Hvernig leysum við úr ágrein­ing? Félags­ráð­gjaf­inn og sátta­miðl­ar­inn Íris Eik Ólafs­dóttir segir mik­il­vægt að hlúa vel að sjálfum sér, hugsa hvernig maður kemur fram gagn­vart öðrum og hlusta. Mynd: Shutterstock

Hvernig náum við sáttum?

Samskipta­örðugleikar eru því miður óumflýj­an­legur hluti af lífinu. Flest þurfum við einhvern tímann að takast á við samskipta­vanda, leysa úr ágreiningi eða finna lausn á flóknum vanda­málum. Íris Eik Ólafs­dóttir er félags­ráðgjafi, sátta­miðlari, fjölskyldu­fræðingur og sérfræðingur í réttar­félags­ráðgjöf. Hún segir þrennt skipta lykilmáli þegar lausna er leitað.

Flest höfum við einhvern tímann lent í rifrildi, deilt við samstarfs­félaga eða orðið vitni að ágreiningi annarra. Fyrir marga eru slíkar aðstæður óþægilegar og sumir forðast þær eins og heitan eldinn. En hvernig er hægt að takast á við þessar aðstæður og hvað er best að gera? Heimildin leitaði ráða hjá Írisi Eik Ólafs­dóttur, eiganda og framkvæmda­stjóra Samskipta­stöðvarinnar. 

Íris Eik er félags­ráðgjafi, fjölskyldu­fræðingur, sátta­miðlari og sérfræðingur í réttar­félags­ráðgjöf. Til þess að efla færni okkar í að takast á við erfið mál, ágreining og samskipta­vanda segir Íris Eik skipta lykilmáli að kunna að róa tauga­kerfið sitt, sýna hinum aðilanum forvitni og að geta stigið úr ágrein­ingnum. 

Íris Eik Ólafs­dóttirEr eig­andi og fram­kvæmda­stjóri Sam­skipta­stöðv­ar­innar. Íris Eik aðstoðar fólk í að ná sáttum í erf­iðum málum.

Eflum færni okkar

Sem sátta­miðlari aðstoðar Íris Eik fólk við að ná sáttum …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár