Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, mun að læknisráði fara í tímabundið veikindaleyfi.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, mun gegna störfum mennta- og menningarmálaráðherra til og með 28. júní.
Frá þessu er greint í tilkynningu á vef stjórnarráðsins í dag.
Mennta- og menningarmálaráðherra sat því ekki ríkisstjórnarfund í morgun.
[adspot]Lilja, sem er ráðherra fjölmiðlamála, átti að vera á meðal framsögumanna á málþingi sem Blaðamannafélag Íslands og norrænu sendiráðin héldu í hádeginu í gær.
Þar var umfjöllunarefnið meðal annars fjölmiðlafrelsi á Íslandi, árásir Samherja á blaðamenn og hlutverk stjórnvalda þegar kemur að því að tryggja fjölmiðlafrelsi.
Lilja afboðaði sig á málstofuna í gærmorgun vegna veikinda.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir