Guðmundur Steingrímsson hættir á þingi

Guð­mundur Stein­gríms­son, þing­maður og fyrr­ver­andi for­maður Bjartrar fram­tíðar, ætlar ekki að bjóða sig fram til Alþingis í haust. Frá þessu greindi hann á Facebook-síðu sinni í morgun.

„Þetta er búinn að vera við­burð­ar­ríkur sprettur og ómet­an­leg reynsla að hafa gegn þing­mennsku á þessum krefj­andi árum frá hruni,“ skrifar Guð­mundur. „Ég er ánægður með það sem ég hef komið í verk. Vonandi ná sem flestar víð­sýnar, bjartar og frjáls­lyndar mann­eskjur kjöri á þing. Hug­sjónin lifir. Nú langar mig að fara að gera aðra hluti, beita mér á annan hátt. Takast á við nýjar áskor­anir. Það er hollt fyrir heil­ann að breyta til, segja þeir.“

Þar með er ljóst að helm­ingur þing­flokks Bjartrar fram­tíðar gefur ekki kost á sér fyrir flokk­inn í næstu kosn­ingum. Þau Róbert Marshall, Bryn­hildur Pét­urs­dóttir og nú Guð­mundur Stein­gríms­son hafa öll ákveðið að hætta. Hinn helm­ing­ur­inn, for­mað­ur­inn Óttarr Proppé, Björt Ólafs­dóttir og Páll Valur Björns­son, ætla öll að gefa kost á sér áfram. Björt fram­tíð ætlar að stilla upp á lista fyrir kosn­ing­arnar.

Guð­mundur tók fyrst sæti á Alþingi árið 2007, þá sem vara­þing­maður fyrir Sam­fylk­ing­una. Hann færði sig í Fram­sókn­ar­flokk­inn fyrir kosn­ing­arnar 2009 og var þing­maður fyrir Norð­vest­ur­kjör­dæmi á síð­asta kjör­tíma­bili. Hann sagði sig úr Fram­sókn­ar­flokknum og var þing­maður utan flokka undir lok þess kjör­tíma­bils, og stofn­aði svo ásamt fleirum Bjarta fram­tíð. Hann varð annar tveggja for­manna flokks­ins og fór á þing fyrir Suð­vest­ur­kjör­dæmi árið 2013.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár