Kosningaspáin reiknar líkindi þess að einstaka frambjóðendur nái kjöri

Baldur Héð­ins­son útbýr kosn­inga­spána í fjórða sinn fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar.

Í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga á Íslandi hefur Kjarninn birt kosn­inga­spá Baldurs Héð­ins­sonar. Þar eru fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­anir á fylgi fram­boða í kosn­ingum vigtaðar og metnar með til­liti til oft fal­inna þátta sem hafa áhrif á nákvæmni skoð­ana­kann­ana.

Kosn­inga­spáin er unnin og birt á vef Kjarnans í fjórða sinn fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar 28. októ­ber næst­kom­andi.

„Kosn­inga­spáin býður upp á tvennt sem aðrir bjóða ekki uppá,“ segir Baldur Héð­ins­son stærð­fræð­ingur og höf­undur kosn­inga­spár­lík­ans­ins fyrir Ísland. „Í fyrsta lagi tekur hún saman upp­lýs­ingar úr öllum fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­könn­unum á hverjum tíma­punkti og vegur þær saman til að gefa gott mat á núver­andi stöðu.“

„Í öðru lagi gefur þing­manna­spáin mun betra mat á því hverjir mögu­leikar fram­bjóð­enda eru á að kom­ast inn á þing en nokkur annar mið­ill býður upp á.“

[adspot]

Þingmannaspáin mælir sénsinn

Baldur hann­aði við­bót við kosn­inga­spána fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar í fyrra þar sem hverjum fram­bjóð­anda fyrir sig voru gefnar líkur á því að ná kjöri, miðað við þær upp­lýs­ingar sem voru til taks. Þing­manna­spáin verður gerð á ný fyrir kosn­ing­arnar í ár.

[links]Baldur segir þing­manna­spána hafa komið vel út í síð­ustu kosn­ingum. Til þess að meta það hversu vel tókst til var gerður ein­faldur sam­an­burður. „Segjum að 10 fram­bjóð­endur hafi fengið líkur á bil­inu 20 til 40 pró­sent og að með­al­líkur þess­ara 10 fram­bjóð­enda séu 30 pró­sent. Spáin mundi telj­ast hitta beint í mark ef þrír af þessum tíu fram­bjóð­endum ná kjöri.“

Spurður hvort fram­bjóð­endur þurfi að skjálfa á bein­unum ef þing­sæta­spáin reiknar litlar líkur á því að þeir kom­ist að bendir Baldur fram­bjóð­endum á að bera sig saman við aðra fram­bjóð­endur. „Ef ég væri fram­bjóð­andi með tíu pró­sent líkur í þing­manna­spánni myndi í ég finna níu aðra þing­menn með svip­aðar líkur og segja við sjálfan mig að eitt okkar muni lík­lega kom­ast á þing.“

Fyrirmyndin er bandarísk

Kosn­inga­spáin íslenska er byggð á erlendu lík­ani þar sem skoð­ana­kann­anir eru vegnar miðað við fyr­ir­fram ákveðnar for­sendur og nið­ur­stöð­urnar svo lagðar saman. Banda­ríska vef­síðan fivet­hir­tyeight.com hefur birt slíkar nið­ur­stöður í um ára­bil.

„Ég lagð­ist í mikla vinnu árið 2014 við að greina sögu­leg gögn um skoð­ana­kann­anir og úrslit kosn­inga og hóf svo að birta kosn­inga­spár fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í sam­vinnu við Kjarnann sama ár,“ segir Baldur.

Kosn­inga­spáin hefur einnig verið unnin fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 2016 og Alþing­is­kosn­ing­arnar 2016 og birt á vefnum.

Kosn­inga­spána fyrir kom­andi kosn­ingar má finna á vef Kjarnans, kjarn­inn.is/kosn­ingar, eða á vef Baldurs, kosn­inga­spá.is.

[chart]

Þessi umfjöllun birt­ist fyrst í Mannlífi, 12. októ­ber 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár