Þingmaður upplifði „landsbyggðarrasisma“ við sjónvarpsáhorf á öðrum degi jóla

Ásmundur Frið­riks­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins horfði á fyrsta þátt Ver­búð­ar­innar í gær­kvöldi og spurði í kjöl­farið hvort það væri ekki kom­inn tími til að „land­byggð­ar­ras­isma menn­ing­ar­vit­anna og Rík­is­út­varps­ins“ linnti.

Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Ásmundur Frið­riks­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, seg­ist vera orð­inn leiður á „lands­byggð­ar­ras­isma höf­uð­borg­ar­búa og Rík­is­út­varps­ins“ sem hann telur að hafi birst í fyrsta þætti af Ver­búð­inni, sem sýndur var á RÚV í gær­kvöldi.

Þætt­irnir, sem koma úr smiðju Vest­ur­ports og eru skrif­aðir af þeim Gísla Erni Garð­ars­syni, Birni Hlyn Har­alds­syni og Mikael Torfa­syni, eru átta tals­ins í þess­ari fyrstu þátta­röð. Ásmundur var ekki ánægður með þann fyrsta.

„Í þessu fram­lagi rík­is­út­varps­ins til menn­ing­ar­innar í land­inu er dregin upp sú mynd af fólki í sjáv­ar­plássi að þar sé meira og minna um und­ir­máls­fólk. Topp skip­stjórar séu drykkju­sjúk­lingar sem láti troða amfetamíni í óæðri end­ann á sér. Samfarir þar sem ekk­ert er dregið undan en ljót­leik­inn í aðal­hlut­verki. Þá er fisk­vinnslu­fólkið ekki látið líta vel út eins ég upp­lifði það,“ skrif­aði þing­mað­ur­inn í færslu á Facebook-síðu sinni í gær­kvöldi.

Tölu­verða nekt bæði kvenna og karla mátti sjá í þessum fyrsta þætti af Ver­búð­inni. Ásmundur sagði að konur hefðu verið lít­il­lækk­aðar í þætt­inum, „með fárán­legu stripli“ sem engan til­gang hefði, og spurði hvort þetta væri „menn­ing­ar­fram­lag Rík­is­út­varps­ins“ til MeToo-hreyf­ing­ar­innar.

„Er ekki komin tími til að land­byggð­ar­ras­isma menn­ing­ar­vit­anna og Rík­is­út­varps­ins linni. Bar­áttu­málum Rík­is­út­varps­ins og sam­starfs­að­ilum þess má koma á fram­færi á annan hátt en gera lítið úr fólki sem vinnur mik­il­væg gjald­eyr­is­skap­and[i] störf á lands­byggð­inni og í sjáv­ar­plássum allt í kringum landið,“ skrif­aði þing­mað­ur­inn.

Í athuga­semdum við Facebook-færslu þing­manns­ins taka sumir undir þessa gagn­rýni hans á fyrsta þátt Ver­búð­ar­innar, á meðan að aðrir eru á önd­verðum meiði. Páll Valur Björns­son fyrr­ver­andi þing­maður Bjartrar fram­tíðar er í síð­ar­nefnda hópnum, en hann segir þátt­inn hafa fært fram ótrú­lega raunsanna lýs­ingu á íslensku sam­fé­lagi í upp­hafi níunda ára­tug­ar­ins.

Páll Valur segir síðan Ásmundi að hætta „þessu bulli um höf­uð­borg vs lands­byggð“ – og að bætir við að það sé „ótrú­lega þreytt tugga“ sem þing­menn eigi „aldrei að taka sér í munn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár