Kristín Mynd: Heiða Helgadóttir

Kannski líður tíminn hægar hjá mér

Nýverið kom út kvæða­safnið Waitress in Fall með nýjum enskum þýðingum á úrvali ljóða Kristínar Ómars­dóttur. Kristín naut þess að hitta sjálfa sig aftur fyrir á tvítugsaldri, þegar fyrstu ljóðin hennar litu dagsins ljós. Hún segist hins vegar ekki tilbúin til að horfa lengi um öxl, enda sé hún alltaf og hafi alltaf verið rétt að byrja að skrifa.

Á dögunum söfnuðust nokkrir rithöfundar saman í Iðnó til að lesa upp eftirlætis­ljóð sín eftir Kristínu Ómars­dóttur. Tilefnið var útgáfa kvæða­safns Kristínar á ensku, Waitress in Fall, í þýðingu Valgerðar Þórodds­dóttur. Í því er að finna ljóð frá 30 ára ferli Kristínar sem ljóð­skálds.

Við Kristín höfum mælt okkur mót í Sundlaug Vestur­bæjar klukkan 9.30 á föstudags­morgni. Við ætlum að tala um skáld­skapinn og þær tilfinningar sem Kristínar­kvöldið í Iðnó vakti með höfundinum. Fyrst ætlum við að synda saman 500 metrana, eins og hún gerir reglulega. Úti helli­rignir eins og við var að búast. Ég mæti nokkrum mínútum á undan henni og fylgist með henni koma gangandi hægt í rigningunni, í appelsínu­gulri regnkápu sem hún hefur ekki fyrir að renna upp, klædd svörtum galla­buxum og vaðstígvélum. Við heilsumst og höldum í útiklefann. „Það var vinkona mín, Auður, sem kenndi mér að nota útiklefann og núna fer ég alltaf hingað,“ …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár