Inga Sæland óskar svara um vísindalegt framlag Hafrannsóknastofnunar

Inga Sæland for­maður Flokks fólks­ins hefur sent Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra tíu skrif­legar fyr­ir­spurnir um rann­sóknir Haf­rann­sókna­stofn­unar á mis­mun­andi nytja­stofnum.

Inga Sæland formaður Flokks fólksins
Inga Sæland for­maður Flokks fólks­ins Mynd: Samsett

„Ég er að kalla eftir því hvaða verk­efni þetta eru og hve miklum fjár­munum sé varið í til­tekin rann­sókn­ar­verk­efni á hverjum og einum fiski­stofni,“ segir Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, en hún lagði undir lok síð­ustu viku fram tíu skrif­legar fyr­ir­spurnir til Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra á þingi.

Inga spyr ráð­herra út í rann­sóknir Haf­rann­sókna­stofn­unar á mörgum þeim nytja­stofnum sem veiddir eru við Íslands­strendur og lúta fyr­ir­spurnir hennar að því hversu miklum fjár­munum hafi verið varið árlega frá 2015-2020 í rann­sóknir á ein­staka stofnum, til dæmis stofnum humars, rækju, hrogn­kelsa, ýsu, þorsks og mak­ríls.

Einnig spyr hún hvaða til­teknu verk­efni hafi verið unnin hjá Haf­rann­sókna­stofnun varð­andi hvern og einn stofn og hversu margar rit­rýndar vís­inda­greinar eftir sér­fræð­inga Hafró hafi birst í alþjóð­legum vís­inda­tíma­ritum um hvern og einn þeirra tíu stofna sem fyr­ir­spurn­irnar lúta að.

„Við, íslenska þjóðin, veitum um það bil 6.000 millj­ónum, sex millj­örðum til rekstur Haf­rann­sókna­stofn­unar og þetta er vís­inda­stofnun og það er bæði sjálf­sagt og eðli­legt að kallað sé eftir nán­ari upp­lýs­ingum um það hverjar séu áherslur á rann­sóknir hinna ýmsu nytja­stofna og rýna í það hver hin vís­inda­legi afrakstur er í formi fram­lags til birt­ingar á nýrri þekk­ingu,“ segir Inga í sam­tali við Kjarnann, spurð út í ástæður þess að hún óskar svara ráð­herra við þessum spurn­ingum.

Inga segir við blaða­mann að hún telji að það séu ekki margir inni á þingi sem séu að taka utan um sjáv­ar­út­veg­inn sem slíkan, en Flokkur fólks­ins sé að setja mála­flokk­inn á odd­inn.

„Við munum halda áfram að kryfja þetta til mergjar. Við viljum breyta upp­bygg­ing­unni á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu eins og við þekkjum það í dag og erum akkúrat núna í þessum töl­uðu orðum í fullri, rosa flottri vinnu, sem verður okkar skýra stefna í Flokki fólks­ins þegar við erum að ganga inn í þennan fína kosn­inga­vetur,“ segir Inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hafrannsóknastofnun

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár