Hryðjuverkaógnin sameinar, loftslagsmál skilja í sundur

Trump fagnar þjóð­há­tíð­ar­degi Frakk­lands með Macron í París í dag. Þeir virð­ast vera orðnir mestu mátar.

Emmanuel Macron tók á móti Donald Trump í Frakklandi í gær. Trump fylgist með hátíðarhöldum í París á þjóðhátíðardegi Frakka í dag.
Emmanuel Macron tók á móti Donald Trump í Frakk­landi í gær. Trump fylgist með hátíð­ar­höldum í París á þjóð­há­tíð­ar­degi Frakka í dag. Mynd: EPA

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, er í opin­berri heim­sókn í Frakk­landi þar sem hann fund­aði með nýkjörnum for­seta Frakk­lands, Emmanuel Macron, í gær. Donald og Melania Trump munu fagna Bastillu-deg­inum, þjóð­há­tíð­ar­degi Frakk­lands, í dag ásamt frönsku for­seta­hjón­unum.

Á blaða­manna­fundi eftir tveggja klukku­stunda langan fund þeirra í Élysée-höll und­ir­strik­aði Macron ágrein­ing Frakk­lands og Banda­ríkj­anna í lofts­lags­málum en sagði ríkin ætla að vinna saman gegn hryðju­verkaógn­inni í heim­inum.

Trump neydd­ist til þess að eyða þó nokkrum tíma í að verja son sinn, Donald Trump yngri, vegna fundar hans með rúss­neskum lög­manni í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum í fyrra. Trump yngri leysti frá skjóð­unni á Twitter nýverið þar sem hann birti öll tölvu­póst­sam­skipti sín. Fjöl­miðlum vest­an­hafs þykja póst­arnir varpa nýju ljósi á sam­skipti kosn­inga­bar­áttu Trump við rúss­neska sendi­full­trúa.

Á blaða­manna­fund­inum í Frakk­landi gaf Banda­ríkja­for­seti í skyn að sér gæti enn snú­ist hugur varð­andi útgöngu Banda­ríkj­anna úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. „Eitthvað gæti gerst hvað varðar Par­ís­ar­sam­komu­lagið. Við sjáum hvað setur. Við munum tala um það á næstu miss­erum,“ sagði Trump áður en hann dró í land. „Ef það ger­ist þá verður það dásam­legt, ef það ger­ist ekki þá verður það allt í lagi líka.“

[adspot]

Ánægður með hersýningu

Trump kom til Frakk­lands í gær, fimmtu­dag. Hans beið stór her­sýn­ing í her­stöð­inni í Les Invalides þar sem Macron og Trump tóku út hern­að­ar­mátt Frakk­lands.

Miðað við lýs­ingar breska dag­blaðs­ins The Guardian virt­ist þetta hafa kætt banda­ríska for­set­ann sem hefur sjálfur sagst vera mik­ill herkall. Trump klapp­aði Macron reglu­lega á bakið og tók ítrekað í hönd­ina á honum.

Macron virð­ist ætla að beita þess­ari aðferð í sam­skiptum sínum við leið­toga erlendra stór­velda; Und­ir­strika ríka sögu og mátt Frakk­lands með stæl. Vladimír Pútín fékk í það minnsta sömu með­ferð þegar hann heim­sótti Macron. Þessar sýn­ingar eru ekki síður handa íbúum Frakk­lands og Evrópu.

Það fór betur á með þessum nýkjörnu for­setum í Frakk­landi en í Belgíu fyrr á þessu ári þar sem stíft handa­band þeirra varð að umtals­efni. Trump leið greini­lega vel í sam­fylgd með Macron og bauð honum far í bryn­vörðum for­seta­bílnum sem kall­ast „The Beast“, eða Skepnan.

Trump var ekki aðeins ánægður með hern­að­ar­mátt Frakk­lands. Þegar Donald og Melania fylgdu Emmanuel og Brigitte um sögu­fræga staði snéri Trump sér við á einum tíma­punkti og sagði við Brigitte: „Þú ert í svo góðu formi.“ „Dásamleg“. Hann snéri sér þá að eig­in­manni hennar Emmanuel og sagði: „Hún er í svo góðu formi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár