur læðst aftan að okkur og getur orðið erfitt að ná niður“.

Hann sagði ljóst að margir væru „dálítið óþol­in­móðir“ en að það væri aðeins ein og hálf vika síðan til­slak­anir voru gerðar síð­ast. Líða þurfi um 1-2 vikur til að sjá afleið­ingar af því. „Ég held að það sé ekki nein ástæða til að flýta sér núna. Við verðum að sjá hvað ger­ist. Valið snýst ekki um að slaka á núna eða ein­hvern tím­ann í haust eða sumar – við getum klár­lega skoðað hvað ger­ist núna næstu dagar og vikur og þetta er alltaf í sífelldu mati – hvort við eigum að slaka á.“

Rögn­valdur Ólafsson aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn sagði vís­bend­ingar um að fólk væri að slaka meira á en til­efni væri til. Af sam­fé­lags­miðlum mætti sjá að fólk væri mikið á ferð­inni og að meiri hópa­mynd­anir væru að eiga sér stað en „við hefðum kosið að sjá“. Hann sagði fólk fylgj­ast með smit­töl­unum og fari svo að leggja út frá því sjálft hvað það þýði fyrir sig.

Hann hvatti fólk til að hugsa: „Hvar varst þú um helg­ina? Er það eitt­hvað sem við erum stolt af?“ Rögn­valdur minnti á að hættan væri ekki liðin hjá. Allir yrðu að halda áfram að gera sitt til að hefta útbreiðsl­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár