Evrópuþingið lýsir yfir neyðarástandi í loftslagsmálum

Evr­ópu­þingið hefur lýst yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum. Þingmenn von­ast til þess að gripið verði til rót­tækra aðgerða á lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna sem hefst á mánu­dag­inn.

Ursula von der Leyen, nýr forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Ursula von der Leyen, nýr for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins. Mynd: EPA

Evr­ópu­þingið lýsti í gær yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum. Yfir­lýs­ingin er sögð vera tákn­ræn en með henni von­ast þing­menn­irnir til að þrýsta enn frekar á fram­kvæmd­ar­arm Evr­ópu­sam­bands­ins að taka til rót­tækra aðgerða í lofts­lags­málum. Frá þessu er greint á vef Washington Post.

[links]Alls greiddu 429 þing­menn Evr­ópu­þings­ins atkvæði með yfir­lýs­ingu en 225 greiddu atkvæði gegn henni og nítján sátu hjá. Þessi yfir­lýs­ing um neyð­ar­á­stand er sú fyrsta sem kemur frá sam­tökum ríkja en á annan tug ríkja sem og borga hafa nú þegar lýst yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum. Ísland er hins vegar ekki á meðal þeirra.

Ursula von der Leyen, sem tekur við emb­ætti for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins á sunnu­dag­inn, hefur til­kynnt að lofts­lags­mál verði efst á baugi í emb­ætt­is­tíð hennar. Haft er eftir henni í Washington Post að ástandið í lofts­lags­málum sé orðið að krísu, til­vist­ar­krísu. [adspot]

„Hvernig getur hún ekki verið til­vist­ar­krísa þegar við sjáum Feneyjar undir vatni, portú­galska skóga brenna eða upp­skeru í Litháen minnka um helm­ing vegna þurrka?“ spyr Von der Leyen en hún mun jafn­framt leggja leið sína á 25. lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna sem hefst í Madrid á mánu­dag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár